Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Mynd af þeim svæðum sem Mörk missir í áföngum. Hluti A. sem Mörk missir næstu áramót. er um 3.460 fermetrar. Hluti B, sem Mörk missir 2032, er um 6.775 fermetrar. Hluti C, sem Mörk heldur til 2050, er um 8.698 fermetrar.
Mynd af þeim svæðum sem Mörk missir í áföngum. Hluti A. sem Mörk missir næstu áramót. er um 3.460 fermetrar. Hluti B, sem Mörk missir 2032, er um 6.775 fermetrar. Hluti C, sem Mörk heldur til 2050, er um 8.698 fermetrar.
Fréttir 14. maí 2026

Víkur Mörk af lóðinni

Höfundur: Þröstur Helgason

Borgarráð samþykkti á síðasta fundi sínum fyrir kosningar á fimmtudag í síðustu viku að víkja Gróðrarstöðinni Mörk af lóð sinni við Stjörnugróf í áföngum. Knattspyrnufélagið Víkingur fær lóðina til frekari uppbyggingar í Fossvogsdalnum en félagið hyggst byrja á því að malbika bílastæði á lóðinni. Borgarstjóri svarar ekki spurningum blaðsins um málið.

Gróðrarstöðin Mörk á að víkja af lóðinni í þremur áföngum, fyrst nú í lok þessa árs og svo árið 2032 en hún á að vera alfarin árið 2050. Endanlegum flutningi Markar af lóðinni hefur því verið frestað um áratug frá fyrri kröfum borgarinnar.

Guðmundur Vernharðsson, annar eigenda Gróðrarstöðvarinnar Markar, segir að niðurstaða málsins hefði mátt vera betri. „En við leggjum okkur fram um að taka þessu með jákvæðu hugarfari.“ Það sem Guðmundur segir jákvætt er að þeim er gert mögulegt að vera með rekstur í Fossvoginum til 2050.

„Við eigum í þessu samhengi mikið undir, að Kópavogsbær verði okkur áfram hliðhollur varðandi land sem við höfum haft til afnota þeirra megin. Þetta er mikil blóðtaka fyrir okkur að missa um helming af okkar framleiðslusvæði í Reykjavík og þurfa að flytja ræktunarreiti, plastbogahús og 200 fm stálgrindarhús á okkar kostnað og koma fyrir annars staðar á lóðinni. Þessi minnkun hefur veruleg áhrif á framleiðslugetu fyrirtækisins,“ segir Guðmundur og bætir við að stöðin muni þurfa að hætta með einhverjar tegundir eða skera verulega niður í magni.

Eins og fram hefur komið í fréttum ætlar Víkingur að byrja á því að malbika bílastæði á þeim hluta lóðarinnar sem félagið fær afhentan um næstu áramót.

Borgarstjóri svarar ekki

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri svarar ekki spurningum sem blaðið sendi til hennar um málið, þrátt fyrir ítrekaðar óskir um svör.

Þar var meðal annars spurt hvort skoðaðar hafi verið aðrar lausnir á málinu en að vísa Mörk af lóð sinni. Hvort snúa hefði mátt þessari ákvörðun borgarráðs frá 2008 við og finna aðra lausn á lóðavanda Víkings. Hvort borgin hafi skoðað að bjóða Mörk aðra lóð innan borgarmarkanna til leigu. Hvort borgarstjóri væri sáttur við að græn starfsemi af þessu tagi, sú síðasta sinnar tegundar í borginni, myndi leggjast af. Hvort hugað hafi verið að hagsmunum Gróðrarstöðvarinnar Markar við afgreiðslu málsins og hvernig þá. Og hvernig brotthvarf Gróðrarstöðvarinnar Markar úr borgarlandinu félli að stefnu Reykjavíkurborgar um sjálfbæra þróun, uppbyggingu grænna svæða, trjárækt og vistvænt borgarumhverfi til framtíðar.

Greiðslustaðan afar erfið
Fréttir 25. september 2026

Greiðslustaðan afar erfið

Sala á vörum Ístex hefur verið góð seinni part sumars. Greiðslustaðan er þó enn ...

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu
Fréttir 25. september 2026

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu

Sláturfélag Suðurlands frestar verðhækkunum haustsins til þess að koma til móts ...

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði
Fréttir 25. september 2026

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði

Framlag stjórnvalda til innleiðingar loftslagsaðgerða í landbúnaði verður skert ...

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá
Fréttir 24. september 2026

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá

Atvinnuvegaráðuneytið hefur kynnt áform um heildarendurskoðun á lögum um velferð...

Heildaruppskera í slöku meðallagi
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppske...

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi
Fréttir 21. september 2026

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands nam 583 milljónum króna á fyrri árshel...

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...