Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Í Búrfellslundi er gert ráð fyrir allt að 30 vindmyllum, hverri með 4-5 MW uppsett afl og samanlagðri orkugetu um 440 GWst á ári. Landsvirkjun hefur ákveðið að fara í útboð á vindmyllunum.
Í Búrfellslundi er gert ráð fyrir allt að 30 vindmyllum, hverri með 4-5 MW uppsett afl og samanlagðri orkugetu um 440 GWst á ári. Landsvirkjun hefur ákveðið að fara í útboð á vindmyllunum.
Mynd / Landsvirkjun
Fréttir 29. janúar 2024

Útboði Búrfellslundar harðlega mótmælt

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Landsvirkjun hefur ákveðið að fara í útboð á vindmyllum fyrir Búrfellslund, vindorkuver við Vaðöldu. Skeiða- og Gnúpverjahreppur mótmælir útboðinu.

Landsvirkjun kynnti fyrr í mánuðinum að ráðist yrði í útboð fyrir Búrfellslund en þar er gert ráð fyrir allt að 30 vindmyllum, hverri með 4-5 MW uppsett afl og samanlagðri orkugetu um 440 GWst á ári. Rammaáætlun reiknar með allt að 120 MW uppsettu afli. Verkefnið er boðið út með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál. Áætlaður framkvæmdatími við uppsetningu vindmyllanna er tvö ár. Takmarkast uppsetningartími þeirra að mestu við sumartímann vegna veðurskilyrða.

Samið við íslenska ríkið

Verkefnið hefur skv. Landsvirkjun verið í þróun í rúman áratug og var samþykkt í nýtingarflokk rammaáætlunar í júní 2022. Sótt var um virkjunarleyfi í október sama ár, með fyrirvara um afgreiðslu skipulagsmála.

Vinna við aðalskipulagsbreytingu og gerð deiliskipulags fyrir svæðið hefur staðið yfir frá desember 2022 með Rangárþingi ytra, en Búrfellslundur er innan sveitarfélagsins. Segir Landsvirkjun jafnframt unnið að samningum við íslenska ríkið sem landeiganda en landsvæðið er innan þjóðlendu.

Ráðist sé í útboðið nú til að auka líkur á því að koma orku inn á raforkukerfið fyrir árslok 2026, en útboðsferli séu tímafrek og afhendingartími á búnaði langur.

Óhefðbundið ferli

Útboðsferlið er talið geta orðið um átta mánaða langt og er samhliða unnið að endanlegu skipulagi verkefnisins. Landsvirkjun segir vonir bundnar við að öll tilskilin leyfi og samningar verði í höfn á þeim tíma en heldur óvenjulegt er að ráðast í útboð án þess að leyfis- og skipulagsmál liggi fyrir.

„Að hefja útboð með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál er óhefðbundið ferli hjá Landsvirkjun og tekur fyrirtækið þarna nokkra áhættu þrátt fyrir fyrirvara í útboðum. Stjórn fyrirtækisins telur hana hins vegar viðunandi miðað við þá hagsmuni sem eru í húfi og samþykkti á fundi sínum 12. janúar sl. að fara þessa leið,“ segir í tilkynningu.

Mótmæla harðlega

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps sendi í kjölfar fregnar um útboðið frá sér tilkynningu þar sem mótmælt er harðlega vinnubrögðum Landsvirkjunar í undirbúningi að vindorkuverkinu í Búrfellslundi. Sveitarstjórnin telji að stjórnvöldum sé ekki heimilt að veita leyfi tengt Búrfellslundi samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.

Búrfellslundur hafi verið hannaður í mismunandi útfærslum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Rangárþingi ytra. Í umhverfismatinu, sem liggi til grundvallar afgreiðslu rammaáætlunar og Alþingis, sé gert ráð fyrir að nýta núverandi raforkuinnviði svæðisins sem að megninu til séu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

„Virkjanakosturinn Búrfellslundur, sem samþykktur var í nýtingarflokk samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun 48/2011, er því háður samþykki bæði Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Rangárþings ytra. Þann 8. júní 2023 nýtti sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps sér 7. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlunar nr. 48/2011 og fór fram á frestun á virkjanakostinum.

...Skýrt kemur fram í lögunum að sé farið fram á frestunina skuli fara með virkjanakostinn eins og hann sé í biðflokki og því er stjórnvöldum ekki heimilt að veita leyfi tengt virkjanakostinum,“ segir í tilkynningunni.

Gríðarlegt inngrip

Jafnframt segir að Búrfellslundur muni takmarka möguleika sveitarfélagsins til uppbyggingar í ferða- þjónustu og útivist á svæðinu og ljóst að ekkert sveitarfélag geti samþykkt að slík uppbyggingaráform séu keyrð áfram gegn vilja viðkomandi sveitarfélags.

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...