Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Upplýst umræða um matarútgjöld heimila
Mynd / Úr safni
Skoðun 16. apríl 2026

Upplýst umræða um matarútgjöld heimila

Höfundur: Margrét Gísladóttir

Umræða um matvælaverð á Íslandi er gjarnan fyrirferðarmikil og snýst oft um samanburð á krónutöluverði milli landa. Slíkur samanburður segir þó aðeins hálfa söguna og hagfræðilega séð skiptir meira máli hversu stór hluti ráðstöfunartekna heimila fer í mat en hvað varan kostar í krónum talið. Það hlutfall er lykilmælikvarði á raunverulegt aðgengi fólks að mat og þar með lífskjör.

Þegar horft er á hlutdeild matar í heildarútgjöldum heimila kemur í ljós að Ísland stendur nokkuð vel í samanburði við lönd Evrópusambandsins. Þegar hlutfallið er hátt merkir það einfaldlega að matur og drykkur er dýr í samanburði við tekjur og þegar það er lágt er því öfugt farið.

Samkvæmt nýjustu gögnum frá Eurostat (fyrir árið 2024) verja íslensk heimili um 12,9% af heildarútgjöldum sínum í mat og óáfenga drykki. Hlutfallið er nú sem áður undir meðaltali ESB, sem er um 13,2%. Líkt og fyrr er Ísland á svipuðu róli og Norðurlöndin innan ESB þar sem hlutfallið er 13,1% í Svíþjóð, 12,7% í Finnlandi og 11,8% í Danmörku. Áfram er hlutfallið hæst í Rúmeníu (23,1%) og lægst í Lúxemborg (9,3%), sem endurspeglar lífskjör.

Mikilvægi í ESB-umræðu

Þetta þýðir að þó svo að við Íslendingar förum ekki varhluta af því að verðlag á mat á Íslandi sé með því hæsta í Evrópu, þá er staðan sú að matarútgjöld leggjast svipað þungt á íslensk heimili og á hinum Norðurlöndunum. Það skýrist meðal annars af því að tekjur skipta sköpum í heildarmyndinni, þ.e. eftir því sem tekjur hækka, lækkar hlutfall útgjalda sem fer í nauðsynjar eins og mat. Þess vegna eru hæstu hlutföllin í löndum á borð við Rúmeníu og Slóvakíu, þar sem heimili verja allt að 20–23% ráðstöfunartekna sinna í mat, þó svo verðlag þar sé langt um lægra en hér á landi. Þessi staðreynd er lykilatriði í umræðu um matvælaverð á Íslandi og ekki síður í umræðunni um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Talsmenn ESB-aðildar hafa oft bent á að aukinn innflutningur og afnám tolla gæti lækkað matvælaverð til neytenda. Hins vegar sýna evrópskar tölur að lægra verð tryggir ekki sjálfkrafa lægra útgjaldahlutfall. Í mörgum löndum þar sem matur er ódýrari í krónum talið er hlutfall matarútgjalda einmitt hærra. Ástæðan er einföld: tekjur eru lægri. Þetta undirstrikar að lífskjör ráðast af samspili verðs og launa – ekki öðru hvoru einu og sér.

Horfa þarf á heildarmyndina

Þá þarf einnig að horfa til þess hvað mótar verðlag á Íslandi. Þar vega þættir eins og launakostnaður, flutningskostnaður, smæð markaðarins og dreifingarkerfi þungt. Þessir þættir verða áfram áskorun, hvort sem við erum innan ESB eða ekki.

Auk þess snýr málið að fleiru en verði. Innlend matvælaframleiðsla gegnir mikilvægu hlutverki í byggðamálum og fæðuöryggi. Evrópa hefur á síðustu árum í auknum mæli rætt mikilvægi þess að tryggja stöðugt aðgengi að mat, sérstaklega í ljósi alþjóðlegra áfalla. Í því samhengi er spurningin ekki aðeins hvað matur kostar, heldur líka hvaðan hann kemur og hvernig aðgengi að honum er tryggt þegar upp koma áföll. Í þeirri heildarmynd flækist nokkuð ESB-umræðan.

Hún snýst ekki aðeins um lægra verð í búðinni, heldur um jafnvægi milli neytendahagsmuna, framleiðslu og fæðuöryggis til lengri tíma. Nálgast þarf umræðuna af yfirvegun og í réttu samhengi hlutanna því að öðrum kosti munum við búa við óraunhæfar væntingar um grasið hinum megin við lækinn.

Höfundur er framkvæmdastjóri SAFL.

Skylt efni: Matvæli | verðlag | SAFL

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...

Skreiðarhjallur í Torino
Fréttir 13. október 2026

Skreiðarhjallur í Torino

„Við höfðum mikið að segja, tókum okkar pláss og vöktum gríðarlega athygli,“ seg...

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu
Fréttir 13. október 2026

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands segir of...

Koma öðrum flokki ekki í verð
Fréttir 13. október 2026

Koma öðrum flokki ekki í verð

Gulræturnar eru á leið á markað en sökum tíðarfars verður hlutfall annars flokks...