Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Í skýrslunni er greint frá því að tæplega 30% mannkyns, 2,4 milljarðar manna, hafi ekki tryggt öryggi að fæðu.
Í skýrslunni er greint frá því að tæplega 30% mannkyns, 2,4 milljarðar manna, hafi ekki tryggt öryggi að fæðu.
Mynd / Alex hudson
Fréttir 27. júlí 2023

Aðgengi að hollu mataræði fer versnandi

Höfundur: Þórdís Anna Gylfadóttir

Á ári hverju gefur Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) út skýrslu um stöðu fæðuöryggis og næringar á heimsvísu sem hefur það markmið að binda enda á hungursneyð og vannæringu í heiminum.

Skýrslan greinir einnig frá þeim áskorunum sem standa í vegi fyrir því að markmiðin náist. Í skýrslunni má lesa um markmið sjálfbærrar þróunar heimsins sem gera ráð fyrir að binda enda á hungursneyð og vannæringu á heimsvísu árið 2030.

Í skýrslunni er greint frá því að um 735 milljónir manna á heimsvísu hafi upplifað hungursneyð árið 2022, sem er aukning um 122 milljónir manna frá árinu 2019. Helstu orsakir eru taldar vera Covid-heimsfaraldurinn, veðurfarsbreytingar og hamfarir ásamt stríðinu í Úkraínu. Þó ber að geta þess að hungursneyð í heiminum hefur ekki aukist milli 2021 og 2022. Ef fram heldur sem horfir munu markmið Sameinuðu þjóðanna um að enda hungursneyð í heiminum fyrir árið 2030 ekki nást og gerir skýrslan nú ráð fyrir að um 600 milljónir manna verði alvarlega vannærðir árið 2030.

Fæðuöryggi ótryggt

Í skýrslunni er sjónum beint að aukinni þéttbýlismyndun sem hefur áhrif á hvernig og hvað fólk borðar. Áætlanir gera ráð fyrir að 7 af hverjum 10 muni búa í stórborgum árið 2050. Þessar breytingar kalla á bæði áskoranir og tækifæri til að tryggja að allir hafi, fjárhagslega og landfræðilega, aðgang að hollu mataræði. Áskoranirnar felast einnig í auknu aðgengi að ódýrum og tilbúnum skyndibita sem er oftar en ekki hitaeiningaríkur, hár í fitu, sykri og/eða salti sem getur leitt til vannæringar. Auk þess er talið að aðgengi að grænmeti og ávöxtum til að mæta daglegum viðmiðum af hollu mataræði sé ekki nægjanlegt. Með aukinni þéttbýlismyndun verður einnig breyting á nýtingu lands sem hefur þar með áhrif á landbúnað.

Fæðuöryggi er skilgreint sem svo að fólk, á öllum tímum, hafi raunverulegan og efnahagslegan aðgang að nægum, heilnæmum og næringarríkum mat sem fullnægir þörfum þess til að lifa virku og heilsusamlegu lífi.

Í skýrslunni er greint frá því að tæplega 30% mannkyns, sem jafngildir 2,4 milljörðum manna, hafi ekki tryggt öryggi að fæðu. Þar af eru um 900 milljón manna sem standa frammi fyrir alvarlegu fæðuóöryggi. Einnig er vakin athygli á því að efnahagslegur aðgangur fólks að hollu mataræði fer versnandi en árið 2021 hafði 42% mannkyns ekki efni á hollu mataræði. Þetta er aukning um 134 milljónir manna frá árinu 2019.

Skylt efni: fæðuöryggi

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f