Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Íslenskur refur.
Íslenskur refur.
Mynd / Pixabay
Fréttir 17. febrúar 2026

7.000 krónur fyrir skottið af ref

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Bláskógabyggð greiðir nú 7.000 krónur fyrir skottið sé refur veiddur í sveitarfélaginu og 3.000 krónur fyrir unninn mink.

Fyrir yrðlinga hjá refnum eru það 1.600 krónur á dýr en fyrir hvolpafulla læðu hjá mink eru það 15.000 krónur á dýr.

Sveitarfélagið fær endurgreitt frá ríkinu hlutdeild af viðmiðunartöxtum í samræmi við heimildir í fjárlögum. Hámarksendurgreiðsla er 700.000 krónur á ári. Ekki eru til skriflegir samningar um veiðar á mink og ref fyrir Bláskógabyggð en óformlegir samningar eru við aðila sem sinna mismunandi svæðum, eins og Þingvallasveit, Laugardal og Biskupstungum.

„Það getur hver sem er komið með skott og fengið borgað, en síðan erum við líka með veiðimenn, sem ganga á greni. Fjöldi veiddra refa frá september 2024 og út ágúst 2025 voru 107 fullorðin dýr og 50 yrðlingar hjá refum og minkarnir, sem voru veiddir voru 21,“ segir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar.

Þá má geta þess að tímakaup til ráðinna veiðimanna er 1.615 krónur á klukkustund og greiddar eru 110 krónur í akstur á hvern kílómetra. Um er að ræða taxta frá Umhverfisstofnun fyrir veiðar á mink og ref frá árinu 2000 og hefur hann ekki tekið neinum breytingum síðan þá.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.