Einar fyrir utan timburklædda verksmiðju Tandrabrettis á Eskifirði.
Einar fyrir utan timburklædda verksmiðju Tandrabrettis á Eskifirði.
Mynd / eks
Viðtal 13. október 2026

Mikilvægur hlekkur í skógræktinni

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

„Hugurinn er mun hraðari en það sem vex í vösunum,“ segir Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandrabretta og dótturfélagsins Tandraorku, „og klukkutímarnir í sólarhringnum,“ bætir hann við og hlær. Tandrabretti er með höfuðstöðvar á Eskifirði og er mikilvægur hlekkur í skógrækt landsins, sér um grisjun skóga og vinnslu timbursins.

Í verksmiðjunni á Eskifirði eru unnar viðarperlur til undirburðar fyrir hesta og til kyndingar og fleiri afurðir úr grisjunarviðnum og gömlum vörubrettum. Einar og Magnús Þorsteinsson, sem er sölustjóri, eru atkvæðamiklir í tilraunum með nýtingu á grisjunarvið, svo sem lífkolagerð, en hún leiðir af sér mikinn hita, hentuga aukaafurð á köldu svæði.

Einar segist stundum spyrja sig hvort þeir séu rétti aðilinn til að drífa áfram slíkar tilraunir, en þá langi einfaldlega að gera eitthvað úr öllu því timbri sem er til. Hann segir gríðarlegt magn eiga eftir að falla til á komandi árum og aðeins lítinn hluta þess sé hægt að vinna í bolvið. Eitthvað annað þurfi að gera við allt hitt.

Starfsstöðvar á Eskifirði og í Neskaupstað

Einar er sannkallaður eldhugi; forvitinn, framsækinn og tilraunaglaður, og kampakátur þegar hann tekur á móti blaðamanni í höfuðstöðvunum á Eskifirði.

Tandrabretti þjónaði upphaflega fiskiskipum sem voru að landa en fyrirtækið hætti því fyrir um tveimur árum. Þá hafði önnur starfsemi hægt og rólega þróast samhliða og er nú burðurinn í rekstrinum. Framleiðsla á vörubrettum úr innfluttu timbri er þar fyrirferðarmikil og sú vinnsla er staðsett í Neskaupstað. Þar eru um 200.000 vörubretti framleidd árlega, sem eru að mestu nýtt innanlands og að langmestu leyti í fjórðungnum af uppsjávarfrystihúsunum, álverinu og í laxeldinu í Austfjörðum.

Í verksmiðjunni á Eskifirði er áherslan á frumkvöðlastarf fyrirtækisins og íslenskt timbur. Nóg er af hugmyndum og Einar og samstarfsmenn hans virðast ekki láta gott tækifæri renna sér úr greipum.

Lerkiperlurnar ilma vel.

Viðarperlur í stórum stíl

Úr skógunum kemur nú mikill grisjunarviður. „Það er áætlað að hægt verði að taka um 1.200.000 rúmmetra af timbri úr íslenskum skógum á næstu tíu árum,“ segir Einar. Hann segir nýtingu vera um helming og um fimmtung af nýtanlegu timbri sé hægt að framleiða bolvið úr. „Það þarf að gera eitthvað við allt hitt.“

Á Austurlandi er lerki algengast og úr því býr Tandrabretti til eldsneyti í formi viðarperla. Einar segir lerkið orkuríkara en annað timbur, það sé feitara, og nýtist vel til kyndingar og kolagerðar. Einar segir að úr kílói af lerkiperlum fáist fimm kílóvött af hita.

Tandrabretti framleiðir einnig viðarperlur úr ónýtum vörubrettum. Þær eru að mestu notaðar sem undirburður fyrir hesta og eru rakadrægari en lerkiperlurnar.

Á tímabili síðasta vetur vantaði að koma lerkiperlunum í meiri sölu og kostakjör voru boðin í gegnum Lífland til undirburðar fyrir hesta í bland við rakadrægu perlurnar úr vörubrettunum. Hann segir lerkiperlurnar ekki þurrka eins vel, enda fituríkari, en þær ilmi vel og innlendar og erlendar rannsóknir séu til sem sýna að þær séu sótthreinsandi. Nú er eftirspurn orðin eftir lerkiperlum til undirburðar. „Fólki finnst gott að blanda þessu og fá góðan ilm í hesthúsið.“

Sagi er dælt úr sílói og inn í verksmiðjuna þar sem því er þjappað í viðarperlur.

