Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Ziggy Stardust
Líf og starf 4. nóvember 2025

Ziggy Stardust

Höfundur: Hönnun: Katrín Andrésdóttir Uppskrift: Margrét Jónsdóttir

Sagan segir að á Ziggy Stardust tímabilinu hafi David Bowie lifað á kókaíni, rauðum paprikum – og mjólk. Mynstrið í peysunni vísar til skrautlegrar sviðspersónu Bowie, því fleiri litir því betra. Katrín Andrésdóttir hannaði þessa peysu fyrir Þingborgarlopann sem hún litar undir merkinu Slettuskjótt en auðvitað er hægt að nota annað, jafnvel nýta litríka afganga. Leyfið hugmyndafluginu að ráða.

Stærðir: S M L XL XXL
Yfirvídd: 93 100 107 121 128

Efni:

350-350-400-400-450 g Þingborgarlopi í aðallit.

5 dokkur af Slettuskjótt sem er litaður Þingborgarlopi, hver dokka er 50 g

Ef notaður er lopi frá Ístex verður að gæta að prjónfestu, ekki er sami grófleiki á honum og á Þingborgarlopanum.

Sokkaprjónar 4 og 5 mm

Hringprjónar 4 mm 40 og 80 cm langir

Hringprjónar 5 mm 40, 60 og 80 cm langir

Saumnál til að lykkja saman undir höndum og ganga frá endum.

Lesið uppskriftina yfir áður en hafist er handa við að prjóna.

Prjónfesta:

14 l og 23 umf í sléttu prjóni = 10 x 10 cm

Önnur prjónastærð getur hentað, allt eftir því hvort prjónað er fast eða laust, finnið það út með því að prjóna prufu. Best er að prjóna prufu í hring, skola úr henni og klippa hana svo í sundur og mæla. Þannig fæst sem réttust niðurstaða.

Prjónað er úr plötulopanum tvöföldum.

Stroff er perluprjón 1 slétt og 1 brugðin lykkja, eða eftir smekk hvers og eins.

Úrtaka á berustykki:

3 X á mynsturblaði = Takið 2 lykkjur í einu óprjónaðar fram af prjóninum, prjónið næstu lykkju, steypið óprjónuðu lykkjunum yfir báðum í einu. Með þessu móti verður lykkja tvö fremst.

Bolur:

Fitjið upp með aðallit, 130-140- 150-160-170 l á 80 sm 5 mm hringprjón og prjónið stroff í hring 6-8 sm. Skipt yfir á 5 mm 80 sm hringprjóninn. Prjónið bol og á honum eru þrjár einingar af mynstri. Í síðustu umferð á bol er í stærð M fækkað um 2 lykkjur, eina á hvorri hlið bols og í stærð L er bætt við 4 lykkjum jafnt yfir umferð. Þetta er til að lykkjufjöldi passi við mynstur þegar búið er að sameina bol og ermar, en talan 10 verður að ganga upp í lykkjufjöldann. Hægt er að lengja bol ef þarf með því að prjóna nokkrar umferðir í viðbót með aðallit áður en mynstur er prjónað. (Mælið viðkomandi og metið bolsídd.)

Ermar:

Fitjið upp 30-36-40-40-44 l á 4 mm sokkaprjónana, prjónið stroff í hring 6-8 sm. Skiptið yfir á 5 mm sokkaprjónana þegar stroffi er lokið og aukið strax um 2 lykkjur undir miðri ermi, (1 lykkja eftir fyrstu lykkju og 1 lykkju fyrir síðustu lykkju í umferð). Endurtakið útaukningu 8-8-8-9-9 sinnum upp ermi, með u.þ.b. 8 umf á milli, þar til 48-54-58-60-64 l eru á prjóninum. Skiptið yfir á stutta 5 mm hringprjóninn á u.þ.b. miðri ermi. Gott er að nota prjónamerki til að merkja þar sem aukið er út. Prjónið uns ermi mælist 44-52 sm. (Mælið viðkomandi og metið hve ermin á að vera löng)

