Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Svo lítið var af laxi í norskum ám í fyrrasumar að tekið var fyrir veiði á þriðjungi allra veiðisvæða út veiðitímabilið.
Svo lítið var af laxi í norskum ám í fyrrasumar að tekið var fyrir veiði á þriðjungi allra veiðisvæða út veiðitímabilið.
Mynd / Pixabay
Utan úr heimi 6. mars 2026

Villtur lax í bráðri hættu og aðgerða krafist

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Villtur lax í Noregi er á fallanda fæti eftir áratuga hnignun sem rakin er einkum til umfangsmikillar fiskeldisstarfsemi og loftslagsbreytinga.

Villtur lax í Noregi er í hættu þar sem laxaganga hrynur og veiðisvæðum er lokað í stórum stíl. Í grein í Deep Sea Reporter, sænskum miðli sem fjallar um hafið, umhverfismál og lífríki þess, kemur fram að aðstæður síðasta veiðisumar hafi verið gjörbreyttar frá fyrri árum. Á þriðjungi allra veiðistaða hafi svo lítið verið af laxi að veiði var í kjölfarið bönnuð út veiðitímabilið.

Haft er eftir Torbjørn Forseth, sérfræðingi hjá Norsk institutt for naturforskning, að staðan hafi aldrei verið verri og að síðasta ár hafi skilað minnstu laxgöngu sem mælst hefur frá upphafi, auk sögulega lágrar veiðitölfræði og víðtækra lokana á ám.

Sportveiðimenn eru einnig uggandi yfir ástandinu. Í greininni er haft eftir Torfinni Evensen, framkvæmdastjóra Norske Lakseelver, að villtur lax standi nú frammi fyrir tilvistarkreppu og að stjórnmálamenn átti sig ekki á hve alvarleg staðan sé. Hann bendir á að á níunda áratug síðustu aldar hafi meira en milljón laxar synt upp norskar ár, en í fyrra hafi þeir aðeins verið 323.000.

Villtur lax var settur á norska válistann árið 2021 eftir að göngur hans á hrygningarstöðvar tóku að bregðast.

Samspil margra þátta

Rakið er hvernig samspil margra þátta grefur undan villta laxinum. Þannig hafi strokulax úr eldiskvíum blandast villtum stofnum og veikt erfðafræði þeirra, laxalús úr fiskeldi lagst á ungseiði og drepið þau, vatnsaflsvirkjanir trufli búsvæði og framandi tegundir eins og bleiklax fjölgi sér hratt. Ofan á þetta bætast áhrif loftslagsbreytinga sem geri stöðuna enn viðkvæmari.

Bent er á að vandinn takmarkist ekki við Noreg. Í Svíþjóð hafa yfirvöld og veiðifélög neyðst til að herða reglur verulega, meðal annars í Säveån‑ánni, vegna skarps samdráttar í villtum stofnum þar í landi.

Sjókvíaeldið til vandræða

Vöxtur norsks fiskeldis í sjókvíum er af mörgum talinn einn helsti manngerði skaðvaldurinn. Í norskum fjörðum eru nú hundruð eldisstöðva og í hverri kví geta verið allt að 200.000 laxar. „Laxveiði er gríðarlega mikilvæg fyrir samfélögin í dölunum, bæði menningarlega og efnahagslega,“ segir Aksel Hembre, varaformaður samtaka laxveiðiáa, og bendir á að ferðaþjónusta byggð á veiði standi víða undir atvinnu.

Þegar seiðin syndi fram hjá kvíunum á leið til sjávar verði þau auðveld bráð fyrir laxalús, sem þrífist í ofgnótt af eldisfiski. „Lúsin étur húð þeirra, sýgur blóðið og þau drepast,“ útskýrir Torbjørn Forseth, formaður vísindanefndar um Atlantshafslaxinn. Hann varar einnig við erfðablöndun þegar eldisfiskur sleppur: „Eldislax er lagaður að algjörlega öðru umhverfi. Sum einkenni hans eru afar skaðleg villta laxinum.“

Krafan um lokaðar eldiskvíar, sem myndu hindra sleppingar og draga úr smiti, hefur orðið sífellt háværari. „Við krefjumst þess að engar sleppingar eigi sér stað og engin lús berist út í náttúruna. Annars á villti laxinn sér enga von,“ segir Hembre.

Breytingar taki tíma 

Forsvarsmenn norska fiskeldisiðnaðarins segjast tilbúnir í breytingar en þær þurfi tíma. „Að byggja lokuð kerfi á hafi úti er gríðarleg áskorun,“ segir talsmaður Samtaka um sjávarafurðir, Øyvind André Haram, og bendir á að tryggja þurfi að kvíarnar þoli átök hafsins. Flutningur eldis á land eða lokaðar lausnir séu flókið verkefni sem taki einhver ár að þróa.

Þá hefur verið bent á að stjórnvöld búi ekki yfir nægilegri vísindalegri þekkingu til að leggja til stórar kerfisbreytingar á eldi vegna ástands villta laxins. Mun betri og dýpri rannsóknir þurfi á áhrifum laxalúsar frá sjókvíaeldi á villta laxastofna. Meta þurfi hvert eldisstöðvasvæði fyrir sig í stað þess að setja allsherjarreglur fyrir alla.

Norska þingið hefur samþykkt að nýjar reglur taki gildi innan tveggja til fjögurra ára sem knýi greinina til að hraða umskiptum í lokaðar kvíar.

Skylt efni: Laxveiði | laxeldi | Noregur | villtur lax

Margrét Ágústa í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 3. september 2026

Margrét Ágústa í Útvarpi Bændablaðsins

Gestur nýjasta þáttar Útvarps Bændablaðsins er Margrét Ágústa Sigurðardóttir, fr...

Opið fyrir umsóknir
Fréttir 3. september 2026

Opið fyrir umsóknir

Opið er fyrir umsóknir vegna þróunarverkefna búgreina, garðyrkju, sauðfjárræktar...

Yfirvofandi kartöfluskortur í haust
Fréttir 3. september 2026

Yfirvofandi kartöfluskortur í haust

Franskir kartöflubændur sjá fram á mikið uppskerutap í haust og mögulegan skort ...

Bændur uggandi
Fréttir 3. september 2026

Bændur uggandi

Stjórnvöld í Danmörku hafa boðað skarpan samdrátt í leyfilegri notkun köfnunaref...

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Hjörðin er hjartað
3. september 2026

Hjörðin er hjartað

Heyrir doði brátt sögunni til?
3. september 2026

Heyrir doði brátt sögunni til?

Bændur uggandi
3. september 2026

Bændur uggandi

Opið fyrir umsóknir
3. september 2026

Opið fyrir umsóknir

Yfirvofandi kartöfluskortur í haust
3. september 2026

Yfirvofandi kartöfluskortur í haust