Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Næsta skref er að kaupa stærri kopareimingartæki og bæta framleiðsluferlana.
Næsta skref er að kaupa stærri kopareimingartæki og bæta framleiðsluferlana.
Líf og starf 19. október 2022

Tífalda framleiðsluna á 10 árum

Höfundur: Vilmundur Hansen

Eimverk stefnir að því að tífalda framleiðslu sína á viskíi og öðrum sterkum vínum á næstu tíu árum. Samhliða aukningunni ætlar fyrirtækið að tífalda ræktun á byggi. Auk þess sem það stundar tilraunaræktun á kúmeni.

Eva María Sigurbjörnsdóttir, framleiðslustjóri Eimverks.

Eva María Sigurbjörnsdóttir, framleiðslustjóri Eimverks, segir að hugmyndin sé að tífalda framleiðsluna af hreinum spíra á næstu tíu árum. „Það er nógur markaður fyrir vörunni og nóg til af landi til að auka ræktun á því byggi sem þarf til framleiðslunnar.“

Hámarksframleiðsla

Að sögn Evu ræktar fyrirtækið sjálft allt sitt bygg. „Í dag erum við að nota í kringum 100 tonn af byggi til að framleiða 40 þúsund lítra af hreinum spíra. Við þurfum því að auka ræktunina tífalt á næstu tíu árum til að ná markmiðinu um að auka framleiðsluna tífalt eða í þúsund tonn.“ Eimverk var stofnað árið 2009 og fyrstu vörur þess fóru á markað fjórum árum seinna. Vöxtur fyrirtækisins hefur verið hraður og nú er svo komið að það hefur náð hámarksframleiðslu með núverandi tækjabúnaði.

Markaður um allan heim

„Til þess að áformin gangi eftir þurfum við að bæta við okkur tækjum þar sem við erum í dag komin í hámarksframleiðslu með þeim tækjum sem við eigum. Næsta skref er að kaupa stærri kopareimingar- tæki og bæta framleiðsluferlana hjá okkur og skella okkur í að auka framleiðsluna.“

Eva María segir að í dag selji fyrirtækið yfir 90% framleiðslunnar erlendis. „Stærsti markaðurinn okkar er í Evrópu og sérstaklega í Þýskalandi en við erum líka að selja til Kína, Japan og Ástralíu. Við höfum verið róleg við að koma okkur á Bandaríkjamarkað þar sem við höfum einfaldlega ekki getað framleitt nóg til að sinna þeim markaði.“

Tíföld ræktun á byggi

Eimverk á jörðina Bjálmholt í Holtum sem er 270 hektarar að stærð. „Jörðin hentar ekki öll til byggræktar þar sem hún er mikið mýrlendi. Við leigjum Akra af Landgræðslunni í Gunnarsholti til að hafa aðgang að sendnum jarðvegi á móti mýrarjarðveginum í Bjálmholti og svo höfum við einnig aðgang að landi við Læk í Rangárþingi ytra.

Bjálmholt í Holtum. Myndir / Eimverk

Ástæðan fyrir því að við viljum dreifa ræktuninni er til að draga úr áhættunni, því ef það eru þurr sumur virkar mýrarjarðvegurinn vel en í blautum sumrum er betra að rækta í sandi. Þegar ræktunin hefur gengið best hjá okkur erum við að fá 125 tonn af 30 hekturum þannig að við erum að tala um bygg af tæpum 300 hekturum til framleiðslunnar. Auk þess sem við höfum keypt bygg frá Sandhóli og Þorvaldseyri.“

Eimverk kaupir vinnu við þreskingu byggsins en þurrkar það sjálft sem gengur fyrir heitu vatni auk þess sem fyrirtækið á eigin hreinsara og flokkara.

Tilraunaverkefni í kúmenrækt

Eva María segir að auk þess að rækta bygg sé Eimverk með tilraunaverkefni í ræktun á kúmeni. „Í ár fengum við um 700 kíló af óhreinsuðu kúmeni en á síðasta ári töpuðum við allri uppskerunni í vonskuveðri og fræin dreifðust allt í kringum akurinn og ekki itt einasta fræ eftir sem við gátum nýtt.“

Upprunalega fræið í tilrauna- ræktunina tíndi Eva úti í Viðey á Kollafirði í Faxaflóa þar sem það vex villt eftir að það smitaðist út eftir að Skúli fógeti flutti það þangað til ræktunar. Auk þess sem Eimverk hefur notast við finnskt yrki í tilrauninni.

„Byggið sem við notum er allt íslenskt og grunnurinn að öllum spíranum sem við framleiðum en við notum kúmenið í brennivínið.“

Skylt efni: vínframleiðsla

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...