Axlastykki:

Sameinið nú bol og ermar á 5 mm 80 sm langa hringprjóninn. Haldið áfram með mynstrið þegar bolur og ermar eru sameinuð, þegar einum lit er lokið tekur næsti alltaf strax við. Setjið 4-4-5-5-6 síðustu l og 5-5-5-5-6 fyrstu l á báðum ermum á prjónanælu. Setjið 9-9-10-10-12 af bol á prjónanælu þar sem umferð byrjar vinstra megin á bol. Prjónið fyrri ermina við bolinn 39-45-48- 50-52 l, prjónið næstu 56-60-67-70- 73 l af bol og setjið næstu 9-9-10- 10-12 l á prjónanælu. Prjónið seinni ermina við og gerið eins og með hana. Prjónið síðan 56-60-67-70-73 l af bol. Þá eiga að vera á prjóninum 190-210-230-240-250 lykkjur. Prj mynstur eftir teikningu. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar úrtökum er lokið eins og sýnt er á mynsturblaði, eiga að vera 76-84-92-96-100 lykkjur eftir. Í næstu umferðum er tekið úr til viðbótar 12-16-20-20-20 lykkjur með sömu aðferð of fyrr, tekið úr á 6-8-10-10-10 stöðum. Dreifið þessum úrtökum jafnt yfir prjóninn. = 64-68-72-76-80 lykkjur. Vídd á kraga er auðvitað smekkur hvers og eins og því allt eins hægt að fella meira af til viðbótar en hér er gefið upp. Þá er prjónaður kragi og skipt yfir á 4 mm 40 cm hringprjón, prjónnið 3-5 sm, eða eins og hverum og einum þykir best að hafa kragann, fellið laust af. Gangið vel frá öllum endum og lykkjið saman undir höndum.

Þvottur:

Þvoið flíkina í volgu vatni með góðri ullarsápu eða sjampói. Skolið vel og vindið svo í hálfa mínútu í þvottavél. Mikilvægt er að vélin fari strax að vinda, (þær eru misjafnar að þessu leyti) en sé ekki að veltast með flíkina fyrst, þá getur hún þófnað. Leggið peysuna á handklæði til þerris.

3.750 holdakýr eru í landinu
Fréttir 25. febrúar 2026

3.750 holdakýr eru í landinu

Bændasamtök Íslands í samvinnu við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) stóðu f...

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta
Fréttir 23. febrúar 2026

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta

Kýr á holdanautabúum eru 3.333 og fæddust 2.466 kálfar á þessum búum á síðasta á...

Nautin uxu hraðast á Efstalandi
Fréttir 23. febrúar 2026

Nautin uxu hraðast á Efstalandi

Daglegur vöxtur ungneytanna á Efstalandi í Öxnadal var að meðaltali 714,5 grömm ...

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun
Fréttir 23. febrúar 2026

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun

Samkvæmt nýrri rannsókn við Háskólann í Lundi er hægt að tengja neyslu á feitum ...

Hestur í kvöldmatinn?
Fréttir 23. febrúar 2026

Hestur í kvöldmatinn?

Íslenskt hrossakjöt er takmarkað og verðmætt hráefni þar sem framboð er sveifluk...

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda
Fréttir 18. febrúar 2026

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði nýverið rúmlega 118 milljónum króna í styrki ...

Reykjaböðin verða opnuð í vor
Fréttir 18. febrúar 2026

Reykjaböðin verða opnuð í vor

Nú styttist óðum í að Reykjaböðin opni, en um ræðir nýtt náttúrulón og heilsulin...

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu
Fréttir 17. febrúar 2026

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu

Hafin er ræktun á burnirót í Hnífsdal í þeim tilgangi að framleiða fæðubótarefni...