Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Úr takti við tímann
Mynd / Úr safni
Leiðari 16. apríl 2026

Úr takti við tímann

Höfundur: Þröstur Helgason

Ný atvinnustefna ríkisstjórnarinnar er úr takti við tímann í mikilvægum atriðum. Með henni verður bakslag í umhverfis- og náttúruverndarmálum með þeirri ofuráherslu sem lögð er á að virkja enn frekar náttúruauðlindir landsins til þess að framleiða rafmagn handa gagnaverum alþjóðlegra tæknirisa. Hún er sömuleiðis þröngsýn og takmarkandi að því leyti að í henni er lögð megináhersla á að lykilfærni framtíðarinnar sé á sviði raunvísinda, tæknigreina, verkfræði og stærðfræði eða svokallaðra STEMgreina. Hlutfall háskólanemenda í þessum fögum á enn að hækka en það hefur hækkað á síðustu árum á sama tíma og hlutfall nemenda í félagsvísindum, menntavísindum og þó sérstaklega hugvísindum hefur lækkað. Sýnin á íslenskt atvinnulíf er auk þess þröng og virðist um fram allt markast af því að vera viðbragð við tímabundnu ástandi. Hún hefði þvert á móti þurft að fela í sér skýra, vekjandi og skapandi framtíðarsýn. Skoðum þetta aðeins nánar.

Eins og fram hefur komið í ritstjórnargreinum blaðsins á undanförnum mánuðum er ljóst að með því að framleiða græna orku hér á landi og selja hana til gagnavera alþjóðlegra tæknirisa verða Íslendingar af þeim arði sem skapast við nýtingu orkunnar, ekki ósvipað og þegar orka hefur verið seld alþjóðlegum stóriðjuverum allt frá miðri síðustu öld. Atvinnustefna sem gerir ráð fyrir því að Íslendingar haldi áfram að framleiða og selja frá sér sína dýrmætu orku með þessum hætti er í raun ótæk af þeirri ástæðu að hún sýnir ekki lágmarksviðleitni til þess að hefja okkur upp úr fari hrávöruframleiðandans. Atvinnustefna af þessu tagi fer stystu leið að takmarki sínu og tekur ekkert tillit til náttúruverndarsjónarmiða sem hafa mótast í ítarlegri samfélagslegri og pólitískri umræðu um einkum og sér í lagi virkjanamál á síðustu áratugum.

Þar að auki er atvinnustefnan vanhugsuð í þessum efnum vegna þess að ríkisstjórnin virðist svo áhugasöm um að laða að erlend gagnaver til að nýta grænu orkuna okkar að hún gleymir að gera ráð fyrir uppbyggingu á okkar eigin gervigreindarlíkönum. Á þetta bendir Björgmundur Örn Guðmundsson ráðgjafi í grein í Vísi nýlega: „Að laða að erlend gagnaver til að nýta grænu orkuna okkar, án þess að krefjast þess að gífurlegt reikniafl verði eftir fyrir íslenskt atvinnulíf til að þjálfa okkar eigin gervigreind, gerir okkur að engu öðru en einfaldri rafhlöðu fyrir erlenda tæknirisa,“ segir Björgmundur og varar við því að ef ekki verði byggðir upp íslenskir innviðir til að hýsa og keyra okkar eigin gervigreindarlíkön „gefum við stafrænt fullveldi okkar eftir til Bandaríkjanna og fórnum í leiðinni öllu gagnaöryggi og persónuvernd“.

Það gæti nefnilega verið réttlætanlegt að virkja meira ef orkan yrði notuð í það að byggja upp nauðsynlega innviði hér á landi. Og í því sambandi er sömuleiðis mikilvægt að hugað sé að því að byggja upp þekkingarlega innviði og menntun sem svara þeim áskorunum sem gervigreindin færir okkur í raun og veru. Þær verða ekki leystar eingöngu með eflingu STEM-greina. Gervigreindin leysir raunar fólk af því tagi af í síauknum mæli, eins og Björgmundur bendir á í grein sinni: „Að leggja blinda áherslu á að framleiða fleiri forritara í dag er eins og að hvetja fólk til að læra tengiskrift árið 2000. Gervigreindin forritar, greinir gögn og leysir stærðfræðijöfnur hraðar og betur en manneskjur. Á nýjum vinnumarkaði eru „mjúku málin“ orðin að hörðustu færninni. Við þurfum ekki fleiri hefðbundna forritara, við þurfum fólk sem býr yfir kerfishugsun, gagnrýni og getu til að samræma aðgerðir gervigreindar.“

Mikilvægasta atvinnustefnan til langrar framtíðar myndi með öðrum orðum felast í endurreisn íslensks menntakerfis, allt frá leikskóla til háskóla. Sömuleiðis þyrfti að ráðast í algera endurskoðun og uppbyggingu á styrkjum til rannsókna á öllum sviðum vísinda og fræða. Í nýrri atvinnustefnu þyrfti að mæta kröfum framtíðar með sjálfbærum hætti, án þess að skerða möguleika komandi kynslóða, með heildstæðri nálgun við umhverfi, efnahag og samfélag. Að auki þyrfti að stórefla fjárfestingartrú ríkis og einkaaðila á grunnatvinnuvegum í landinu, svo sem matvælaframleiðslu og ferðamannaiðnaði, og síðast en ekki síst á menningarlegum og lýðræðislegum innviðum. Slík bylting á samfélaginu myndi ekki aðeins snúast um að viðhalda velmegun heldur einnig upplýsingu, lýðræðislegu jafnvægi, öryggi og viðnámi við hugmyndum sem sagan hefur kennt okkur að eru heiminum hættulegar en hafa nú náð tökum á sumum stærstu og áhrifaríkustu ríkjum heims.

Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari | atvinnustefna

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir
Fréttir 27. nóvember 2026

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir

Út er komin í rafrænni útgáfu bókin Reiðvegir Íslands eftir Halldór H. Halldórss...

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f