Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri á skrifstofu samhæfingar í forsætisráðuneytinu, og Sævar Helgi Bragason.
Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri á skrifstofu samhæfingar í forsætisráðuneytinu, og Sævar Helgi Bragason.
Mynd / Vefur stjórnarráðsins
Fréttir 2. júní 2026

Upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Ný upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst er kominn í loftið á Ísland.is. Þar má finna allt efni um almyrkvann, til dæmis hvort gripið verði til takmarkana á umferð og hvaða götur verða lokaðar. Einnig verða þar tenglar á frekari upplýsingar, meðal annars á viðbragðsaðila og markaðsstofur landshluta á almyrkvasvæðinu sem hafa unnið með sveitarfélögum að undirbúningi fyrir almyrkvann.

Á nýju vefnum verður einnig hægt að finna almennar og fræðandi upplýsingar um almyrkvann. Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur og vísindamiðlari verður stjórnvöldum til ráðgjafar varðandi fræðslu og miðlun upplýsinga um almyrkvann og undirbúning stjórnvalda.

Fjöldi manns stefnir að því að njóta almyrkvans 12. ágúst, Íslendingar og erlendir ferðamenn í bland. Því má reikna með álagi á samgöngur, útivistarsvæði og viðbragðsaðila. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins er bent á að íbúar á suðvesturhorni landsins séu í einstakri stöðu til að fylgjast með almyrkvanum og biðlað til þeirra að njóta hans heima og takmarka þannig umverð og stuðla að almannaöryggi. 

Vefurinn verður uppfærður reglulega fram að almyrkvanum. Fólk er hvatt til að fylgjast með þeim leiðbeiningum sem þar birtast til að geta undirbúið sig sem best fyrir daginn. Stýrihópur sem forsætisráðherra skipaði hefur unnið að því að safna upplýsingunum saman.

Skylt efni: almyrkvi

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...