Vöruþróun og uppeldi

Einar segir miklu meira til af lerkinu en markaðurinn geti tekið á móti og þeir séu því í vöruþróun. Blaðamaður les þannig í það að um eins konar neytendauppeldi sé einnig að ræða. Eldiviður, viðarkol, trjákurl og perlur í kattakassann eru meðal þess sem framleitt er hjá Tandrabretti og er þegar á markaði auk viðarperlanna.

„Það er lítið mál að búa til vörur, en annað mál að gera það á hagkvæman máta. Við vildum bara sanna að aðferðin virkaði,“ segir Einar um tilkomu tilraunar í grillkolagerð. „Þetta er allt handvirkt núna.“ Hann segir eftirspurnina strax vera mikla.

Vélunum er stýrt úr stjórnklefa á hægri hönd.

Pallahitarar sem nýta viðarperlurnar og pitsuofnar eru meðal nýrri viðbóta í vöruframboð Tandrabretta og seldir í vefverslun. „Við erum bara að reyna að búa til markað fyrir perlurnar.“

Einar sér ekki margar hindranir hvað varðar vöruþróun, öllu heldur tækifæri á hverju strái. Hann bendir á takmarkaða reynslu og þekkingu landsmanna á viðarnytjum, enda um helst til nýjan efnivið að ræða hér á landi.

Samkeppni við innflutning

Einar segir Tandrabretti vera í samkeppni við innflutning í undirburði fyrir hesta, en perlurnar eru að mestu fluttar með skipa- flutningum til Reykjavíkur. Aðspurður um hvort við gætum verið sjálfbær um framleiðslu á undirburði segir hann það rakið mál með smávægilegum viðbótum. „Við erum að framleiða um 1.800 tonn á ári en gætum leikandi framleitt 6–8 þúsund tonn. Við þyrftum að setja upp vaktir og vinna allan sólarhringinn eins og verksmiðjur gera. Það væri mun hagkvæmara fyrir okkur. Það er nóg hráefni til en við þyrftum að fá viðskiptavini til að kaupa aðra vöru.“

Kyndistöðvar á köldum svæðum

„Við erum núna að setja upp mjög fullkomna kyndistöð á Reyðarfirði, sem á að kynda öll skólahúsin, öll íþróttamannvirki og fótboltahúsið, sem hefur ekki verið kynt fram til þessa.“

Til verksins er Tandrabretti að flytja inn búnað frá Austurríki og fyrir dyrum stendur samstarfssamningur við sveitarfélagið um rekstur kyndistöðvarinnar til næstu 25 ára.

Hvað hitaveituna á Eskifirði varðar segir Einar hana ekki vera sjálfbæra, hitastig og yfirborð holunnar sé að lækka. En líftíma holunnar megi lengja með því að koma upp kyndingu samhliða.

Hann segir frá því þegar fyrsta kyndistöðin var sett upp á Norðfirði þegar orkuskortur var vegna lélegrar vatnsstöðu í lónum Landsvirkjunar og lokað var á rafmagn til fjarvarmaveitu. Framkvæmdin mætti einhverri mótstöðu. „Hvenær ætlið þið að fara að kveikja á þessu reykspúandi drasli?“ spurði vegfarandi eftir að kveikt hafði verið á kyndingunni í tvær vikur. Minningin kætir ljóslega.

„Í Evrópu þarftu ekki sérstakt leyfi til að setja upp viðarperlukyndingu í byggð, það er svo hreinn bruni.“ Einar segir Íslendinga eiga sitthvað ólært í þessum efnum, tækifærin vanti ekki til að nýta þennan góða efnivið sem viðarperlurnar eru.

Íslensk viðarkol.

Lífkolagerð hentar vel á Austurlandi

Lífkolagerð er í bígerð hjá Tandraorku og tilraunir þegar hafnar með handvirkum aðferðum á kerru sem var keypt fyrir nokkrum árum. Nú anna þeir þó ekki eftirspurn með þessari handvirku aðferð en mikil fjárfesting sé að koma upp stórvirkari búnaði til lífkolagerðar.

Einar segir vinnslu lífkola leiða af sér gríðarlegan hita, sem hægt er að nýta til að hita vatn til kyndingar. „Svona tæki til lífkolagerðar henta mjög vel á svæðum eins og á Austurlandi þar sem er bæði mikill skógur og kalt svæði.“

Lífkolin sjálf er hægt að nýta á margvíslegan hátt, svo sem í landbúnaði, sem jarðvegsbæti og jafnvel út í fóður til fiskeldis. Til slíkra tilrauna fékk Tandrabretti styrk úr Matvælasjóði og þær standa nú fyrir dyrum. Þar er ætlunin að kanna hvaða áhrif kolabætt fóður hefur á nýtingu á fóðri og heilbrigði fiskanna. Hann segir að rannsóknir séu til frá Suðaustur-Asíu sem sýni fram á góðar niðurstöður með slíkri nýtingu í eldisfóður.

