Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Tölum íslensku um matvælaverð
Mynd / ál
Skoðun 29. maí 2026

Tölum íslensku um matvælaverð

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Umræða um möguleg áhrif aðildar Íslands að ESB hefur tekið sig upp aftur nú að loknum sveitarstjórnarkosningum og er orðið algengt stef í orðræðu aðildarsinna að tala um þá verulegu lækkun matvælaverðs sem þeir gera ráð fyrir að muni verða við aðild að sambandinu, en algengasta fullyrðingin er sú að matvælaverð geti lækkað hér um ein 25%.

Eðlilega vekja fullyrðingar sem þessar athygli fólks, enda er um einfalda og aðlaðandi sögu að ræða. Flest okkar myndu taka fagnandi fjórðungslækkun á matarkörfu heimilisins, en því miður er fátt sem styður þessa draumkenndu sýn á framtíð Íslands innan ESB.

Án þess að ég hafi neinn sérstakan áhuga á að rífast um prósentur þá virðist 25% talan vera fengin úr 17 ára gamalli skýrslu sem var svo endurnýtt í skýrslu Hagfræðistofnunar. Við þekkjum hins vegar engin raunveruleg fordæmi fyrir svo mikilli lækkun matvælaverðs, þótt vissulega væri áhugavert að sjá hvernig þetta allt er reiknað út.

Vitað er hins vegar að matvælaverð lækkaði um 10% í Finnlandi við aðild að ESB. Það munar alveg um slíka lækkun en lækkunin verður einhvern veginn ómerkilegri þegar haft er í huga að afurðaverð til finnskra bænda lækkaði um ein 40% á sama tíma. Ekki græddu finnskir bændur á inngöngunni og lækkunin til bænda skilaði sér ekki nema að litlu leyti til finnskra neytenda.

Þá verður að hafa í huga að langstærstur hluti innfluttra matvæla hér á landi er nú þegar tollfrjáls. Hátt í 90% tollskráðra landbúnaðarvara eru tollfrjálsar og innflutningsverð þeirra mun ekki lækka um eina krónu við inngöngu okkar í ESB. Það þarf mjög barnslega trú á góðvild íslenskra heildsala til að ætla þeim að lækka verð á þessum tollfrjálsu vörum frá því sem nú er við það eitt að Ísland gangi í ESB.

Að því gefnu að Ísland taki upp gildandi reglur ESB í landbúnaðarmálum þá myndi innganga hins vegar leiða af sér brottfall markaðsverndar íslenskra landbúnaðarvara. Án áður óþekktra mótvægisaðgerða myndi samkeppnisstaða íslenskra bænda skekkjast mjög og geta þeirra til að keppa við innfluttar mjólkurafurðir, ófrosið kjöt og aðra matvöru, yrði skert til mikilla muna.

Þegar haft er í huga hversu viðkvæmur rekstur margra býla er nú þegar ætti engan að undra að margir bændur eru mjög uggandi yfir tilhugsuninni. Aðildarsinnar þurfa að gera miklu betur en þeir eru að gera nú til að slá á áhyggjur okkar bænda af því að við þessar nýju aðstæður yrði íslenskri matvöru ýtt út af markaðnum, með fyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir íslenskan landbúnað, íslenska bændur og íslenskan matvælaiðnað.

Eins og ég hef sagt áður hér á þessum síðum og annars staðar þá er ég efahyggjumaður þegar kemur að aðild Íslands að Evrópusambandinu, en Bændasamtökin ákváðu á Búnaðarþingi í vor að leggjast í ítarlega greiningarvinnu og meta þar kosti og galla við inngöngu í sambandið. Sú vinna stendur yfir og verður kynnt almenningi þegar henni er lokið.

Ákvarðanirnar um aðildarviðræður og aðild eru stórar, flóknar og erfiðar. Þær kalla á yfirvegaða umræðu þar sem allt er skoðað og allt er rætt. Ódýrar yfirlýsingar um fjórðungslækkun matarkörfunnar eru ekki innlegg í þá umræðu, heldur kosningaloforð.

Ég hef ekki trú á því að matvælaverð muni lækka við inngöngu í ESB í neinu samræmi við óskhyggju aðildarsinna. Hins vegar er það alveg ljóst að sú lækkun matvælaverðs sem þó fengist yrði aðeins fengin með því að lækka afurðaverð til bænda, lækka tekjur bænda og fjölskyldna þeirra og hygla innfluttum landbúnaðarvörum á kostnað innlendra.

Ef það er hin rósrauða framtíð sem aðildarsinnar sjá fyrir sér þá þætti mér drengilegra ef þeir töluðu bara íslensku og segðu það hreint út. Höfundur er formaður BÍ.

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni
Fréttir 24. nóvember 2026

27 milljónir til verkefna á landsbyggðinni

Innviðaráðuneytið úthlutaði 27 milljónum króna til 14 verkefna sem snúa að því a...