Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Þau eru reffileg þrenningin á fimmtugsafmæli Jóns, Haukur Morthens, Jón Kr. og Vigdís Finnbogadóttir.
Þau eru reffileg þrenningin á fimmtugsafmæli Jóns, Haukur Morthens, Jón Kr. og Vigdís Finnbogadóttir.
Mynd / Hannes Pálsson.
Viðtal 23. desember 2024

„Það er ekki allt með slaufu“

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Einsemd er víða og einsemd er val þykir mörgum, þar á meðal höfðingja einum vestan á Bíldudal sem gerir sitt besta til þess að lita dagana ljósi.

Jón hér í rauðum jakka söng ásamt öðrum listamönnum á minningartónleikum Hauks Morthens, vinar síns, vorið 1994. Myndir / Einkaeign

Nafnið Jón Kr. Ólafsson er mörgum kunnugt en hann er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar. Jón hóf feril sinn með hljómsveitinni Facon frá Bíldudal, en stóð á sviði með samferðafólki sínu, Ragnari Bjarnasyni, Hauki Morthens og Ellý Vilhjálms svo einhver séu nefnd.

Jón býr í einbýlishúsi sínu á Bíldudal og hefur rekið tónlistarsafnið Melódíur minninganna þar innan húss í um það bil fjórðung aldar. Það er hreint hugsjónastarf Jóns sem hefur yfir árin safnað munum og heimildum íslenskrar tónlistarsögu svo unun er á að líta. Ljósmyndir, auglýsingaplaköt, klæðnaður á borð við hinn fræga rauða jakka Hauks Morthens, hljóðfæri og annað setja taktinn fyrir því hvernig einstaklingur getur upp á sitt einsdæmi gætt mikilvægra menningarverðmæta án opinbers fjárstuðnings, þó ekki vaði hann í seðlum sjálfur.

Einsemd er val

Jón talar um hvernig einsemdin er víða, þá ekki síst um jólaleytið. Þetta er val, segir Jón sem þykir samfélagið á Bíldudal í smærra lagi, en þar búa rétt rúmlega tvö hundruð manns og áberandi flestir undir fimmtugu. Maður þarf að reyna að klóra í bakkann og vera sósíal.

„Ég tala íslensku og er ekki að fegra hlutina. Ég reyni sjálfur að vera í sambandi við fólk því ég tel einangrun óholla. Það gengur ekkert öðruvísi því fólk er orðið svo sjálfhvert í dag, situr bara heima og skoðar samfélagsmiðla í stað þess að stíga út úr þægindarammanum og hitta aðra í persónu, eða slá á þráðinn.

Svo velta allir því fyrir sér hvaðan hún kemur, öll þessi einsemd í þjóðfélaginu í dag? Hvers vegna ber fólk sig ekki eftir félagslegum samskiptum? Við vitum það að fjölmiðlageggjunin hefur orðið til þess að fólk liggur í samfélagsmiðlum og er sífellt að bera sig saman við aðra. Þetta er orðinn vítahringur því fólk situr svo heima morgun, kvöld og miðjan dag. Finnur fyrir einsemd en enginn gerir neitt róttækt í þessum málum.

Fólk hengir hvert hausinn framan í annað því það er nefnilega svo auðvelt að sitja og koðna heima hjá sér.

Miklu auðveldara en að gera eitthvað og líta sér nær. Þarna þarf að verða breyting á,“ segir Jón með snúð.

Hann hefur rétt fyrir sér í þessum efnum, en samkvæmt nýlegum rannsóknum telst einmanaleiki til alvarlegrar heilbrigðis- og samfélagsvár sem kunni að vaxa enn frekar á tækniöld. Má þar nefna rannsókn Aðalbjargar S. Helgadóttur, Einmana. Tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar – sem má ma. finna á vefsíðu stjórnarráðsins.

Þeir stóðu ósjaldan saman á sviðinu í gegnum árin, félagarnir Ragnar Bjarnason og Jón Kr. Ólafsson.

Maður gerir sitt besta

Sjálfur reynir Jón eftir bestu getu að lifa lífinu til fulls þótt hann sé alleinangraður á Bíldudal.

„Ég þarf að komast til útlanda nú á næsta ári, það er svo gott fyrir andann að upplifa og sjá aðra menningu,“ segir Jón.

Stuttu áður en hann hætti öllu almennu tónleikahaldi hélt hann ásamt hljómsveit ferna tónleika í Jónshúsi í Kaupmannahöfn.

„Það var frábær lokahnykkur á mínum ferli, útúrtroðið, mikil stemning og frábærir hljóðfæraleikarar.“

Hann minnist sérstaklega þjóðhátíðardagsins árið 2022 þar sem hann stóð á sviði Jónshúss ásamt Ingimar Oddssyni, félaga sínum, og léttsveit fyrir fullu húsi. Jón, sem er fagurkeri og listunnandi fram í fingurgóma, er dyggur talsmaður þess að upplifa heiminn á nærandi hátt, menningu og fólk, lýkur samtalinu: „Það er ekki allt með slaufu, Sigrún mín. En maður gerir sitt besta.“

Þess má geta að á komandi ári verður Tónlistarsafnið 25 ára og Jón sjálfur fagnar stórafmæli. Í tilefni þess verður að sjálfsögðu blásið til hátíðahalda, enda segir Jón nauðsynlegt að hafa eitthvað á dagskránni til að hlakka til. Hann áætlar því tónleikahald í september að öllu óbreyttu, eitthvað „intimate“ en að sama skapi vandað og elegant.

Hægt er að sækja tónlistarsafnið heim að Tjarnarbraut, Reynimel, á Bíldudal, alla daga og til viðbótar má ná í Jón í símum 4562186 og 8472542.

Frá einum þeirra tónleika í Jónshúsi þar sem Jón söng fyrir fullu húsi ásamt léttsveit sinni.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...