Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Agnes M. Sigurðardóttir og Hreinn Óskarsson.
Agnes M. Sigurðardóttir og Hreinn Óskarsson.
Mynd / EEJ
Lesendarýni 25. október 2022

Þjóðkirkjan svarar kalli um ræktun birkiskóga

Höfundur: Elín Elísabet Jóhannsdóttir, verkefnastjóri fræðslusviðs þjóðkirkjunnar.

Þjóðkirkjan hefur bæst í hóp þeirra sem taka höndum saman varðandi endurheimt skóglendis á Íslandi. Hreinn Óskarsson, fulltrúi Skógræktarinnar, afhenti biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur, fjölda birkifræja til sáningar.

Elín Elísabet Jóhannsdóttir.

Athöfnin fór fram í barnamessu í Bústaðakirkju um miðjan október. Birkifræin koma úr landssöfnun Skógræktarinnar.

Þeim verður dreift til allra skírnarbarna næstu árin með kveðju frá Skírnarskóginum. Á hverju ári eru nokkur þúsund barna borin til skírnar og má því gera ráð fyrir að Skírnarskógurinn vaxi og dafni með sáningu fjölda birkifræja um allt land.

Fjársjóðskista með birkifræjum

Barnamessan í Bústaðakirkju hófst á líflegum píanóleik organistans Jónasar Þóris Þórissonar á meðan fólk á öllum aldri tíndist inn í kirkjuna. Á fremstu bekkjum sátu þau Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ásamt Hreini Óskarssyni, fulltrúa Skógræktarinnar.

Þegar líða tók á stundina drógu umsjónarkonur barnamessunnar fram brúna trékistu. Börnin komu upp að altarinu til þess að sjá hvaða fjársjóð kistan hafði að geyma. Ofan í henni mátti sjá ótal mörg birkifræ.

En hvers vegna voru öll þessi fræ í kistunni? Svarið við þeirri spurningu áttu Hreinn og Agnes.

Þau lýstu því í einföldu máli hversu mikilvægt það er að planta trjám og endurheimta skóglendi á Íslandi. Þau sögðu börnunum einnig hversu duglegt eitt tré væri þegar kemur að því að kolefnisjafna heila mannsævi. Barnið stækkar um leið og birkitréð vex og dafnar. Agnes lýsti því hvernig tréð getur orðið risastórt, miklu stærra en barnið sem sáði því. Hreinn benti börnunum á það að trén sem vaxa í kringum kirkjuna hafi eitt sinn verið pínulítil fræ.

Núna eru þau orðin myndarleg tré sem gefa skjól fyrir veðri og vindum.

Kortið og fræin í umslaginu.

„Hvert barn sem skírt er, fær afhent fallegt kort frá Skírnarskóginum en hvert kort inniheldur u.þ.b. þúsund birkifræ,“ sagði Agnes.

„Við höfum í hyggju að eiga í nánara samstarfi við Skógræktina í framtíðinni,“ bætti hún við. „Við hyggjumst setja af stað verkefni næsta haust þar sem við fáum fermingarbörn um allt land til þess að safna birkifræjum. Þannig getum við skilað Skógræktinni aftur þeim fræjum sem við fengum frá þeim.“

Hreinn sagði þetta vera fallegt innlegg í uppeldi barna að læra að sá fræjum og safna þeim. Þannig læra þau að hlúa að náttúrunni sem er svo mikilvæg og dýrmæt.

Sumar kirkjur munu bjóða foreldrum og forráðamönnum upp á ákveðna staði fyrir sáningu fræjanna og uppvöxt Skírnarskógar en foreldrum eða forráðamönnum hvers barns er í sjálfsvald sett hvar þeir vilja sá fræjunum og rækta sitt birkitré.

Ásta Guðrún Guðmundsdóttir, Steinar Hrafn Höskuldsson og Bjartey Móa.
Bjartey Móa fékk fyrstu fræin

Ásta Guðrún Guðmundsdóttir og Steinar Hrafn Höskuldsson létu skíra dóttur sína í ágúst. Við skírnina hlaut hún nafnið Bjartey Móa. Hún er fyrsta skírnarbarnið sem fær slíka kveðju frá Skírnarskóginum. Þau ákváðu að setja nokkur fræ í garðinn heima hjá sér. Hins vegar ætla þau líka að sá fræjunum uppi í sumarbústað. Reyndar eru tveir sumarbústaðir í fjölskyldunni, annar er í Grímsnesinu en hinn í Árnesinu. Fyrst fræin eru svona mörg er möguleiki á að dreifa þeim víða.

Stóri bróðir, Guðmundur Glói, er orðinn tveggja og hálfs árs. Hann fékk líka kveðju frá Skírnarskóginum með birkifræjum, þótt það sé orðið töluvert langt síðan hann var skírður.

Undir birkitré

Skálholtsútgáfa sér um dreifingu kortanna sem innihalda fræin. Í tengslum við Skírnarskóginn kemur einnig út falleg skírnarbók sem ber nafnið Undir birkitré. Innan á kápu bókarinnar er vasi sem prestarnir geta sett Skírnarskógarkortið í. Bókin er minningabók barnsins og gestabók fyrir skírnarveisluna. Þar má líma myndir af barninu á ýmsum aldursskeiðum, skrifa skemmtilegar og skondnar minningar, geyma sónarmyndina og hárlokk svo fátt eitt sé nefnt. Í henni eru líka fallegar bænir og vers, stuttar biblíusögur og margt fleira. Hönnuður kortsins og bókarinnar er Halla Sólveig Þorgeirsdóttir teiknari.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...