Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Morticia í hópi  formæðra sinna. F.v. Hrönn Sveinsdóttir, Elísabet Sif Gísla- dóttir, Herborg Hannesdóttir, Aníta Brynjarsdóttir, Hrund Jóhannsdóttir, Sunneva Þorvaldsdóttir, Halla Reynisdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir.
Morticia í hópi formæðra sinna. F.v. Hrönn Sveinsdóttir, Elísabet Sif Gísla- dóttir, Herborg Hannesdóttir, Aníta Brynjarsdóttir, Hrund Jóhannsdóttir, Sunneva Þorvaldsdóttir, Halla Reynisdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir.
Mynd / Aðsend
Áhugaleikhús 14. apríl 2026

Addams-fjölskyldan mætt á svið

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

-Húnaþing vestra

Leikstarf hefur lengi verið mikil- vægur hluti menningar okkar þjóðar, en meðal annars gegnir Leikflokkur Húnaþings vestra lykilhlutverki í sínu héraði.

Leikflokkurinn hefur starfað um árabil enda má rekja skipulagt starf hans að minnsta kosti áratug aftur í tímann í núverandi mynd, með markvissum uppfærslum á stærri söngleikjum síðustu ár, en árið 2018 sameinuðust Leikfélag Hvammstanga og Leikdeild Ungmennafélagsins Grettis í Leikflokk Húnaþings vestra.

Síðasti áratugur hefur verið sérstaklega öflugur í starfi leik- flokksins. Fyrsti stóri söngleikurinn sem hópurinn setti upp var Súperstar árið 2016, sem markaði ákveðin tímamót í starfseminni enda metnaðarfull og flott uppsetning. Meðal annarra slíkra verka sem hann hefur sett á svið má nefna uppfærslu á Hárinu árið 2019, sem vakti mikla athygli og var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af Þjóðleik- húsinu. Fékk leikfélagið þann heiður í annað sinn árið 2022 með barnaleikritinu Pétur Pan og má segja að þær viðurkenningar hafi staðfest dug og getu leikflokksins sem er ekki aðeins mikilvægur á sínu svæði heldur einnig náð athygli á landsvísu.

Árið 2023 sýndi félagið svo söng- leikinn Himin og jörð sem saminn var af leikstjóranum, Ármanni Guðmundssyni. Var handritið unnið í kringum lög Gunnars Þórðarsonar en einhverjir muna eftir plötu hans, Himin og jörð sem gefin var út 1981. Árið 2026 heldur leikflokkurinn áfram þessari hefð með uppfærslu á söngleiknum The Addams Family, sem er í fyrsta sinn settur á svið hérlendis. Þar segir frá Wednesday Addams sem verður ástfangin af „venjulegum“ ungum manni, Lucas Beineke.

Þegar fjölskyldur þeirra hittast skapast bæði spenna og kómík þar sem tveir gjörólíkir heimar rekast Morticia í hópi formæðra sinna. F.v. Hrönn Sveinsdóttir, Elísabet Sif Gísla- dóttir, Herborg Hannesdóttir, Aníta Brynjarsdóttir, Hrund Jóhannsdóttir, saman. Mikil áhersla er lögð á bæði húmor og tilfinningar, en undir niðri fjallar verkið um ást, traust og getuna til þess að samþykkja ólíkan bakgrunn fólks – eða eins og segir í kynningartexta leikfélagsins: „Leyndarmál springa, dramatík magnast og allt fer úr böndunum með söng og svörtum húmor. Að lokum snýst sagan þó um ást, traust og að samþykkja að það sem er „eðlilegt“ er bara afstætt – sérstaklega þegar fjölskyldan þín elskar myrkrið.“

Að uppfærslunni kemur öflugt teymi; leikstjóri og þýðandi verksins er Sigurður Líndal, sem stýrir listrænni heildarsýn sýningarinnar, og danshöfundur er Benjamin Di’Ath, sem sér um hreyfingu og dansatriði verksins. Góð samvinna sem slík, milli leikstjóra, danshöfundar og leikara er lykilatriði í söngleikjum þar sem margir þættir þurfa að falla saman.

Í heild sinni er starf Leikflokks Húnaþings vestra gott dæmi um kraftmikla menningarstarfsemi í íslenskum landsbyggðum. Með samheldni, metnaði og ástríðu hefur hópurinn skapað vettvang þar sem listir fá að blómstra og áhorfendur njóta vandaðra sýninga – og uppfærsla Addams Family er enn eitt skrefið í þeirri vegferð.

Sýningin var í Félagsheimilinu á Hvammstanga og sýningardagar voru um páskana 2026, nánar tiltekið, 1., 2., 4. og 6. apríl kl. 20.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.