Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Berglind Kristinsdóttir.
Berglind Kristinsdóttir.
Líf og starf 14. nóvember 2023

„Má ekkert laga, né koma að okkar máli?“

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Orðsins list kemur að þessu sinni frá Berglindi Kristinsdóttur. Hún er fædd 1985 og uppalin á Þverlæk í Holtum í Rangárvallasýslu. Kúabóndi á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit og er í hlutastarfi á Hlíð í umönnun og sveitarstjórnarfulltrúi.

„Ég hef aldrei gefið út ljóð og sögur,“ segir Berglind. „Sennilega bíður einn heill persónuleiki ofan í ímyndaðri skúffu hjá mér sem þarf að tjá sig. Ég hef alltaf haft gaman af myndmáli, samlíkingum og sviðsmyndum, sem sagt færa tilfinningar í eitthvað myndrænt. Eftir að ég las upp ljóðið fyrir einn ljóðmælskan íbúa á Hlíð ákvað ég að þetta fengi að fara út í kosmósið til þess að vera vatn á hjólin í allri umræðu um starfsskilyrði bænda.“ 

 

Bráðabirgða baggaspottinn – þarftu á honum að halda?

 

Í upphafi er það nú oftast vel meint,

þið vitið, bráðabirgða baggaspottinn.

 

Ég, sjálfur bóndinn sem bugast seint,

sjálfsagt uppúr þrjóskunni sprottinn.

Náttúrulögmálin, við þurfum því öll að lúta,

umberum því stundum skrautlega hnúta.

 

Bóndans baslið! – við virðumst aldrei búin,

og samskiptahliðin vera okkur snúin.

Í höfðinu sveima oft huggunarorðin,

allt eftir heyforða og blessuð kjörorðin.

 

,,Æh, það kemur aftur annað vor“

og liggjum á bæn um ekkert slor.

Mun ég þá hafa það sem þarf og þrek?

Til þess að finnast ekki um það sek,

að sjá sjálfsmynd mína speglast með honum

– sjálfum bráðabirgða baggaspottanum –

 

Við bændur lifum á gærdeginum, þó liðinn sé.

Þeim fækkandi fer, sem á vetur setja sitt fé.

meðan sigtar þingið sinn sand af sannleik,

– verða næst hetjur í eigin harmleik.

 

Ítrekað uppfærður kynslóðanna kliður,

tekur hann enda – þessi undarlegi mannasiður?

Að býsnast yfir bændum í byltingum

en sjá svo allt annað í hyllingum.

 

Er ég þetta baggaband ríkis og ráðs?

Þeim ríku og þar um ríðandi til háðs?

Flosnandi er hún, samfélagstengingin,

og fæst hvergi sögð, raunverulega meiningin.

Málamiðlunar-bandið óbreytt fær að hanga,

Menn endurtekið saman til kosninga ganga.

 

Skilyrðin til landbúnaðar erfast mjög illa,

hugsuðir áhyggjur sínar léttilega fylla.

Hvaða þjóðir staga niður hornstaur úr engu stáli?

Má ekkert laga, né koma að okkar máli?

 

Hvað mun taka við af þessu bandi?

Er ég orðinn seinni tíma vandi?

Eða gengur dýrið laust, þessi pólitíski fjandi?

 

Fyrir utan þægindarammann þinn, þú mig finnur,

þar fyrir ræktun og lífinu bóndinn brennur.

 

Við bændur höfum uppskorið í þessu fagi,

árlegar veigar af náttúrunnar tagi,

sú móðir er að láni hjá miklum yfirmanni,

saman við þrjú – oftast í verkstolsbanni.

 

Úr okkar voldugu veraldar geilum,

verðmætum milli okkar síbreytilega deilum.

Hverskonar framtíð viltu öðrum en þér?

– því til bráðabirgða við búum öll hér.

 

Ég bið þig neytandi góður,

að verja þitt manneldisfóður.

Það virðist allt hægt af mannanna verkum

– oft þarf bara einn, heildinni viljasterkum –

 

Mér sýnist það band sem búskapurinn minn spann,

sé reynsla sem ég hvergi annars staðar fann.

Því hún tvinnast við forna feður sem í lófana spýttu

og formæður allra sem flest uppúr moldinni nýttu.

 

Af mold er ég komin og vil helst með henni lífið allt sjöfalda

– áfram þú þarft þrisvar á dag á bónda að halda!

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...