Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Þórður Tómasson í Skógum, höfundur bókarinnar Um þjóðfræði mannslíkamans.
Þórður Tómasson í Skógum, höfundur bókarinnar Um þjóðfræði mannslíkamans.
Á faglegum nótum 4. desember 2017

Þegar dannebrogsmaðurinn mælir Guð

Höfundur: Vilmundur Hansen

Út er komin hjá Sæmundi bókin Um þjóðfræði mannslíkamans eftir Þórð Tómasson í Skógum. Höfundur fjallar hér um þá siði, þjóðtrú, orðfæri og hugmyndir sem tengdust höfði mannsins og höndum hans. Um er að ræða einstakt verk og afar frumlega nálgun.

Blaðið grípur hér aðeins ofan í bók Þórðar þar sem segir frá hreppstjóra sem mældi Guð í spönnum og menn sem læknuðu tannpínu með meyjarpissi og hlandsteini.

Tannpína

„Það er síst úr vegi að doka við hjá tannpínu, svo marga sem hún hefur hrjáð. „Hvað er líf manna? – Háski, böl – höfuðverkur og iðrakvöl, – tannpína, tóbaksleysi,“ segir Kristján Jónsson Fjallaskáld í alþekktri stöku. Ófáir fyrri tíma menn héldu tönnum sínum til hárrar elli og ber víst að þakka harðæti sem var mikill þáttur í matbjörg og sætinda síst völ. Tannskemmdir og tannpína mæddu þó margan, enda tannhirðu ábótavant. Tanndrætti varð víðast illa við komið, að jafnaði langt til læknis að leita. Deyfing við tanndrátt var framan af óþekkt. Ég minnist sérstæðrar gamallar konu frá æsku minni, Ingibjargar Jónsdóttur á Mið-Skála undir Eyjafjöllum. Helgi Jónasson, læknir á Stórólfshvoli, dró úr henni tannir án deyfingar um 1925. „Ég borga þér ekkert fyrir þessar helvítis kvalir,“ sagði Ingibjörg að athöfn lokinni.

Dæmi voru þess að tanndráttur teldist hrossalækning. Eiríkur Ólafsson frá Núpi undir Eyjafjöllum kom um 1920 til snillingsins Jóns Jónssonar, bónda á Seljavöllum, gleðimanns og þjóðhaga, og sat við aflinn er Eirík bar að garði. Eiríkur kvaðst vera kvalinn af tannverk frá einni einstæðri tönn. „Það er auðvelt að ráða bót á því,“ sagði Jón, tók seglbandsspotta, batt tryggilega um veiku tönnina og lausa endann með sama hætti í steðjaaugað. Hann tók síðan glóandi járn úr afli og bar að Eiríki sem við það hrökk undan og tönnin hætti að ónáða Eirík.

Viðleitni til lækningar á tannpínu konu frá byrjun 18. aldar er einstæð og baklandið aftan úr grárri forneskju. Þorbjörg Jónsdóttir, húsfreyja í Tjaldanesi í Saurbæ, var árið 1708 illa haldin af mjög kvalafullu tanna- eða kjálkameini. Maður hennar, Pétur Bjarnason, lögréttumaður (d. 1718), með böggum hildar, greip til örþrifaráðs. Kjálkabein látins manns átti að ráða bót á meini af þessum toga. Pétur kvaddi til tvo menn að grafa upp lík Ingveldar fóstru hans í Staðarhólskirkjugarði og kjálkabein hennar var lagt að kjálka Þorbjargar. Engin saga fer af lækningunni en atburðurinn komst í hámæli og Oddur Sigurðsson lögmaður heimsótti Pétur Bjarnason sem sakamann árið 1709. Hann tók alla ábyrgð á verki, leysti sig undan sök með atfylgi áhrifamanna og 80 ríkisdala greiðslu til Hallbjarnareyrar hospitals.

Enginn hefur lýst lækningu á tannpínu á áhrifameiri hátt en sr. Árni Þórarinsson gerir í ævisögu sinni, skráðri af Þórbergi Þórðarsyni. Alþýðulæknir á Snæfellsnesi er kvaddur til hjálpar stúlku sárkvalinni af tannpínu. Læknirinn gerir smyrsl úr meyjar­pissu og hlandsteini og rjóðrar á tannhold og tannir stúlkunnar. Með illu skal illt út reka, segir gamall málsháttur. Heimilisfólk var rekið í fjár­hús úti á túni sökum kvalaópa sem fylgdu því er lækning var að hrífa. Sr. Árna segist svo frá: „Þegar smurningunni er lokið, tekur stúlkan að hljóða með þvílíkum fádæmum að fólkið í fjárhúsinu grípur báðum höndum sem fastast fyrir eyrun til að deyfa þessa angistarkveinan og er þó samt nóg boðið. En eftir sjö mínútur dettur allt skyndilega í dúnalogn.“ Lækningin leiddi til albata en allar tennur voru lausar um skamman tíma eftir hrinuna.

