Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Tæp fjörutíu prósent telja áframhaldandi búskap ekki tryggðan
Mynd / Úr safni
Fréttir 16. apríl 2026

Tæp fjörutíu prósent telja áframhaldandi búskap ekki tryggðan

Höfundur: Þröstur Helgason

Niðurstöður könnunar sýna að skiptar skoðanir eru meðal bænda um það hvort áframhaldandi búskapur sé tryggður á býlum þeirra þegar þeir hætta sjálfir búskap.

38,5% svarenda segjast ósammála þeirri fullyrðingu, á meðan ríflega þriðjungur tekur undir hana með einum eða öðrum hætti.

Samkvæmt niðurstöðunum eru 16,59% svarenda sammála því að áframhaldandi búskapur sé tryggður á þeirra býli þegar þeir hætta, og 18,83% segjast nokkuð sammála.

Á hinn bóginn segja 27,58% svarenda að þau séu ósammála því að tryggt sé að búskapur haldi áfram á býlinu eftir að þau hætta og 10,09% eru því nokkuð ósammála. Þá vekur athygli að 26,91% svarenda eru óviss um það hvort búskapur sé tryggur þegar þeir hætta. Niðurstöðurnar sýna þannig að töluverður hluti svarenda annaðhvort efast um eða telur óljóst hvort næsta kynslóð taki við búskapnum. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Bændablaðsins meðal félagsmanna í Bændasamtökumn Íslands. Svör bárust frá 446 félagsmönnum, sem eru 20,8%.

Skylt efni: nýliðun | könnun

Skreiðarhjallur í Torino
Fréttir 13. október 2026

Skreiðarhjallur í Torino

„Við höfðum mikið að segja, tókum okkar pláss og vöktum gríðarlega athygli,“ seg...

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu
Fréttir 13. október 2026

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands segir of...

Koma öðrum flokki ekki í verð
Fréttir 13. október 2026

Koma öðrum flokki ekki í verð

Gulræturnar eru á leið á markað en sökum tíðarfars verður hlutfall annars flokks...

Djúp lægð nálgast landið
Fréttir 12. október 2026

Djúp lægð nálgast landið

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við djúpri lægð sem nálgas...

Ráðleggingar frá grasalækninum
Fréttir 12. október 2026

Ráðleggingar frá grasalækninum

Fjölmargar jurtir hafa lækningamátt og hafa verið notaðar í þúsundir ára. Í flen...

Vel sótt Landbúnaðarsýning
Fréttir 12. október 2026

Vel sótt Landbúnaðarsýning

Sýningin Íslenskur Landbúnaður fór fram í Laugardalshöllinni síðustu helgi, 9.-1...

Íslensk klassík með amerískan hatt
Fréttir 12. október 2026

Íslensk klassík með amerískan hatt

Karamellusnúðurinn sem fæst í hverju bakaríi og nær hverri kjörbúð er klassískur...

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði
Fréttir 12. október 2026

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði

Uppsetning nýrrar kyndistöðvar stendur nú yfir á Reyðarfirði. Henni er ætlað að ...