Blaðlúsin fjölgar sér hratt, bæði í júní og svo aftur í ágúst/september.
Blaðlúsin fjölgar sér hratt, bæði í júní og svo aftur í ágúst/september.
Utan úr heimi 16. október 2026

30 milljón salatplöntur blaðlúsum að bráð

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Blaðlúsafaraldur kom nýlega upp í salatrækt á Bretlandseyjum. Samkvæmt Blaðsalatsbandalagi Bretlands (British Leafy Salads Association eða BLSA) geta ræktendur búist við allt að 10 milljón punda tjóni þar sem reiknað er með því að 30 milljón salatplöntur verði ónothæfar vegna skaðvaldsins.

Veður hefur verið hlýtt og þurrt á Bretlandseyjum í sumar en eru það kjörskilyrði fyrir blaðlýsnar. Í tilkynningu BLSA kemur fram að faraldurinn sé sá versti í áratugi. Salatbændur víðs vegar um England hafa hlotið tjón, bæði í Suður- og SuðausturEnglandi, í norðanverðu landinu sem og í miðhéruðum Englands (e. Midlands) og í Austur-Anglíu.

Búast má við að jöklasalat og rómarsalat komi verst út úr faraldrinum en græn blöð eru í meiri hættu en rauð. Blaðlúsin er af tegundinni Nasonovia ribisnigri og herjar sérstaklega á salatplöntur og kál. Hún heldur sig helst til í miðju plöntunnar og getur því verið erfitt að ráða við hana. Í gegnum tíðina hafa ræktendur notað skordýraeitur af gerðinni neonicotinoids til að sporna við blaðlúsinni. Þau efni eru mörg hver bönnuð vegna slæmra áhrifa þeirra á býflugur. Hægt er að losna við blaðlúsina í einhverjum mæli með soggildrum (e. suction traps) og vatnsgildrum en BSLA vinnur nú einnig að því í samstarfi við ræktendur, rannsakendur og stjórnvöld að finna langtíma lausnir gegn blaðlúsinni.

Breskar matvöruverslanir selja aðallega breskt salat á sumrin og skipta síðan yfir í innflutt salat að hausti. Nú má reikna með því að innflutt salat komi fyrr í hillurnar til þess að bæta upp fyrir þann uppskerumissi sem blaðlúsin hefur valdið.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...