Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Vísnahornið
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Líf og starf 28. apríl 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Í síðasta þætti birti ég vísu um mun á Húnvetningum og Þingeyingum. Óskar í Meðalheimi á Ásum orti svar fyrir hönd Húnvetninga:

Þingeyinga mesta mein

er montið sem þeir bera.

Það er betra í þeirri grein

að þykjast en að vera.

Það er við hæfi að kímniskáldið Káinn leiði lesendur á brautir komandi sólskinsstunda vorsins:

Þegar vetur víkur frá

og veðrið fer að hlýna,

þá er fögur sjón að sjá

sólina okkar skína.

Trúlega hefur enginn fjósamaður í veröldinni orðið jafn ódauðlegur og Káinn varð með sínum kveðskap:

Eg heyrði kýrnar hjala

um hljóða aftanstund;

og held þær hafi verið

að halda „kvenfélagsfund.“

Því allar ræddu´ í einu

og engin þagað gat,

þær töluðu´ um allt og alla,

og oftast þó um mat.

„Við erum fullar og feitar,

og fóðrið brestur ei:

Mais og malaðir hafrar

og mikið og kjarngott hey.“

„Mig varðar jú ekkert um það

og ekki´ er það „buisness“ mitt.

En heyrðu hérna, Skjalda!

hvenær er talið þitt?

„Kominn er kveldmatartími,

hvað skulum við nú fá?“

„Jú, þarna kemur nú K.N.

og kemur með andskotans strá!“

Um Jón Sigmar slátrara orti K.N.:

Þegar ævin endar hér,

öllum þrautseigari,

sína hinstu ferð hann fer

með fáein naut í „cari“.

Ekki síður magnað kímniskáld var Hjálmar Freysteinsson læknir frá Vagnbrekku í Mývatnssveit. Hann fer á kostum í árshátíðarbrag sínum:

Gerist vetrar veður blíð,

verður margur galinn,

allir heimta árshátíð,

ærnar, kýr og smalinn.

Af því verða útgjöld stór

sem undir þarf að rísa,

buxur, vesti, brók og skór

borgað er með Visa.

Verulega er veislan fín

og veislustjórinn natinn,

hani, krummi, hundur, svín

hafðir eru í matinn.

Kátur margur maður er,

magnast glens og söngur,

einn ég veit sem ætlar sér

aftur að fara í göngur.

Er á borðum eðalvín

og ekki vantar bjórinn,

galar, krunkar, geltir, hrín

guðdómlega kórinn.

Hér er í boði hámenning,

heldur fátt til vansa,

þegar allt er komið í kring

kyssast menn og dansa.

Margur karlinn klökkur bað

af kellu hrifinn sinni:

„Leyf mér nú að lúta að

látúnshálsgjörð þinni.“

Ansar konan „asninn þinn“,

er með geðið snúið,

„jæja þá í þetta sinn.“

Þá er kvæðið búið.

Alveg kostuleg limru-endurvinnsla Hjálmars Freysteinssonar á þekktustu vísu Kristjáns fjallaskálds:

Á eyðisandi einn um nótt ég sveima,

erindinu löngu búinn að gleyma.

Norðurlandið týnt,

telja má einsýnt

að nú á ég hvergi nokkurs staðar heima.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...