Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Vísnahornið
Menning 8. júní 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Vísnagáta þessi er kennd fleiri en einum og trúlega orðin aldargömul:

Áðan hitti maður mig.

Mátti að nafni leita.

Trúfastur við sjálfan sig

sagðist karlinn heita.

Þessa vísu orti María Bjarnadóttir sem var dótturdóttir Bólu-Hjálmars:

Vermir lund sem vordags blær

vinafunda gaman.

Margra stunda minning fær

muna bundið saman.

Páll Jónsson sem kallaður var skáldi mun hafa þótt kærulaus prestur. Gáfumaður talinn, reikull í ráði og nokkuð drykkfelldur, en hagmæltur þó ekki hafi allt þótt prestlegt:

Andskotans hef ég axlarverk,

enginn það læknað getur,

utan þín heillahöndin sterk.

Heyrðu það! Skrattatetur.

Eitt sinn mun Páll skáldi hafa verið staddur í Rvk. og kaupmaður neitað honum um tóbak, en guggnaði við þessa vísu Páls og lét í té tóbak:

Ef mig lætur arka af stað

austur tóbakslausan,

bið ég sjálfan Satan

að sjóða þig í pausann.

Sagt er að þessa vísu hafi Páll ort á köldu vori þegar allt var heylaust:

Máttugur er góður Guð að gefa hláku

af útsuðri með enga bliku

og hana láta standa í viku.

Þessi vísa mun vera eftir Jón Einarsson á Syðri-Rauðamel, Snæfellsnesi:

Enginn stafur um það sást

í öllum boðorðunum,

hvort að maður matarást

mætti fá á konum.

Og þessi eftirmæli um gæðing mun Jón á Syðri-Rauðmel hafa ort:

Hvar sem sást í fákafans

fremst af öllum bar hann.

Augasteinninn eigandans

alla daga var hann.

Ekki veit ég um hvern Elivoga Sveinn yrkir svona lofgjörð, eða hvort þetta var á annað borð lof:

Ættarsvip af Agli ber hann.

Orðaleikni Grettis sterka.

Spaki Njáll til anda er hann.

Ólafur pá til rausnarverka.

Elivoga Sveinn virðist hér hafa verið nægjusamur varðandi skáldalaun:

Mér ég teldi mesta hnoss.

Mundi draga úr raunum

ef ég héldi að hálfan koss

hlyti að bragalaunum.

Ekki var nú kerskni í öllum vísum Sveins eins og þessi staka ber með sér:

Austri skreytir árdags blik

andar heiti blærinn.

Allt um sveitir kemst á kvik.

Klæðum breytir særinn.

Menn kunnu hér áður að lýsa mörkum í bundu máli, eins og þessi vísa Jóns Gottskálkssonar Skagaskálds ber með sér:

Aftan sneitt og undir gat er á því hægra.

Stýft skal á hinu vinstra vera.

Vel munu kindur þetta bera.

Jón bjó í Ketuseli á Skaga um tíma og orti þessa og lýsti sínum vonum:

Búið verður býsna vel

og borðað spaðið feita,

þegar karl í Ketusel

kemst til rólegheita.

Jón orti þegar hann náði sér í kærustu sem ekki tolldi þó lengi í Ketuseli:

Hunangsart á vörum var

veigabjartri línu

en eitursvarta orminn bar

innst í hjarta sínu.

Umsjón: Magnús Halldórsson mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...