Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Um helmingur bænda stundar vinnu utan bús
Fréttir 4. mars 2026

Um helmingur bænda stundar vinnu utan bús

Höfundur: Þröstur Helgason

Rétt tæpur helmingur bænda innan Bændasamtaka Íslands, sem svöruðu könnun blaðsins, sækja vinnu utan bús eða 49%.

Í fjórum búgreinum sækir meira en helmingur svarenda vinnu utan bús, flestir í hópi geitfjárbænda eða 57%. Í hópi sauðfjárbænda vinna 54% utan bús, 53% hrossabænda og 51% skógarbænda.

Innan annarra búgreina var hlutfall þeirra sem vinna utan bús minna en fimmtíu prósent. Á meðal garðyrkjubænda og svínabænda sem svöruðu vinna samt fjörutíu prósent utan bús. Þó verður að hafa í huga að aðeins fimm svínabændur greiddu atkvæði.

Aðeins þrjú atkvæði bárust frá alifuglabændum en þeir sögðust allir vinna utan bús. Einungis eitt svar barst frá landeldisbændum og tvö frá loðdýrabændum.

Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Bændablaðsins meðal félagsmanna í Bændasamtökum Íslands en þeir eru um 2.600. Um 18% félagsmanna tóku þátt eða 482 talsins.  Könnunin stóð frá 17. – 24. Febrúar.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...