Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Verum til vinstri – verndum náttúruna
Lesendarýni 28. nóvember 2024

Verum til vinstri – verndum náttúruna

Höfundur: Hólmfríður Jennýar Árnadóttir, kennari og oddviti Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi.

Á meðan Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur staðið vörð um náttúruna og gætt að hófsamri nýtingu hennar til orkuöflunar hafa aðrir flokkar flestir verið með stöðugan áróður um orkuskort.

Verðmæti náttúru Íslands eru gríðarleg. Okkur hefur verið falið að gæta hennar með öllum hennar víðernum, fossum, jöklum, jarðhitasvæðum og einstökum jarðmyndunum. Náttúra landsins er einstök og eftirsóknarverð. Sá mikli fjöldi ferðamanna sem heimsækir landið til að upplifa náttúruna er vitnisburður þess. Eigum við að fórna henni fyrir allar hugmyndir, stórar og smáar, sem ekki miða að því að mæta loftslagsmarkmiðum okkar? Eða ætlum við að tryggja heimilum forgang að raforku, nota hana til innlendra orkuskipta, fara vel með auðlindina og halda jafnvægi þegar kemur að sambúð okkar og náttúrunnar.

Það hefur margt gerst síðasta áratug í raforkumálum. Að halda öðru fram er hjákátlegt. Sem dæmi má nefna Búðarhálsvirkjun sem gangsett var fyrir tæpum 10 árum. Þá var stækkun Búrfellsvirkjunar tekin í notkun 2018 og jók rekstraröryggi og sveigjanleika raforkukerfisins. Jarðvarmavirkjun á Þeistareykjum var gangsett 2017 og stækkun Reykjanesvirkjunar lauk árið 2023. Brúarvirkjun í Tungufljóti var sett af stað árið 2020 og Hellisheiðarvirkjun stækkuð sama ár. Þetta er eitthvað, ekki satt?

Hólmfríður Jennýar Árnadóttir

Á vakt VG voru lög um rammaáætlun sett og samþykkt fyrstu svæðin í nýtingar- og verndarflokk. Í júní 2022 samþykkti síðan Alþingi 3. áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu landsvæða. Það að segja að loftslagsmál gangi eingöngu út á það að verið er að skipta bensíni, dísil, kolum og gasi út fyrir græna orku er töluverð einföldun. Aðrar aðgerðir líkt og flokkun sorps sem lög um hringrásarhagkerfi taka til eru einnig mikilvægar, og eins aðgerðir í landbúnaði, iðnaði og fleiri geirum. Við framleiðum mesta græna orku miðað við höfðatölu og árátta og gegndarlaus áróður um meiri orkuframleiðslu virðist einfaldlega vera til að setja hana á erlendan markað. Enda vissir stjórnmálamenn sífelt að sífra um möguleika á aukinni framleiðslu okkar Íslendinga á grænni orku vegna skorts á erlendum mörkuðum.

Eðlilega verður almenningur ringlaður þegar hvor höndin er svona uppi á móti annarri, ýmist er til næg orka eða ekki, í landi sem framleiðir einna mest af grænni raforku í heimi. Vantar raforku fyrir almenning eða er verið að horfa til erlends markaðar og samkeppni? Hvað er rétt og hvernig getum við staðið vörð um heimilin í landinu og séð til þess að orkan verði áfram aðgengileg á sanngjörnu verði fyrir þau öll? Kynnum okkur staðreyndir og verum samábyrg þegar kemur að verndun náttúru á kostnað virkjana og stóriðju þar sem gróðinn fer á fáar hendur. Tryggjum hófsemi í orkuöflun á grundvelli raunverulegrar þarfar og orku í samræmi við fólksfjölgun fólks á sanngjörnu verði og til innlendra orkuskipta. Það er vinstri mál og fyrir það stöndum við í VG.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f