944 milljónir punda í skatt af stafrænni þjónustu
Utan úr heimi 26. nóvember 2026

944 milljónir punda í skatt af stafrænni þjónustu

Höfundur: Þröstur Helgason

Tekjur breska ríkisins af sérstökum skatti á stafræna þjónustu námu 944 milljónum punda á skattárinu 2025–2026, samkvæmt upplýsingum bresku skatta- og tollstjórnarinnar, HMRC. Skatturinn nær meðal annars til tekna af samfélagsmiðlaþjónustu.

„Skattur á stafræna þjónustu hefur reynst mjög árangursríkur við skattlagningu tekna stafrænna fyrirtækja í Bretlandi. Þetta er hóflegur skattur sem felur ekki í sér mismunun og endurspeglar þau verðmæti sem fyrirtækin hafa af breskum notendum,“ segir upplýsingafulltrúi HMRC í svari við fyrirspurn Bændablaðsins.

Skatturinn, Digital Services Tax (DST), hefur skilað breska ríkinu vaxandi tekjum. Þær námu 380 milljónum punda skattárið 20212022, 567 milljónum árið eftir, 678 milljónum 2023–2024, 808 milljónum 2024–2025 og 944 milljónum punda 2025–2026. Tekjurnar hafa því aukist um 148 prósent á fjórum árum.

Bresk stjórnvöld líta á skattinn sem tímabundna ráðstöfun þar til alþjóðleg lausn finnst á þeim álitaefnum í skattlagningu sem stafræn væðing hagkerfisins hefur skapað. HMRC segir engin áform um að breyta skatthlutfallinu. Skatthlutfallið er 2 prósent og er skatturinn lagður á stærstu stafrænu fyrirtækin að uppfylltum tilteknum tekjumörkum sem eru 500 milljónir punda í árstekjur á heimsvísu af þeirri stafrænu starfsemi sem fellur undir skattinn.

Í skýrslu bresku ríkisendurskoðunarinnar, National Audit Office, frá 2022 kom fram að Amazon, Google og Apple hefðu sagt að fyrirtækin myndu velta kostnaði vegna skattsins yfir á viðskiptavini sína.

Í endurskoðun á skattinum árið 2025 kom jafnframt fram að möguleikinn á slíkri kostnaðaryfirfærslu hefði verið hafður til hliðsjónar þegar skatturinn var hannaður. HMRC segir bæði þá endurskoðun og skýrslu ríkisendurskoðunarinnar benda til þess að skatturinn hafi reynst árangursríkur.

Af upplýsingum HMRC verður hins vegar ekki ráðið í hve miklum mæli fyrirtækin hafa í reynd velt skattinum yfir á viðskiptavini sína eða hve stór hluti slíks kostnaðar hefur fallið sérstaklega á auglýsendur á samfélagsmiðlum.

Skylt efni: Bretland

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...