Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Einkennisbúningur félagsins, sem er blár reiðjakki við hvítar buxur, hvít skyrta og rautt bindi þykir ævinlega hátíðlegur.
Einkennisbúningur félagsins, sem er blár reiðjakki við hvítar buxur, hvít skyrta og rautt bindi þykir ævinlega hátíðlegur.
Mynd / Kolbrún Grétarsdóttir
Líf og starf 18. október 2023

Stórafmæli Félags tamningamanna

Höfundur: Þórdís Anna Gylfadóttir

Félag tamningamanna (FT) hefur verið starfandi í meira en hálfa öld og hefur haft það hlutverk að verja hagsmuni íslenska hestsins.

Félagið hefur í gegnum tíðina talað fyrir sanngirni í allri meðferð hestsins, réttri og góðri tamningu hans og leitt faglegt starf innan hestamennskunnar, m.a. með því að efla og fræða félagsmenn sína, sem og almenning.

50 ára afmæli

Laugardaginn 2. desember nk. í Reiðhöllinni í Víðidal á félagssvæði hestamannafélagsins Fáks mun félagið standa fyrir veglegri afmælishátíð í formi fyrirlestra og sýnikennslu í tilefni 50 ára afmælis Félags tamningamanna. Hátíðarhöldunum var á sínum tíma frestað vegna heimsfaraldursins en nú eru bjartari tímar fram undan og blásið verður til veislu.

Félagið var stofnað 10. apríl 1970 á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Stofnfélagarnir voru 12, en í dag eru félagsmenn um 350 talsins. Pétur Behrens var gjaldkeri fyrstu stjórnar FT og segir að hugmyndin að stofnun félagsins hafi kviknað í litlu herbergi norður á Ströndum. „Ég og Jón Þórðarson vorum við tamningar í Húnavatnssýslu á sjöunda áratugnum. Þar hittum við fyrir tvo aðra unga tamningamenn, þá Reyni Aðalsteinsson og Sigurjón Gestsson. Allir vorum við sammála um að nauðsynlegt væri að stofna félag um sameiginlega hagsmuni tamningamanna, sem þá voru eins konar farandverkamenn sem flökkuðu um landið við tamningar á hrossum,“ segir Pétur.

Félagið stofnað

Úr varð að Pétur sendi póst á alla þá tamningamenn sem þeim félögum kom til hugar og bauð þeim að gerast félagsmenn í Félagi tamningamanna. „Fá svör bárust við bréfinu og þeir sem ekki fengu póst móðguðust og litlu munaði að stofnað yrði annað félag. Af því varð þó ekki. Það var vor í lofti, fram undan var Landsmót hesta- manna á Skógarhólum og fyrsta Evrópumót eigenda íslenskra hesta í Þýskalandi. Þetta voru spennandi tímar,“ segir Pétur aðspurður um stofnun félagsins.

Í dag er formaður félagsins Sylvía Sigurbjörnsdóttir. Auk hennar sitja í stjórn Þórarinn Eymundsson, Mette Mannseth, Rúna Björg Vilhjálmsdóttir, Johannes Amplatz, Fanney Dögg Indriðadóttir og Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir.

Gríðarleg þekking og reynsla

Sylvía segist vera full tilhlökkunar og telur að afmælishátíðin verði viðburður sem enginn áhugamaður um íslenska hestinn megi láta fram hjá sér fara. „Félag tamningamanna samanstendur af fagmenntuðum einstaklingum í tamningum, þjálfun og reiðmennsku.

Innan raða félagsins er mikill og djúp þekking á íslenska hestinum sem okkar fremstu knapar og reiðkennarar munu deila með áhugasömum á afmælishátíð félagsins. Við stefnum að því að halda bæði fyrirlestra og sýnikennslu ásamt öðrum skemmtilegum uppákomum,“ segir Sylvía.

Tamningameistarar mæta

Félagsmenn FT eru útskrifaðir nemendur hestafræðideildar Háskólans á Hólum auk þeirra sem hafa lokið tamningaprófum fyrri ára. Einkennisbúningur félagsins, blár reiðjakki við hvítar buxur, hvít skyrta og rautt bindi, þykir ævinlega hátíðlegur og setur svip sinn á hverja sýningu og keppni.

Æðsta tign félagsins er tamningameistari, eða reiðkennari A, og nú þegar hafa staðfest komu sína fjórir tamningameistarar félagsins sem munu taka þátt í afmælishátíðinni. Það eru þeir Eyjólfur Ísólfsson, Sigurbjörn Bárðarson, Þórarinn Eymundsson og Benedikt Líndal. Einnig munu aðrir afreksknapar mæta til leiks, s.s. Árni Björn Pálsson og Jóhanna Margrét Snorradóttir.

Meginmarkmiðin standa enn

Markmið FT, sem nú hefur verið starfandi í rúmlega 53 ár, hefur alla tíð verið að stuðla að réttri og góðri tamningu hesta. Verkefni félagsins hafa verið fjölmörg í gegnum tíðina en undanfarin ár hefur umræða um blóðmerahald farið hátt sem félagið hefur gagnrýnt og tekið harða afstöðu gegn.

Í tíð félagsins hafa orðið miklar framfarir í reiðmennsku og meðhöndlun hrossa sem og allri aðstöðu og umgjörð. Eins og stofnfélaginn Pétur Behrens komst svo skemmtilega að orði að snarpir vindar hafa blásið en meginmarkmiðin hafa ekki glatast.

Sylvía er þessu sammála og tekur undir að félagið hafi gegnt mikilvægu hlutverki í framgöngu íslenska hestsins í gegnum tíðina. „Það er einnig mikilvægt að félagið sinni sínu hlutverki áfram. Að það standi vörð um íslenska hestinn, hagsmuni hans og sé leiðandi í faglegum aðferðum við tamningu hans og þjálfun. Engu að síður megum við ekki gleyma hvaðan við komum og mikilvægt að halda í þær mörgu góðu hefðir sem fylgja okkar reiðmennsku og umönnun hestsins. Fallegt og gott hugarfar gagnvart hestinum skiptir öllu máli.

Við megum aldrei gleyma hvers vegna við löðuðumst að hestinum til að byrja með, hann hefur svo mikið aðdráttarafl og færir okkur ómælda gleði og sterka tengingu við náttúruna. Það eru forréttindi að fá að vera í kringum þessa tignarlegu og einstöku skepnu,“ segir Sylvía.

Að lokum hvetur hún alla sem tök hafa á að mæta á afmælissýningu félagsins, fræðast um hestinn og heiðra hann.

Skylt efni: Félag tamningamanna

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...