Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Um ágang
Mynd / John Wayne Hill
Lesendarýni 5. júní 2024

Um ágang

Höfundur: Pétur Kristinsson, meðal annars lögmaður.

Í tilefni af umræðu að undanförnu, m.a. greinarskrifum í Bændablaðið, er rétt að vekja athygli á eftirfarandi staðreyndum:

  1. Pétur Kristinsson.
    Skylda sveitarfélags til smölunar ágangsfjár er ekki stjórnvaldsákvörðun heldur lagaskylda. Um er að ræða bein fyrirmæli löggjafans til sveitarstjórna. Skoðanir eigenda ágangsfjárins eru þessu óviðkomandi.
  2. Hvernig sveitarfélag fer með búfé eftir smölun kann að vera stjórnvaldsákvörðun en sú meðferð er landeigendum óviðkomandi og fellir ekki niður skyldu sveitarfélaga til smölunar.
  3. Skylda sveitarstjórnar til smölunar verður ekki felld niður með ákvörðun eða samþykkt sveitarstjórna eða nefnda á þeirra vegum. Sveitarfélög breyta ekki lögum settum af Alþingi.
  4. Ekki skiptir máli hvort lausaganga er leyfð eða bönnuð. Það að lausaganga búfjár sé leyfð veitir mönnum ekki rétt til að beita fé í annarra manna lönd. Hugtakið er skilgreint þannig í lögum um búfjárhald: „Lausaganga er þegar búfé getur gengið í annars manns land í óleyfi.“ Þarna stendur „getur“ en ekki „má“ og setningin endar á orðinu „óleyfi“.
  5. Beitarréttur manns í landi annars manns er takmarkaður eignarréttur sem lýtur sömu reglum og annar eignarréttur. Ef menn eiga ekki slíkan rétt mega þeir ekki beita fé sínu í viðkomandi land.
  6. Hugtakið ágangur þýðir „heimildarlaus beit“.
  7. Það að búfé gangi í annarra manna lönd í óþökk landeigenda er einfaldlega ólögmætt ástand sem ber að rjúfa með þeim hætti sem kveðið er á um í 33. gr. laga nr. 6/1986 sé þess óskað. Eðli máls samkvæmt ber að gera það eins fljótt og auðið er eins og fram kemur t.d. í úrskurði innviðaráðuneytisins frá 18. apríl 2024.
  8. Reglur sem um þetta gilda eru einfaldar og skýrar og samræmast því að á Íslandi er byggt á eignarréttarfyrirkomulagi. Búfjáreigandinn á búféð og ber ábyrgð á því eins og öðrum eignum sínum og landeigandinn á landið og ræður því hvernig með það er farið.
  9. Eins og í öðrum málum þar sem gengið er á rétt manna liggur vandinn hjá gerandanum en ekki þolandanum. Eðlilegt væri því að sveitarstjórnir beindu kröftum sínum að búfjáreigendum en ekki landeigendum. Það mætti gera með þeim einfalda hætti að smala ágangsfé á kostnað búfjáreigenda eins og lögin gera ráð fyrir. Má þá ætla að búfjáreigendur gættu að sér og ágangi myndi linna. Væri vandamálið þar með úr sögunni.
  10. Að lokum er rétt að benda á að flestir sauðfjáreigendur fá greitt sérstaklega úr ríkissjóði fyrir að beita fé sínu eingöngu þar sem þeir hafa til þess leyfi. Samkvæmt vef Hagstofunnar voru 1.429 sauðfjárbú í landinu í árslok 2020 og samkvæmt vef Landgræðslunnar fengu „tæplega 1.500“ greiðslur skv. framansögðu það ár.

Skylt efni: ágangsfé

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...