Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Heimskautagerðið við Raufarhöfn.
Heimskautagerðið við Raufarhöfn.
Mynd / Aðalsteinn Atli Guðmundsson
Lesendarýni 25. maí 2020

Tækifæri á norðausturhorninu og verkefnið Brothættar byggðir

Höfundur: Charlotta Englund, Nanna Steina Höskuldsdóttir og Ólafur Áki Ragnarsson
Þrátt fyrir að byggðarlögin séu ólík eiga þau það sameiginlegt að störfum hefur fækkað, búskapur hefur víða lagst af og dregið hefur úr þjónustu við íbúa. Þessi byggðarlög hafa því öll verið skilgreind sem „Brothættar byggðir“ og fóru eftirfarandi byggðaeflingarverkefni af stað í kjölfarið: Raufarhöfn og framtíðin 2012, Öxarfjörður í sókn á árinu 2016 og nú síðast Betri Bakkafjörður á árinu 2019.  
 
Verkefnið Brothættar byggðir er ein af þeim aðgerðum Byggðaáætlunar sem er ætlað að aðstoða byggðarlög í erfiðri stöðu.  Í verkefninu hafa tekið þátt tólf byggðarlög eða byggðakjarnar, sem eiga það sameiginlegt að hafa lent í áföllum samhliða breytingum á atvinnuháttum. Verkefnið hefur haft jákvæð áhrif á samfélögin og í mörgum tilfellum orðið til þess að ný störf hafa orðið til og byggðirnar fengið ákveðna endurnýjun. Þá hefur þetta einnig orðið til þess að efla og styðja við nýsköpunar- og frumkvöðlastarf í þessum byggðarlögum. Þegar á heildina er litið eru fjölmörg verkefni sem styrkt eru eða hafa verið styrkt af Brothættum byggðum. Það eitt og sér að íbúar séu að sækja um styrki og nýta allt það fjármagn sem er til ráðstöfunar segir heilmikið, íbúar sjá tækifærin, hugsa í lausnum og sækja fram á við þrátt fyrir að talsverðar hindranir séu til staðar. Því er afar mikilvægt að haldið sé áfram að styðja við þessi byggðarlög með þessum hætti og meira til.  
 
Fá landsvæði eru eins vel til þess fallin frá náttúrunnar hendi að stundaður sé blómlegur landbúnaður, öflug ferðaþjónusta, ræktun af ýmsum toga, auk þess að skammt er á gjöful fiskimið. Það þarf því ekki að koma á óvart að svæðið í heild er þekkt fyrir hágæða matvælaframleiðslu og segja má að það sé ákveðið matarbúr. Þó að talsvert sé um smábátaútgerð, fiskvinnslur og fiskeldi, sláturhús, heimavinnslur og grænmetisræktun af ýmsum toga eru ansi margar auðlindir og vannýtt tækifæri til staðar. Mikilvægi þess að efla og bæta innlenda framleiðslu er farið að vega þungt, sérstaklega þegar horft er til kolefnis- og vistspora.
 
Þessi byggðarlög eru einnig afar vel til þess fallin að „hýsa“ störf án staðsetningar/fjarvinnslu. Á síðustu árum hafa orðið miklar framfarir í tækni og þá ekki síst aðgangur að ljósleiðara og ljósneti. Lagðir hafa verið ljósleiðarar um landið, þvert og endilangt, sem gerir það að verkum að auðvelt er að vinna ákveðin störf í hinum dreifðu byggðum. Á norðausturhorninu er húsnæði til staðar í flestum þéttbýliskjörnum sem býður upp á góða vinnuaðstöðu fyrir starfsmenn í fjarvinnslu. Þá hlýtur reynsla okkar af COVID-19 að verða til þess að stjórnvöld skoði það af alvöru hvort endurskoða beri þá stefnu að flestar stofnanir ríkisins séu á einum stað, þ.e.a.s. á höfuðborgar­svæðinu. 
 
Ferðaþjónustan hefur vaxið mikið og til hafa orðið ný störf sem styrkt hafa byggðina. Unnið hefur verið skipulega í markaðssetningu svæðisins með aðkomu stofnana á svæðinu og hins opinbera. Nýlega var kynntur nýr ferðamáti, svokölluð Norðurstrandarleið (Arctic Coast Way). Markmiðið með leiðinni er að skapa farveg og sérstöðu fyrir þá sem vilja halda sig utan alfaraleiðar og það hefur opnað á ýmsa möguleika þegar kemur að afþreyingu fyrir ferðamenn. Í því sambandi má nefna að þegar þetta er ritað hefur Framkvæmdasjóður ferðamannastaða úthlutað aukaframlagi til uppbyggingar innviða og komu tveir stórir styrkir í hlut verk­efna á Raufarhöfn og Bakkafirði. Þetta er afar mikilvægt innlegg í þá viðleitni sem er til staðar í þessum byggðarlögum og á svæðinu öllu. Sama má segja um aukaúthlutun fjármuna til frumkvæðisverkefna í Brothættum byggðum á árinu 2020 sem boðuð var fyrir fáum dögum og nýtist Öxarfjarðarhéraði og byggðinni við Bakkaflóa.
 
Þá ber að nefna að samhliða því að Bakkafjörður var tekinn inn í verkefnið Brothættar byggðir var gert samkomulag við stjórnvöld um að byggja upp veginn milli Bakkafjarðar og Þórshafnar. Um er að ræða 27 km malarveg. Með því  að klára veginn er komið bundið slitlag á veg  nr. 85 frá Húsavík til Vopnafjarðar. Þá mun nýr Dettifossvegur einnig verða mikil samgöngubót og styrkja ferðaþjónustu svæðisins í heild á ársgrundvelli. 
 
Fyrir þá sem hafa áhuga á frumkvöðlastarfi eða nýsköpun er norðausturhornið afar spennandi kostur þar sem tækifærin leynast víða.
 
Charlotta Englund.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Nanna Steina Höskuldsdóttir.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ólafur Áki Ragnarsson.
 
 

 

Skylt efni: brothættar byggðir

Eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 4. júní 2026

Eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins

Ný skýrsla um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi sýnir fram á að meirihluti...

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár
Fréttir 4. júní 2026

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár

Búvörusamningar hafa verið framlengdir um eitt ár en þeir hefðu annars runnið út...

Minni heimsins
Fréttir 4. júní 2026

Minni heimsins

UNESCO-dagurinn var haldinn hátíðlegur í byrjun maí, en í ár var fjallað sérstak...

Landgræðsluskólinn hefur útskrifað 240 nemendur
Fréttir 4. júní 2026

Landgræðsluskólinn hefur útskrifað 240 nemendur

Á undanförnum mánuðum hefur GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu staðið fyrir vi...

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi
Fréttir 3. júní 2026

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi

Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin í Stykkihólmi dagna 4.-6. júní. Þetta er í...

Ársskýrsla Brothættra byggða: Góður árangur
Fréttir 3. júní 2026

Ársskýrsla Brothættra byggða: Góður árangur

Í nýútgefinni ársskýrslu Byggðastofnunar yfir verkefnið Brothættar byggðir kemur...

Nota langmest innlend áburðarefni
Fréttir 3. júní 2026

Nota langmest innlend áburðarefni

Verðhækkanir á áburðarverði koma lítið sem ekkert við bændur í lífrænni ræktun.

Erfitt að sætta ólík sjónarmið
Fréttir 3. júní 2026

Erfitt að sætta ólík sjónarmið

Verðmæti efnisins sem Ísteka vinnur úr blóði fylfullra hryssna veltir um tveimur...