Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi
Mynd / Pixabay
Skoðun 23. október 2026

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi

Höfundur: Kári Gautason

Nýverið greip ég nýútkomna bók eftir bandaríska höfundinn Annie Jacobsen, en sú bók heitir „Sýklahernaður – sviðsmynd“. Ástæðan fyrir áhuganum á þessu annars leiða viðfangsefni var frétt um það að rannsakandi við rússneska stofnun sem fæst við varnir gegn smitsjúkdómum dó úr „óþekktri lungnabólgu“, sem að sögn var að völdum bakteríunnar Yersinia pestis, en sjúkdómurinn sem hún getur valdið er einnig þekkt sem plágan, eða svartidauði.

Það virðist hafa sloppið fyrir horn og engin þeirra 200 sem settir voru í einangrun hafa fengið pestina (með þeim fyrirvara að líklega segja Rússar ósatt um margt í þessu). Án þess að rekja þessa litlu bók þá byrjar hún illa og endar verr, en það sem hefur setið í mér eftir lesturinn er hugtakið fæðuöryggi og hvernig þróunin hefur verið á Íslandi síðastliðin ár. Það eru nefnilega ekki mörg ár síðan að landið lokaðist nær alveg af og það mun gerast aftur. Vonandi verður það ekki erfðabreyttur sýkill sem sleppur af rannsóknarstofnun en drepsóttir munu koma aftur og þá er vonandi að við höfum lært af faraldri kórónaveiru. Þar nefnilega stöðvuðust ekki aðfangakeðjur þótt þær hafi hökt. Í alvarlegri faraldri t.a.m. og þyrfti ekki dómsdagsatburð líkt og lýst er í fyrrnefndri bók.

Það er alveg ljóst að fæðuöryggi er meira uppi á borðum nú en í langan tíma. Stríð geisar í Evrópu og það hefur breytt meiru heldur en við höfum mörg hver gert okkur grein fyrir. Frændur okkar Svíar fengu dreifildi fyrir nokkru sem heitir „Om krisen eller kriget kommer“ frá almannavörnum þar í landi. Í dreifildinu er á þrjátíu blaðsíðum farið yfir ýmislegt sem sænsk yfirvöld ætlast til af borgurum sínum ef almannavarnaástand eða stríðsástand raungerist. Þar á meðal er að heimili séu byrg af matvælum sem dugi þeim í nokkra daga. Þar eru líka leiðbeiningar um hvernig á að hegða sér verði loftárásir gerðar á Svíþjóð og margt fleira.

Frá því að þjóðaröryggisstefna var sett árið 2016 hefur verið áhersla á fæðuöryggi. Því miður hefur það ekki verið tekið nægjanlega föstum tökum. Sumt hefur verið gert og er það vel, búið er að vinna ýmiss konar kortlagningarvinnu við það að greina hvar tunnustafirnir eru lægstir en það þarf líka að berja í brestina sem uppgötvast. Stór skref í auknu fæðuöryggi hafa verið tekin nú þegar kornþurrkstöðvar og síló eru tekin að rísa víða um land vegna áherslna stjórnvalda á aukna kornrækt. Bændur tryggja fæðuöryggi svo lengi sem þeir geta framleitt mat en til þess þurfa þeir tiltekin aðföng og þá þarf að dreifa matvælum.

Of hægt hefur gengið í því að tryggja það sem mestu máli skiptir. Það er að tryggja lágmarksbirgðir af því sem nauðsynlegt er að hafa. Alvarlegust er staðan þegar kemur að birgðum af eldsneyti, lyfjum og kornvöru. Nokkurra vikna birgðir eru til af þessum aðföngum á hverjum tíma. Þar einfaldlega verður að krefjast þess að betur sé gert. Vissulega kostar fæðuöryggi líkt og allt annað öryggi. Vonandi þarf aldrei að nota birgðir af þessu tagi en mikið óskaplega verður gott að eiga þær ef „krisen eller kriget kommer“.

Höfundur er ráðgjafi.

Skylt efni: Fæðuörrygi | Vinkill

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...