Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Tækniframfarir
Leiðari 4. nóvember 2022

Tækniframfarir

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir, ritstjóri Bændablaðsins

Í ritinu Ræktum Ísland! sem grundvallar landbúnaðarstefnu Íslands, kemur fram að nýir straumar verði ráðandi kraftar í landbúnaði framtíðarinnar.

Guðrún Hulda Pálsdóttir

Í þessum straumum falla landnýting, umhverfisvernd og tæknivæðing í einn farveg. Því fyrr sem íslenskur landbúnaður fellur að þessum straumum, þeim mun betur tekst að efla hann og styrkja. Þar segir einnig að árangursrík landbúnaðarstefna krefjist þess að tekið sé mið af þróun nýrrar tækni og áhrifum hennar á störf bænda. Virkja beri þá þekkingu sem þegar er fyrir hendi með notkun hátækni í ýmsum greinum landbúnaðar og leggja áherslu á að kynna bændum hvað hér sé í húfi.

Við eigum öll að vita hvað er í húfi, hvort sem við erum bændur eða ekki. Miðað við spár um fjölgun mannkyns telur Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) að auka þurfi matvælaframleiðslu um 70% fram til ársins 2050. Um leið er því spáð að landbúnaðarland muni minnka og að takmarkaðar náttúruauðlindir verði fullnýttar. Við þessar aðstæður skiptir sköpum að afrakstur af landbúnaðarframleiðslu aukist án þess að gengið sé of nærri því sem nýta má.

Því er það þjóðþrifamál að auka og bæta landbúnaðarframleiðslu hér á landi á grundvelli vísinda og tækniframfara. Í tölublaðinu er snert á tveimur dæmum beintengdum þessum áherslumálum landbúnaðarstefnunnar.

Nýtt erfðamengisúrval sem nú hefur verið innleitt í kynbótastarf íslensku mjólkurkýrinnar markar þáttaskil í íslenskri nautgriparækt. Um er að ræða gjörbyltingu kynbótakerfisins sem mun stórauka og hraða erfðaframförum. Ávinningurinn er gríðarlegur og nemur tugum milljóna á ári, bætir okkar frábæra mjólkurkúakyn og minnkar framleiðslukostnað. Tryggir enn fæðuöryggi landsins. Annað skref í framförum nautgriparæktarinnar snýr að kyngreiningu sæðis. Sú tækni getur bætt enn frekar kynbótastarf búgreinarinnar, sér í lagi með tilkomu erfðamengisúrvalsins. Heyrst hefur að innan Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins sé unnið að því að skoða þá framþróun sem hefur átt sér stað í þeirri tækni og verið sé að leggja mat á kostnað og ávinning þess að taka slíkt upp hér á landi. Yrði það til þess að bæta enn nákvæmni í kynbótastarfi og framlegð búgreinarinnar.

Íslandi gefst kostur á að taka þátt í framsæknu sænsku plöntukynbótaverkefni sem snýr að því að kynbæta plöntur á háhraða svo þær verði aðlagaðar að einangruðum umhverfisaðstæðum. Í fréttaskýringu blaðsins kemur fram að Ísland er langt á eftir nágrannaþjóðunum í kornrækt, að því er virðist vegna andvaraleysis. Fyrir tilstilli framsækinna eldhuga gefst okkur nú kostur á að stíga inn í einhvers konar tímavél, tæknibyltingu, sem gæti orðið til þess að á innan við áratug yrðum við með í höndunum frambærileg kornyrki fyrir séríslenskar aðstæður. Þetta er ekki síður brýnt umhverfismál en grundvallar fæðuöryggismál að láta raunverulega verða að því að efla kornrækt. Hik er það sama og tap ef ekkert verður gert núna.

Í fregnum af tækninýjungum, eins og háhraðahvelfingu fyrir plöntukynbætur og skilvindu sem kyngreinir sæði, kristallast fyrir okkur að landbúnaður sem framleiðslugrein byggir á beinhörðum vísindum, sem taka ber mark á. Mun minna rými er fyrir tilviljanir og rómantík í heiminum eins og hann er í dag. Fæðuöryggi okkar og komandi kynslóða er í húfi. Umhverfisaðstæður breytast, við því þarf að bregðast. Fólki fjölgar, allir þurfa að nærast. Við verðum að framleiða mat. Vísindasamfélagið og tækniframfarirnar eru lykilþættir í að láta hlutina ganga upp.

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...