Eldiviður úr lerki.

„Í Noregi heyrði ég að með því að blanda 7% af lífkolum í nautgripafóður gætirðu lækkað kolefnisfótsporið um 13%,“ segir Einar. Með bros á vör bætir hann við að sumir taki alltaf kolatöflu áður en þeir fái sér steik, „til að prumpa ekki“. Slíkar töflur sé hægt að fá í apótekum.

Kolefnisspor steypu minnkað umtalsvert

Einar segir þá Magnús sölustjóra,alveg geta leyft sér að vera „vitlausa af og til“. „Það myndi enginn sem er með einhverja menntun fara út í svona vitleysu,“ segir hann og hlær. Hann segir þá vera búna að kynnast mikið af fagfólki um allan heim. „Eitthvað af þessu er gerlegt, við vitum það alveg.“

„Við erum með tilraunir í gangi með að blanda kolunum í steypu. Með því minnkum við kolefnisspor steypunnar um allt að 50% án þess að skerða styrkinn. Kolin eru geymd í steypunni.“ Hann segir þegar byrjað að framleiða steypu með þessum hætti í Þýskalandi.

Verkfræðistofan Efla stýrði rannsókninni og MVA, steypustöðin á Egilsstöðum, gerði fyrstu prufurnar. Frostþols- og veðrunarprófum er nú lokið og niðurstöður tilraunarinnar benda til þess að kolablönduð steypa henti vel hér á landi. „Þó þetta sé hægt í Þýskalandi er ekki hægt að heimfæra allt, steinefnin eru til dæmis ekki alveg þau sömu, þess vegna var þessi tilraun nauðsynleg. Steypa er býsna flókið fyrirbæri.“

Vantar kaupendur af grisjunartimbri

Grisjun skóga á Íslandi er víða vandamál. Margir voru gróðursettir um eða fyrir aldamótin og hafa jafnvel aldrei verið grisjaðir. Greiðslur hafi verið til bænda fyrir gróðursetningu á sínum tíma, en svo hafi henni verið takmarkað fylgt eftir með grisjun.

Grisjun er nauðsynleg í skógrækt, ellegar verða trén eins og „grannir staurar“, eins og Einar lýsir þeim. Hann segir stóran hluta skóganna jafnvel á leið með að verða eins konar „grænar eyðimerkur, bara græna að utan.“ Granna trjábolina sé þó hægt að nýta.

Til grisjunarinnar þarf sérstakan búnað sem Tandrabretti býr yfir og er nýttur til að fara um landið og grisja. Einar segir flesta skógarbændur vera með samning við Land og skóg, sem stýrir að mestu leyti grisjunum, en Tandrabretti tekur einnig að sér grisjun þar sem þess er óskað.

Hann segir takmarkað vera greitt fyrir grisjunartimbur en Tandrabretti vera einn sárafárra kaupenda. Tandrabretti hefur gert þennan efnivið að sínum og nýtir hann á margvíslegan hátt.

Tandrabretti var á leið að grisja á Suðurlandinu þegar blaðamaður tók Einar tali. Hann sagði þá sjálfa vera að kaupa megnið af því timbri. „Það er enginn annar að kaupa þetta. Það vantar fleiri til að kaupa timbrið.“

Tilbúinni vöru, viðarperlum, pakkað í sekki.

Kolefnisjákvætt ferli

Einar segir nýtingu grisjunartimburs í viðarperlur sem nýttar eru í kyndingu kolefnishlutlausan bruna. Trén hafi bundið kolefni úr andrúmsloftinu, sem muni losna hvort heldur er við niðurbrot eða bruna. Nýting til kyndingar geti komið í stað olíukyndingar og hann telur það jákvætt. „Ef þú grisjar rétt og nýtir timbrið, má segja að bruninn sé kolefnisjákvæður vegna þess að þú ert að grisja skóginn til þess að hann geti bundið meira kolefni úr loftinu. Grisjun bætir vaxtarskilyrði en án hennar hættir skógurinn á einhverjum tímapunkti að vaxa og bindur þá ekki meira kolefni.“

Ferðalag vörubrettisins

Timbrið sem Tandrabretti flytur inn í vörubrettin kemur að mestu leyti tilsniðið frá Eystrasaltslöndunum. Hann segir mikið vera flutt inn af tilbúnum vörubrettum en ávinningur sé af því að setja þau saman hérlendis, flutningsrúmmálið tífaldist eftir samsetningu.

