Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Sigríður Sigurðardóttir og Pétur Pétursson (með svunturnar) framleiða Jöklu, fyrsta íslenska rjómalíkjörinn. Á milli þeirra er Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslumeistara sem var einna leiðbeinanda vinnslusmiðjunnar.
Sigríður Sigurðardóttir og Pétur Pétursson (með svunturnar) framleiða Jöklu, fyrsta íslenska rjómalíkjörinn. Á milli þeirra er Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslumeistara sem var einna leiðbeinanda vinnslusmiðjunnar.
Mynd / Ása Steinars
Líf&Starf 3. janúar 2019

Vörur þróaðar úr ærkjöti, smjöri og kartöflum

Höfundur: smh
Nokkrir matarfrumkvöðlar sam­einuðust í vinnslusmiðjunni Nordic Kitchen á Íslandi nýverið til að þróa vörur sínar og fá leiðsögn frá reyndu fagfólki. Áhugaverðar matvörur eru í þróun og má nefna snakk úr berjalegnu ærkjöti og kartöflu-knish, vegan-ost og smjörvörur.
 
Á dögunum var í Bændablaðinu sagt frá Facebook-hópnum Eldstæðinu, sem Eva Michelsen eigandi Michelsen Konfekt á Íslandi stofnaði. Hún hugsar sér Eldstæðið sem samstarfsvettvang fyrir matarfrumkvöðla og spratt vinnusmiðjan Nordic Kitchen á Íslandi úr þeim jarðvegi. 
 
Eva hafði kynnst rekstri vinnslueldhúsa í Washington í Bandaríkjunum og sótti í kjölfarið um styrk í Rising North sjóðinn til að setja upp smækkaða mynd hér á Íslandi, af því sem hún sá í Washington. Íslenska smiðjan var þannig hluti af vinnslumiðjuseríu sem haldin var í Helsinki og Stokkhólmi, auk Reykjavíkur.
 
Vörur á mismunandi þróunarstigi
 
Að sögn Evu fór fyrri dagur smiðjunnar fram í Húsi Sjávarklasans en sá seinni í nemaeldhúsi Menntaskólans í Kópavogi. Þátttakendur í smiðjunni voru 15 með 12 vörutegundir, en matarfrumkvöðlarnir eru á mismunandi stigum framleiðslu, sölu og markaðssetningu á sínum vörum; ýmist á algjöru frumstigi, þróunarstigi, á leið í verslanir eða komnar nú þegar í hillur verslana. 
Um fjölþjóðlegan hóp af fólki var að ræða sem tók þátt, sem á það þó sameiginlegt að hafa hug á því að markaðssetja vörur sínar hér á Íslandi. Þátttakendur í vinnusmiðjunni fengu leiðsögn í framleiðslu, umgjörð og umbúðum, markaðssetningu og öðru sem lýtur að því að koma nýrri matartengdri hugmynd á markað.
 
Í leit að húsnæði fyrir Eldstæðið
 
Eva segir að leitað sé að hentugu húsnæði fyrir Eldstæðið, hún finni að mikill áhugi sé meðal matarfrumkvöðlanna að hafa fasta sameiginlega góða aðstöðu. „Ef einhverjir geta bent mér á húsnæði eða eiga slíkt – sem ekki er of dýrt – mega þeir endilega hafa samband við mig. 
 
Ég finn að það er mikill áhugi hjá fólki og margir hafa verið að missa húsnæði að undanförnu svo ég held að þörfin hafi jafnvel aukist.“
 
Ærberjasnakk. Bóndinn Guðný Harðardóttir vinnur með sitt eigið lambakjöt frá Breiðdalsvík á Austfjörðum.

Vörurnar sem unnið var með í vinnslumiðunni

Jökla, fyrsti íslenski rjóma­líkjörinn. Frumkvöðlar eru Pétur Pétursson og Sigríður Sigurðardóttir.
Handgerð lífræn rabarbarasulta unnin eftir gamalli aðferð í ýmsum tilbrigðum. Fengin frá íslenskum bónda og til í takmörkuðu upplagi. Frumkvöðull er Auður B. Ólafsdóttir. Fáanlegt í Jólaþorpi Hafnarfjarðar, fyrstu og síðustu helgina í desember.
 
Nýtt Pestó sinnep frá Sælkera­sinnepi Svövu (www.sinnep.is). Frumkvöðullinn er Svava Hrönn Guðmundsdóttir.
 
Nýtt deluxe pizza deig og pizzasósa. Pizza deig af nýjum staðli en sést nú þegar í verslunum um land allt. Verkefnið er enn á frumstigi, en  frumkvöðull er Guðmundur Már Einarsson.
 
Handgerður vegan-ostur, vara sem er í þróun þar sem nýttar eru cashew-hnetur í framleiðsluna. Frumkvöðullinn er Erlendur Eiríksson, matreiðslumeistari og framkvæmdastjóri Skyrgerðarinnar í Hveragerði.
 
Artisan handunnið smjör. 
 
Ærberjasnakk. Bóndinn Guðný Harðardóttir vinnur með sitt eigið lambakjöt frá Breiðdalsvík á Austfjörðum, tínir ber og jurtir úr eigin landi og notar sem marineringu/krydd. Stuðlað er að fullnýtingu afurða þar á bæ. Þetta verður ný vara á markaði og er hún í þróun.  
 
VÅRK vill auka úrvalið af góðum sveppum á Íslandi. Frumkvöðlar eru Malthe Gaarden og Davið Erik Mollberg. Þeir hafa þróað keramikpott sem selst með sveppagróum og eina sem þarf að bæta út í pottinn er notaður kaffikorgur og Íslendingar geta fengið heimaræktaða ostrusveppi á eldhúsborðinu hjá sér. 
Sykurlausar orkustangir. Dröfn Svavarsdóttir hefur verið að þróa sykurlausar orkustangir, þ.e.a.s. engin aukaefni, enginn sykur og engin sætuefni. Allt gert með náttúrulegum hráefnum. 
 
Nýting á aukaafurðum af ilmkjarna­olíuframleiðslu. Elín Hrund Þorgeirsdóttir vinnur með ilmkjarnaolíur undir heitinu Nordic Angan og af framleiðslunni myndast aukaafurð sem nefnist Hydrosol og er hún að leita leiða til að nýta þessa afurð í stað þess að henda. 
 
Knish úr kartöflum: götumatur sem gerður er úr kartöflum og hægt er að fylla með ýmsu. Frumkvöðull bakvið vöruna er Michelle Goldberg sem tekur  áhrif með sér frá Bandaríkjunum. Þessi hugmynd er á frumstigi hér á landi.
 
Bone & Marrow voru með skírt smjör (ghee/clarified butter). Fyrirtækið er þegar með tvær gerðir af beinaseiði á markaði. Frumkvöðull er Björk Harðardóttir.
 

Leiðbeinendur og fyrirlesarar:
 

Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslu­meistara og meðlimur Íslenska kokkalands­liðsins.
 
Ragnheiður Axel Eyjólfsdóttir annar stofnenda Lady Brewery.
 
Ingi Björn Sigurðsson, verkefna­stjóri og mataráhugamaður hjá Icelandic startups.
 
Eva Michelsen, eigandi Michelsen Konfekt og stofnandi Nordic Kitchen Vinnusmiðjunnar.
 
Federico Ronca, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Sweden Foodtech.
 
Óskar Þórðarson, einn af stofnendum Omnom Súkkulaði.
 
Jóhanna A. Gunnarsdóttir, Gæðastjóri framleiðslusviðs hjá Nóa Síríus.

4 myndir:

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...