Mælingar

Maðurinn hefur frá örófi alda miðað við sjálfan sig í mælingum. Allir kannast við faðm, skref og fet. Alin er að upphafi meðallengd frá olnboga fram á vísifingur. Hún skiptist í 24 tommur og þar hefur viðmiðun verið þumlungur, sem er lengd þumalfingurs frá fingurgómi upp í lið. Að þumlungast áfram merkir hægfara göngu. Prjónakonur notuðu mjög mælingar með spönn og mælu. Stuttspönn fæst þegar spenntir eru út þumalfingur og vísifingur, langspönn þegar spenntir eru út þumalfingur og langatöng. Hún samsvarar um einum þriðja af alin. Mæla er frá gómi löngutangar upp á hnúa. Spönn lifir í orðtakinu Ég kemst (eða komst) ekki spönn frá rassi en svo er til orða tekið ef maður er bundinn af einhverju og kemst ekki ferða sinna.

Afi sagnakonu minnar, Arnlaugar Tómasdóttur, gáfaði merkisbóndinn Einar Sighvatsson á Ysta-Skála (1792–1878), braut heilann um margt og fór þar í mörgu sínar eigin götur. Sóknarprestur hans, sr. Björn Þorvaldsson í Holti (d. 1874), lýsti honum á þessa leið: „Þegar Einar dannebrogsmaður og hreppstjóri á Skála er að mæla guð, þá nær hann með faðminn út fyrir báða enda á guði og hann mælir hann í spönnum.“

Arnlaug var mikil prjónakona og léttsvæf. Hún notaði mjög handarmælingar í spönnum og þó eink­um í mælum. Oft var hún búin að prjóna nokkr­ar mælur er aðrir brugðu blundi.

Higsti

Hiksti er eitt af því óþægilega sem manni er áskapað. Ráð til að stöðva higsta er að gera þeim er hann hrjáir snögglega verulega bylt við. Við börn var sagt: Þú hefur sopið á lyfjadallinum eða þú hefur stolið rjóma. Gamalla manna mál var að higsta leiddi af því að einhver væri að tala illa um mann. Þá var ráðið að reyna að geta upp á nafni hans. Tækist það stöðvaðist higstinn. Svipuð trú er vel þekkt á Norður­löndum. Elstu íslenska heimild sem ég þekki er að finna í Biskupaannálum sr. Jóns Egilssonar. Þar segir frá því er Jón Arason biskup bannfærði Daða Guðmundsson í Snóksdal í Hóladómkirkju árið 1549. Sr. Jón segir að daginn þann hafi Daði legið uppi á palli í Snóksdal. „Þá kom svo harður higsti að honum að hann undraðist, og það var úr hófi, svo að hann hugsaði að öndin mundi slíta af sér. Daði mælti þá: „Nú er eg þar að orði sem eg er ekki að borði.“ Higstar við matborð voru ákveðinnar merkingar og fóru eftir aldri þeirra er sátu að borði. Um þetta var fastur formáli: Yngsti mat meiri, elsti menn fleiri, miðlungur mann frá borði. Higsti hjá þeim yngsta boðaði björg í bú, hjá þeim elsta að von væri á nýjum heimilismanni, hjá miðlungi brottför heimilismanns, jafnvel feigð. Af higstum er dregið orðatiltækið að higsta á einhverju en það gerist þegar maður er í vafa um úrræði.

Ég held mig við framburð og skrifa higsti eins og Jón Sigurðsson gerir í Safni til sögu Íslands I. Sr. Jón Egilsson hefur sennilega skrifað higsti.

Nútímamálfræðingar og fræði­menn skrifa hiksti og bendla orðið við hik.“

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur
Fréttir 16. janúar 2026

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur

Vegna rekstrarvanda á undanförnum misserum náði Ístex ekki að standa í skilum vi...

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni
Fréttir 16. janúar 2026

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar...

Mata fær langmest af kjötkvóta
Fréttir 16. janúar 2026

Mata fær langmest af kjötkvóta

Búið er að úthluta tollkvótum fyrir landbúnaðarvörur frá Evrópusambandinu fyrir ...

2025 hlýjast frá upphafi mælinga
Fréttir 16. janúar 2026

2025 hlýjast frá upphafi mælinga

Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga samkvæmt upplýsingum f...

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa
Fréttir 16. janúar 2026

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi nautgripabónda til sex mánaða skilorðsbundi...

Hvað á klukkan að vera?
Fréttir 15. janúar 2026

Hvað á klukkan að vera?

Nú eru í gangi tveir undirskriftalistar á island.is þar sem annars vegar er bari...

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður
Fréttir 15. janúar 2026

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður

Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum hafa verið birt á vef Alþingis. Í þ...

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló
Fréttir 15. janúar 2026

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló

Enn er nokkurt rekstrartap af nautaeldi á Íslandi og samkvæmt rekstraryfirliti R...