Hann segir þau hugsuð sem einnota en timbrið sé vel nýtilegt eftir að brettið hefur þjónað sínum tilgangi. Eftir ferðalag um heimsins höf með þungan farm missi þau burðarþolið og slitni. Þá sé hægt að kurla þau og nýta í annað. Í Tandrabretti er tekið á móti notuðum vörubrettum sem koma úr innflutningi fyrirtækjanna í fjórðungnum og unnið úr þeim.

Einar segir mögulegt að nota íslenskt timbur í vörubrettin í framtíðinni, en til þess þyrfti sjálfvirka og stóra sögunarmyllu. Meiri verðmætasköpun sé mögulega í annars konar vinnslu. Hann segir vinnuaflið hér með því dýrasta í heiminum, samkeppnin alþjóðleg og slík mylla sé dýr og tæplega pláss fyrir meira en eina á Íslandi.

Gæti styst í sólarhringsframleiðslu

Einar segir framleiðslu á viðarperlum stækka á hverju ári og markmið um sólarhringsframleiðslu eiga eftir að nást með tíð og tíma. „Ef við fengjum eitt stórt kyndiverkefni í viðbót, þá myndi styttast í sólarhringsframleiðslu.“

„Við erum búnir að vera í samtali um hitaveitu á Seyðisfirði og erum komnir með lausn þar. Við erum í samvinnu við austurrískt fyrirtæki sem er gríðarlega framarlega í orkunni og nota varmadælur og viðarbrennslu saman. Á Seyðisfirði eru nú þegar lagnir í jörðu og kynt með rafmagni og olíu ef upp á vantar. Rafmagnið er of verðmætt til að búa bara til hita. Það er ekki óendanlegt af því og við erum að komast að endimörkum virkjana. En perlurnar eru góðar til að kynda hús.“

Tíminn vel nýttur

Einar og Magnús eru báðir á sjötugsaldri. „Nú er tíminn okkar á þrotum,“ segir Einar háðskur, kannski eilítið meyr. Vöngum er velt um framtíð skógarnytja. „Ég held að við eigum ekki að horfa of mikið á bolvið, það verður aldrei mikið magn.

Við eigum erfitt með að keppa við timbur erlendis frá. Ég hugsa stundum að í stað þess að vera að eyða tugum og hundruðum milljóna í að bora, gætum við notað peningana í að koma upp viðarkyndingu.“

Verkefnalisti þeirra Einars og Magnúsar, sem þegar er lokið, er langur; tilraunirnar, framleiðslan, vöruþróunin, námskeiðahald í að meta timbur, aðkoma að timburflutningum milli landshluta, uppsetning kyndistöðva og svo mætti áfram telja.

Spennandi verður að sjá hvað á eftir að bætast við hann á næstu árum. Þeir virðast ekki láta deigan síga, kapparnir á Eskifirði.

Skylt efni: eskifjörður | tandrabretti

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára
Viðtal 26. apríl 2022

Enn þá jafn gaman og þegar ég var sextán ára

Baldur Sæmundsson, áfanga­stjóri í Menntaskólanum í Kópa­vogi, þar sem Hótel- og...

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein
Viðtal 8. apríl 2022

Mikilvægt að mennta fólk fyrir stækkandi atvinnugrein

Garðyrkjunám sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Su...

Fann mína ástríðu í þessu starfi
Viðtal 8. desember 2021

Fann mína ástríðu í þessu starfi

„Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu þessu fólki í sveitunum, notið gestri...

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“
Viðtal 8. nóvember 2021

„Það eiga allir að gera erfðaskrá“

„Erfðaskrá er til þess fallin að leysa úr mörgum málum sem annars tæki tíma og o...

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“
Viðtal 13. júní 2021

„Fyrst og fremst er það hljómurinn sem heillar mig“

Talið er að harmonikkur hafi fyrst komið til Íslands með frönskum sjómönnum sem ...

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur
Viðtal 19. mars 2021

Ný Oddakirkja verður byggð og Sæmundarstofa verður menningar- og fræðasetur

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum
Viðtal 12. febrúar 2021

Landbúnaður á Íslandi stendur frammi fyrir mörgum og ólíkum áskorunum

Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt
Viðtal 12. janúar 2021

Þjónusta verði snögg, fagleg og aðgengileg og eftirlitið einfalt, málefnaleg og skilvirkt

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f