Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins (t.v.) og Ólafur Thordersen aðstoðarforstjóri við opnun nýju starfsstöðvar fyrirtækisins á Akureyri 30. mars sl.
Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins (t.v.) og Ólafur Thordersen aðstoðarforstjóri við opnun nýju starfsstöðvar fyrirtækisins á Akureyri 30. mars sl.
Mynd / Aðsend
Fréttir 20. apríl 2026

Útflutningur á heimilisúrgangi beint frá Akureyri

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nýlega opnaði Íslenska gámafélagið nýjar starfsstöðvar sínar á Ægisnesi 3 á Akureyri. Með opnun á þessu svæði stórbætist þjónusta við Norðurland og mun í fyrsta skipti hefjast útflutningur á almennum heimilisúrgangi beint frá Akureyri.

Úrgangurinn mun fara til endurvinnslu og orkunýtingar í Evrópu í stað urðunar á Sölvabakka. „Af þessu hlýst mikill umhverfislegur ávinningur, þar sem orkan er nýtt til kyndingar á heimilum í Evrópu. Á árinu verður einnig ný vinnslulína fyrir gler sett upp á svæðinu þar sem allt umbúðagler verður meðhöndlað og er það einnig í fyrsta skipti sem slíkt er gert á Norðurlandi,“ segir Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins, og bætir við:

„Við hlökkum til að kynnast norðlenskum fyrirtækjum betur og viljum gera okkar besta til að veita framúrskarandi þjónustu í sorphirðu og úrgangsmálum á Norðurlandi. Með bættri aðstöðu okkar á Akureyri og samstilltu átaki mun okkur takast að draga mikið úr þeim umhverfisáhrifum sem urðun úrgangs hefur í för með sér.“

Skylt efni: sorphirða | Akureyri

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...