Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Undanfarin ár hefur íslenskur landbúnaður átt undir högg að sækja og er í raun sótt að honum úr mörgum áttum.
Undanfarin ár hefur íslenskur landbúnaður átt undir högg að sækja og er í raun sótt að honum úr mörgum áttum.
Lesendarýni 19. janúar 2024

Vilja Íslendingar vera upp á aðra komnir í matvælaframleiðslu?

Höfundur: Anton Guðmundsson. Höfundur er oddviti Framsóknar í Suðurnesjabæ.

Landbúnaður hefur fylgt íslensku þjóðinni í örófi alda, Ísland er eyríki í Norður-Atlantshafi og er um 103.000 km2 að stærð, næststærsta eyja Evrópu á eftir Bretlandi og sú átjánda stærsta í heimi. Á Íslandi búa tæp 400.000 manns.

Anton Guðmundsson.

Nú blasir við að ófriður hefur brotist út í Evrópu sem sér ekki fyrir endann á. Ef til frekari átaka kemur getur það skeð að viðskiptahöft og flutningar hingað til lands geta raskast, einnig ber að nefna það að í gegnum stríðstíma hafa þjóðir flutt minna út af vörum til að tryggja birgðir sinnar þjóðar á slíkum tímum.

Undanfarin ár hefur íslenskur landbúnaður átt undir högg að sækja og er í raun sótt að honum úr mörgum áttum. Meðalaldur íslenskra bænda er um 60 ár og nýliðun í bændastéttinni lítil, þungt rekstrarumhverfi og aukinn innflutningur á kjöti erlendis frá gerir bændum mjög erfitt fyrir.

Tölurnar tala sínu máli

Árið 2022 var heildarframleiðsla á dilkakjöti um 7.408 tonn. Gert er ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í framleiðslu á þessu ári 2023 og að framleiðslan fari niður í 7.205 tonn.

Árið 2017 var heildarframleiðsla á dilkakjöti um 9.206 tonn. Frá þeim tíma hefur framleiðsla dregist saman um nær 1.986 tonn, eða 22%. Yfir sama tímabil hefur sauðfé fækkað um 108.000 vetrarfóðraðar ær, eða 23%. Á sama tíma hefur innflutningur á lambakjöti færst í mikinn vöxt hérlendis. Fjögur fyrirtæki skiptu með sér tollkvóta fyrir innflutning á 345.000 kg af kinda­ eða geitakjöti á tímabilinu 1. júlí 2022 til 30. júní 2023. Meðalverð tollkvótans var ein króna. Stjörnugrís ehf. fékk úthlutað 280.929 kg, Ekran ehf. fékk 40.000 kg, Innnes ehf. 20.000 kg og Samkaup 4.071 kg.

Á tímabilinu frá júlí 2022 til og með febrúar 2023 hafa 14.606 kg af kinda­ eða geitakjöti verið flutt hingað til lands, langmest, eða 14.209 kg, frá Spáni. Frá árinu 2016 hefur framleiðsla á dilkakjöti á Íslandi dregist saman um 20%.

Brostið fæðuöryggi

Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, hefur bent á brostið fæðuöryggi þjóðarinnar á stríðstímum. Hann talar um að það séu til matvæli sem myndu duga í níu daga komi eitthvert alvarlegt ástand upp í landinu.

Grafalvarleg staða blasir við í þessum efnum, við þurfum með miklu sterkari hætti að stuðla að eflingu íslensks landbúnaðar. Þingmenn þessarar þjóðar þurfa að setja málefni sem snerta fæðuöryggi og hagsæld bænda á dagskrá og standa vörð um sérstöðu landbúnaðar hérlendis, þannig má tryggja dreifða búsetu um land allt og fæðuöryggi íslensku þjóðarinnar.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...