Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Virðum reglur
Mynd / BBL
Skoðun 11. maí 2018

Virðum reglur

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Sem betur fer eru flestir ökumenn löghlýðnir og fara eftir settum reglum, jafnt í borg, bæjum og sveitum landsins. Innan um hina heiðvirðu ökumenn eru samt allt of margir skussar sem setja sjálfan sig og aðra vegfarendur í stórhættu á hverjum einasta degi. 
 
Auðvitað ætti ekki að þurfa að beita refsingum til að fá fólk til að haga sér skynsamlega í umferðinni, en reynslan sýnir því miður að það er nauðsynlegt. Þann fyrsta maí síðastliðinn öðlaðist gildi ný reglugerð með viðauka  þar sem verulega er hert á sektarákvæðum og upphæðir hækkaðar til muna. 
 
Flestir hafa orðið varir við umræðu um 47. gr. a. um notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur vélknúins ökutækis. Sekt við slíku broti hækkaði úr 5.000 í 40.000 krónur. Það er þó aragrúi annarra sektarákvæða sem hækkuðu einnig sem vert væri fyrir allan almenning og þar með verktaka og bændur  að skoða líka. Þar má t.d. benda á 78. grein um rekstur búfjár:
 
1. mgr.: Búfé rekið á vegi í þéttbýli án leyfis lögreglustjóra 20.000.
2. mgr.:  Of fáir gæslumenn við rekstur búfjár í dreifbýli 20.000.
3. mgr.: Búfé ekki vikið fljótt og greiðlega úr vegi annarrar umferðar 20.000. 
 
Bændur ekki síður en verktakar mættu líka hafa í huga að við broti á reglum um hleðslu, frágang og merkingu á farmi geta verið töluverðar sektir, allt eftir eðli brots. Þær eru frá 20 til 160.000 krónum. 
Í 86. grein er ákvæði er varðar vegavinnu og virðast ansi oft brotin án þess að nokkuð sé aðhafst, en þar segir: 
 
Merkingar þegar röskun á vegi vegna vegavinnu eða af öðrum ástæðum veldur hættu. Ófullnægjandi merking 20.000 –40.000. Reyndar mættu veghaldarar líka alveg taka þetta til sín, því oft eru umferðarmerkingar ekki eins og best verður á kosið. 
 
Fjölmörg ákvæði varða alla ökumenn hvar sem er í umferðinni. Þó vetur eigi nú að vera liðinn, þá er leti og trassaskapur ökumanna ekki litinn hýru auga af löggjafanum og reglugerðarsmiðum. Ef letin er að drepa menn á frostmorgni og fólk að flýta sér á leið í vinnu og nennir ekki að skafa hélu af rúðum, þá getur það kostað viðkomandi 20.000 krónur. Leti af þessu tagi getur nefnilega af augljósum ástæðum skapað stórhættu í umferðinni.
 
Þá eru það ákvæði um ljósanotkun sem hafa verið tekin allt of miklum vettlingatökum til þessa. Trassaskapur, leti og hreint hugsunarleysi í þeim efnum getur nefnilega valdið stórhættu og hefur margítrekað valdið stórtjóni og slysum á fólki. 
 
Í 31. grein reglugerðar er tekið á merkjum og merkjagjöf og þar er að sjálfsögðu líka átt við stefnuljós. Nenni menn ekki að gefa stefnuljós, þá getur það kostað viðkomandi 20.000 krónur. Ef menn kunna hins vegar ekki að nota slíkan ljósabúnað ætti auðvitað að svipta viðkomandi ökuréttindum. 
 
Samkvæmt umferðarlögum á alltaf að nota full ökuljós í akstri, allan sólarhringinn. Þar dugar ekki sjálfvirk kveiking á ljósum sem fylgir flestum nýjum bílum í dag og kveikja bara „led“ ljós að framan og oft engin ljós á afturhluta ökutækis. Í 1. málsgrein 32. gr. reglugerðar segir að ef ökuljós eru eigi tendruð í dagsbirtu, þá er sektarákvæðið 20.000 krónur. 
 
2. mgr.: Ökuljós eigi tendruð þegar birta er ófullnægjandi 20.000.
3.–8. mgr.: Óheimil eða röng notkun ljósa 20.000. 
 
Þegar menn stöðva bifreið, t.d. úti í vegkanti, þá ber að nota stöðuljós. Í 33. grein segir að ef stöðuljós eru eigi tendruð, þá er sektin 20.000 krónur. 
Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...