Sauðakjöt á þrjá vegu
Á degi landbúnaðarins 8. október síðastliðinn var sauðakjöt matreitt af Gísla Einarssyni á nýsköpunarsetrinu á Breið á Akranesi. Ætlunin var að matreiða sauðakjöt á þrjá vegu fyrir starfsmenn á Breið. Blaðamaður tók Hlédísi Sveinsdóttur, aðstandanda og skipuleggjanda verkefnisins tali, á meðan Gísli nostraði við sauðakjötið.
Gjörningurinn er hluti af verkefninu Sætir sauðir, sem styrkur fékkst fyrir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands árið 2022. Hlédís segir að tilgangurinn með verkefninu sé að vekja athygli og áhuga á sauðakjöti sem afurð. „Hérna áður fyrr nýttum við kjöt eða afurðir af sauðfé til fullnustu. Sauðféð hefur auðvitað fylgt okkur frá landnámi og gegndi stærra hlutverki hérna áður fyrr. Kindin er samofin menningu okkar. En mér fannst eins og við þyrftum kannski að líta aðeins til baka og skoða fjölbreytileika afurða. Við höfum fest okkur mjög mikið bara í lambakjöti,“ segir Hlédís og bendir á að ekkert sé til dæmis unnið með kindamjólk. „Ég myndi vilja sjá kindamjólkurosta.“
Sauðakjöt sé dýrindis steik
Hlédís segir að verkefnið Sætir sauðir hafi kvoknað í samtali við Brynjar Kristgeirsson frá Felli á Arnarstapa á Snæfellsnesi. „Hann dreymdi um að verða sauðfjárbóndi alla tíð en varð fyrir þeim hræðilegu örlögum að erða útgerðarstjóri í Vestmannaeyjum. Sem slíkur hefur hann ferðast um allan heim og borðað á fínustu steikhúsum heims. Hann segir að sauðkjöt sé besta steikin,“ segir Hlédís.
Í dag sé sauðkjöt helst þekkt sem neysluvara á borðum landsmanna sem tvíreykt jólagóðgæti. Hlédís segir að það sé vannýtt að horfa ekki til sauðakjötsins sem steikar.
Hráefni af Vesturlandi
Nú fer að berast indælislykt úr eldhúsinu, þar sem Gísli Einars ber fram veislumatinn með aðstoð Valnýjar Benediktsdóttur, sem áður starfaði í eldhúsi HB, sem var í sama húsi og nýsköpunarsetrið Breið.
„Gísli er mikill matgæðingur. Hann er þekktastur sem sjónvarpsstjarna en hann er matgæðingur og horfir mikið til staðbundinna hráefna í sinni matargerð,“ segir Hlédís. Sauðakjötið er frá Grímsstaðaketi í Reykholtsdal, kartöflurnar frá Snartarstöðum í Lundareykjadal og perlubyggið er frá Móður jörð í Vallanesi
Í forrétt bar Gísli fram viskísauð á kleinu í forrétt. Í aðalrétt var appelsínusauður og í eftirrétt var lakkríssauður.
Hlédís segir að sauðakjötið sé oft fitusprengdara og áferðin önnur en á lambakjötinu. „Kjötið er dekkra og grófara og það er aðeins öðruvísi bragð. Þannig að þess vegna er svo gaman að geta kynnt það fyrir fólki.“
