Á myndinni er Ingjaldur Ásmundsson úr Ferjunesi við útkeyrslu á áburði 2025.
Á myndinni er Ingjaldur Ásmundsson úr Ferjunesi við útkeyrslu á áburði 2025.
Mynd / ál
Fréttir 1. júní 2026

Áburðarsalar rólegir

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Samkvæmt svörum við fyrirspurnum sem sendar voru fyrirtækjum sem selja tilbúinn túnáburð og rúlluplast hafa allar pantanir borist til landsins og dreifing til bænda gengið vel.

Mikið hefur verið rætt um yfirvofandi verðhækkun eða skort á túnáburði vegna lokunar Hormússunds, en áhrifanna er ekki farið að gæta hérlendis. Í svörum kom fram að fyrirtækin sem selja þessar vörur á Íslandi hafi fengið rétt magn af áburði á þeim tíma sem um var samið. Fyrirspurnir voru sendar á Búvís, Sláturfélag Suðurlands, Lífland, Fóðurblönduna og Skeljung.

Erlendu birgjarnir þurftu að hækka verð á einstaka áburðategundum, en áburðarsalarnir hérlendis höfðu færi á að taka kostnaðaraukann á sig þannig að kjör bænda héldust óbreytt. Eins hafi kostnaður við flutning á landi og sjó hækkað, en fyrirtækin ákveðið að láta það ekki hafa áhrif á verð sem bændur höfðu samið um.

Áburðarverðskrár fyrirtækjanna komu flestar út í kringum áramót eða snemma í vor. Samkvæmt svörum þeirra hafa engar breytingar orðið á áburðarverði frá þeim tíma, en flest tala um að rúlluplast hafi ýmist hækkað eða fyrirséð sé að verð muni breytast þegar líður á sumarið. Birgðastaðan á óseldum áburði og rúlluplasti er samkvæmt fyrirtækjunum sambærileg og á sama tíma og síðastliðin vor.

Aðspurð um hvernig fyrirtækin meta horfurnar á heimsmarkaði miðað við samskipti þeirra við birgja erlendis eru þau öll sammála um að vegna stríðsátakanna við Hormússund sé verð á áburði og rúlluplasti í sögulegu hámarki. Dragist ástandið á langinn megi gera ráð fyrir að þessar vörur verði talsvert dýrari á næsta ári.

Skylt efni: áburður | áburðarsalar

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.