27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni nú í nóvember. Þetta er í annað sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til vinnustaðaklasa á landsbyggðinni en í mars síðastliðnum úthlutaði innviðaráðherra fimmtíu milljónum til 26 vinnustaðaklasa. Alls bárust 19 umsóknir í ár.

Styrkþegar voru aðilar á Stöðvarfirði, Vopnafirði, Grindavík, Hólmavík, Hofsósi, Bolungarvík, Ísafirði, Hellissandi, Selfossi, Ásbrú og Akranesi. Skilgreiningin á vinnustaðaklasa er skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða. Þeir sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins voru styrkhæfir.

Engin umsókn barst í flokknum „Framlag vegna nýrra plássa gegn langtímaskuldbindingu“ og ein umsókn barst í flokkinn „Einskiptisframlag vegna nýrrar starfsemi á vinnusóknarsvæðum sem telja fleiri en 10.000 manns“ en hún var ekki samþykkt. Hæsti styrkurinn nam 4 milljónum króna og sá lægsti 624.000 krónum.

Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar, aðgerðar B.07. Óstaðbundin störf, en markmið áætluninnar er að búsetufrelsi verði eflt með fjölgun atvinnutækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Styrkirnir skiptast í flokka eftir svæðum, íbúafjölda og eftir því hversu rótgróin starfsemin er. Í þetta sinn voru minni staðir þar sem atvinnulíf er einhæft, svæði sem hafa orðið fyrir áföllum í atvinnulífi eða svæði á fámennum vinnusóknarsvæðum í forgangi.

Skylt efni: brothættar byggðir

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...