Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Vísnahornið
Mynd / Úr safni
Líf og starf 11. mars 2026

Vísnahornið

Höfundur: Vísnahornið - Magnús Halldórsson

Nú hafa menn þraukað þorrann og óhætt mun að taka upp hjal á léttum nótum. Margar góðar vísur orti Jón Ingvar heitinn. Ég var svo heppinn að vera með Jóni í hestaferð. Þessar hestavísur í léttum anda orti Jón:

Margan gleður meyjarkoss

meður sanni,

en ekkert jafnast á við hross

undir manni.

Um lestrarhestinn Blesa segir Jón:

Sólin spes á sundin blá

og sælleg nesin skín með funa

meðan Blesi Yrpu á

er að lesa biblíuna

Og um Graða Skjóna orti Jón:

Af þér Skjóni, orðspor fer

illt um víðan dalinn,

enda flýja undan þér

ærnar kýr og smalinn.

Friðrik Steingrímsson úr Mývatnssveit er þekktur fyrir sínar glettnu vísur. Hann orti um hest sem hann átti:

Heitir Klerkur hestur minn

hann er skapstór fanturinn,

bragðarefsins brúkar sið,

ber með sómar réttnefnið.

Önnur gömul frá Friðriki um séra Odd sem spilar í Ljótu hálfvitunum:

Á sig gítar oft hann setur

er þó spilið hálfgert maus,

Oddi kæmi eflaust betur

að hann væri strengjalaus.

Og svo ein frá því í haust þar sem Friðrik er að búa sig í göngur trúi ég:

Haustar að og hefst því senn

herjans gangnastritið,

þá hestar, kindur, hundar, menn,

hartnær missa vitið.

Hallur Birkir Reynisson er kunnur fyrir snilldar kveðskap. Hann orti um Hrekkjavökuspor í haust:

Fýkur snjórinn, frosið loft,

fönn um veg,

nætursporin eru oft

undarleg.

Eftir að Hallur var að kveðast á við Fíu frá Sandi orti hann þessa vísu, háttur er samframhent oddhenda:

Fía lygi fær á ný

frían klígju óðinn því

um síast borg og bý

bríaríis ljóðin.

Kristján Ragnarsson frá Ásakoti, er góður hagyrðingur. Hann varð fyrir því að missa hjól undan jeppa með með þeim afleiðingum, að tjón varð á nokkrum bifreiðum í grennd:

Dripplandi þar dekkið fer

á djöfull miklum hraða.

Ekkert hefur undan mér

ollið meiri skaða.

Eftir að hafa þreytt sjósund, varð Kristjáni að orði:

Stífur eins og steinbítsroð

stend og reyni´að hrækja.

Tæp eru öll mín taugaboð

og typpið eins og rækja.

Af mikilli rausn ákvað Kristján að gefa frú sinni vandað heimilistæki í jólagjöf:

Gjöfin hana gladdi síst

og gaf mér kossinn daufan.

Undir morgun vakna víst

með vöfflujárn um skaufann.

Maður þvælist víða í vísnaleitum, en ég rakst á þessar í Þjóðviljanum frá því fyrir hálfri öld. Magnús J. Jóhannesson orti þegar hann sá mann kljúfa rekavið og nota til þess eikarfleyga:

Ýmislegt er erfiðið.

-Undarlegt að tarna-.

Ertu að reyna að reka við

í raufina þá arna.

Tveir „góðtemplarar“ báðu Magnús um að yrkja vísu og fengu þessa:

Skyldi lengi ríma af rögg,

rjála um strengi lúna,

ef ég fengi litla lögg,

ljúfu drengir núna.

Umsjón: Magnús Halldórsson mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...