Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Íslenskar reglugerðir um aðbúnað við alifuglarækt eru sniðnar eftir evrópskri fyrirmynd. Kröfur um hámarksþéttleika eru þó umtalsvert lægri hérlendis.
Íslenskar reglugerðir um aðbúnað við alifuglarækt eru sniðnar eftir evrópskri fyrirmynd. Kröfur um hámarksþéttleika eru þó umtalsvert lægri hérlendis.
Utan úr heimi 6. febrúar 2024

Varað við áhrifum lagabreytinga

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Samtök alifuglaframleiðenda í ESB (AVEC) vara við áhrifum hugsanlegra breytinga á Evrópu­sambandslöggjöf um dýravelferð.

Í vísindalegu áliti sem unnið var að beiðni framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er fjallað um ýmsa áhrifaþætti dýravelferðar í alifuglaframleiðslu. Skilgreindir voru mælikvarðar út frá dýravelferðarsjónarmiðum og mat lagt á margvíslega þætti þeirra í þeim framleiðslukerfum sem í gildi eru innan Evrópusambandsins. Niðurstöður þeirra eru ráðgefandi um tiltekin viðmið í aðbúnaði og framleiðsluferlum. Þar kemur meðal annars fram að samkvæmt mælikvörðum rannsóknarinnar ættu fuglarnir að geta lifað stöðugu ákjósanlegu lífi samkvæmt þessum tilteknu mælikvörðum með þéttleika sem miðar við 11 kílógrömm á fermetra. Í dag miða reglugerðir við hámarksþéttleika upp á allt að 42 kg/ fm í mörgum löndum. Niðurstöður höfunda eru því tilmæli um að lækka þennan þéttleikastuðul töluvert.

Myndi leiða til hruns í kjúklingaframleiðslu í Evrópu

Þessi tilmæli þykja talsmönnum AVEC nokkuð langsótt og hafa gagnrýnt aðferðafræði að baki álitinu. Þá hafa þeir bent á ýmsar afleiðingar þess ef reglugerðum um aðbúnað yrði breytt og þéttleikastuðullinn yrði lækkaður niður í 11 kg/fm. Í ársskýrslu samtakanna kemur fram að ef farið yrði að fullu að þessum ráðleggingum í Evrópusambandinu gæti það leitt til þess að um 70% af framleiðslu alifuglakjöts yrði hætt í Evrópu. Hin þrjátíu prósentin yrðu framleidd með svo miklum tilkostnaði að eingöngu lítill hluti íbúa Evrópu hefðu efni á afurðinni. Þá myndu slíkar breytingar síst af öllu stuðla að sjálfbærni matvælaframleiðslu Evrópu, sem yrði háð innflutningi á kjúklingi frá öðrum heimshlutum, þar sem framleiðsla er óumhverfisvænni og ítök Evrópusambandsins í að framfylgja löggjöf um dýravelferð væru engin.

Meira samráð

Birthe Steenberg, framkvæmdastjóri AVEC, hefur kallað eftir viðurkenningu á þeim árangri sem nú þegar hefur náðst í Evrópu. Einnig hefur hún bent á að stefnumótendur skorti raunhæfari sýn á núverandi markaði.

Þannig bendir hún á að þegar neytendur séu spurðir hvort þeir vilji að búfé í Evrópu búi við hærri dýravelferðarkröfur þá sé svarið játandi, en þegar þeir hinir sömu neytendur fara í matvörubúðina kaupi þeir ekki dýrari vöruna sem framleidd er með tilheyrandi hærri dýravelferð. Þess í stað kaupa þeir ódýrari hefðbundnari vöru. Hún segir evrópska alifuglaframleiðendur tilbúna að framleiða vörur undir hærri dýravelferðarkröfum að því tilskildu að til sé markaður til að selja slíkar vörur.

Samtökin hafa óskað eftir meira samráði stefnumótenda við alifuglaframleiðendur. Þau buðu meðal annars Janusz Wojciechowski, fulltrúa landbúnaðarstjórnar í Evrópusambandinu, til opins fundar um dýravelferð í alifuglabúskap, þar sem hann lét hafa eftir sér að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætti að hlusta betur á málflutning og hagsmuni framleiðenda enda skiptu þeir sköpum fyrir matvælakerfi Evrópu.

Íslenskar reglugerðir um aðbúnað við alifuglarækt eru sniðnar eftir evrópskri fyrirmynd. Kröfur um hámarksþéttleika eru þó umtalsvert lægri hérlendis og er sambærilegt við Noreg og Svíþjóð.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...