Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Vindmyllur fagfjárfesta eru óhagkvæmar
Mynd / Luo Lei
Lesendarýni 13. mars 2025

Vindmyllur fagfjárfesta eru óhagkvæmar

Höfundur: Hildur Þórðardóttir og Stefanía Gísladóttir, formaður og varaformaður samtakanna Landsbyggðin lifi.

Á Íslandi eru nú plön um að reisa um 30 vindmyllugarða víðs vegar um landið í nafni grænnar orku.

Vindmyllur eru dýrari í uppsetningu en fallvatnsvirkjanir, valda meiri óafturkræfum umhverfisspjöllum og nýtingahlutfallið er í besta falli 40% og þarf þá alltaf aðra orkugjafa til að mæta hinum 60% sem upp á vantar.

Vindmyllurnar eru reistar uppi á fjöllum, þar sem fjalltopparnir eru sprengdir og flattir út. Þá er steypt undirstaða á stærð við íþróttavöll (í Noregi) ofan í bergið með járnabindingu og öllu tilheyrandi. Þetta getur valdið jarðvegseyðingu og röskun á lífríki, fyrir utan að bergið hér á Íslandi er miklu mýkra en í Noregi og því þurfa undirstöðurnar að vera talsvert umfangsmeiri og dýpri. Þar að auki þarf að leggja breiða vegi fyrir þungaflutninga vítt og breitt um fjöllin, leggja rafmagnslínur upp að myllunum til að knýja þær áfram, sem og rafmagnslínur frá þeim.

Það er ásættanlegt að Landsvirkjun sjálf sé að reisa vindmyllugarða, að undangengnu faglegu mati, þar sem þjóðin er enn þá eigandi og nýtur hagnaðarins en þegar atvinnufjárfestar byrja að seilast í hagnaðinn er fjandinn laus.

Fjárfestar geta sótt um allt að 60% kostnaðarins við vindmyllugarða í loftslagssjóði. Þá fá þeir lífeyrissjóði, sveitarfélög eða ríkið til að koma með hin 40% á móti. Eini kostnaður fjárfestanna er því að borga fyrir teikningar og skipulag og auðvitað greiða fyrir leyfum og samþykki með því að gera réttum mönnum gylliboð sem þeir geta ekki hafnað.

Almennt hafa vindmyllur líftíma upp á 20–25 ár og þörf er á reglulegu viðhaldi til að tryggja hámarksafköst og öryggi þeirra. Eftir 15–20 ár getur verið nauðsynlegt að fara í stærri endurnýjun eða uppfærslu á vindmyllunni, skipta um spaða, uppfæra stýrikerfi eða jafnvel skipta út miklum hluta vélbúnaðar.

En raunveruleikinn er, eins og reynslan hefur sýnt, að fyrstu árin verður ekkert hugað að viðhaldi heldur greiddur út allur arður við mikla gleði lífeyrissjóðanna og sveitarfélaganna. Auðvelt fé með lítilli fyrirhöfn. Fjárfestar munu líklega standa í vegi fyrir nauðsynlegu viðhaldi og endurnýjun til að hámarka gróðann og einungis sinna bráðnauðsynlegum viðgerðum, því þeir hyggjast selja hlut sinn rétt áður en vindmyllurnar gefa upp andann. Eftir sitja lífeyrissjóðir og sveitarfélög, þ.e. almenningur, með ónýtar myllur, gífurlegan kostnað við að taka þær niður og meiri háttar óafturkræf umhverfisspjöll og langvarandi áhrif á lífríki, jarðveg og vatnsrennsli.

Fyrir þá sem efast um þetta má nefna einkavæðingu fráveitukerfis Lundúna þar sem fjárfestar hirtu ekki um viðhald og seldu rétt áður en allt fór til fjandans. Viðbjóðsleg saurlykt gýs nú upp úr niðurföllum borgarinnar og fyrirtækið á barmi gjaldþrots. Einnig er fólki bent á að horfa á þriðju þáttaröð norsku þáttanna Exit þar sem aðferð atvinnufjárfestanna er útlistuð því í Noregi hefur fagfjárfestum tekist að kaupa upp orkunet landsmanna og leika sama leikinn þar.

Vindmyllur framkalla hávaða, lágstemmd truflandi hljóð ef þær eru nálægt íbúðasvæðum. Þótt talsmenn vindorku reyni að gera lítið úr þessum hávaða er ljóst að fasteignaverð hríðlækkar því nær sem húsin eru vindmyllunum. Íbúar við nágrenni fyrirhugaðra vindmyllugarða hér um allt land ættu að hafa það í huga.

Til að fjárfestingar í vindorku borgi sig þarf að tengjast orkuneti Evrópu og bjóða rafmagnið hæstbjóðanda. Nú þegar hefur fyrirtækið Icelink hafið undirbúning þess. Raforkuverð mun þá hækka upp úr öllu valdi því bannað verður að mismuna notendum hér á landi og í Evrópu. Þegar búið verður að samþykkja bókun 35 standa lög Evrópusambandsins ofar þeim íslensku og þá er ekkert sem við getum gert. Norðmenn eru nú að átta sig á því að þeir hafi verið plataðir til að tengja raforkunet sitt við Evrópunetið.

Það er von okkar í Landsbyggðin lifi að Íslendingar láti ekki plata sig og samþykki vindorkugarða í einkaeigu. Jafnframt er nauðsynlegt að Landsvirkjun verði alltaf í eigu Íslendinga, annars er hætta á að raforkukerfi Íslendinga endi eins og frárennsliskerfi Lundúnabúa, í djúpum skít. 

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...