Sigurlína Jóhanna Jóhannesdóttir frá Snartarstöðum 2 við Kópasker hefur undanfarna áratugi komið upp stórri fuglahræðubyggð í æðarvarpinu við bæinn. Hún segir þær ekki fæla varg, en veiti vegfarendum mikla ánægju.
Sigurlína Jóhanna Jóhannesdóttir frá Snartarstöðum 2 við Kópasker hefur undanfarna áratugi komið upp stórri fuglahræðubyggð í æðarvarpinu við bæinn. Hún segir þær ekki fæla varg, en veiti vegfarendum mikla ánægju.
Mynd / ál
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða sem hafa orðið eitt af kennileitum byggðarinnar. Á bak við fuglahræðurnar stendur Sigurlína Jóhanna Jóhannesdóttir.

„Ástæðan fyrir því að ég er með þessar fuglahræður er að hérna er æðarvarp,“ segir Sigurlína í samtali. „Hérna áður fyrr trúðu bændur því að æðarkollur sæju liti og löðuðust að bústöðum manna ef settar væru upp fuglahræður sem fældu varg. Þegar ég tók við þessu æðarvarpi í kringum 1995 byrjaði ég því á að setja upp fuglahræður á víð og dreif, en ég get ekki séð að þær hafi áhrif á vargfuglinn.

Þetta er því meira gert upp á gamanið og eru fuglahræðurnar orðnar ákveðið kennileiti. Þegar ég sá að fólk fór að staldra við fóru fuglahræðurnar að færast nær þjóðveginum með hverju ári. Ég hugsaði með mér að þetta væri gaman fyrir börn sem eru á ferðalagi með foreldrum sínum svo að þau myndu kannski muna frekar eftir Kópaskeri og þau gætu bent á þorpið í næsta landafræðitíma.“ 

„Þessi kerling er að sjóða börn og karlinn sem er með henni heldur á öxi,“ segir Sigurlína um þessar fuglahræður. Hún bendir á að þær haf i orðið fyrir tjóni skömmu áður vegna hesta sem voru á beit. Snartarstaðir 2 eru í baksýn. Myndir / ál

Fékk kambstál í jólagjöf

„Fuglahræðurnar hafa þróast frá því að ég fór að gera þær fyrst og núna eru þær orðnar í kringum 50. Að jafnaði tek ég 30 til 40 fuglahræður inn á veturna og get þá sinnt viðhaldi, en börnin mín hafa gaman af þessu og eru dugleg við að hjálpa mér. Fyrst voru hræðurnar bara úr ónýtum spýtum sem átti að henda og ég notaði helst ekki nýja nagla. Núna er ég farin að bruðla og nota gjarnan kambstál. Einu sinni fékk ég tíu steypustyrktarteina í jólagjöf – hver gefur móður sinni slíka gjöf!?“ segir Sigurlína og hlær

„Kópaskersbúar eru mjög duglegir við að gefa mér föt. Ef þeir þurfa að losa sig við skrautlegar úlpur og buxur fæ ég þetta allt saman. Hausarnir eru úr baujum sem ég tíni í fjörunni. Ég er ekkert fyrir að naglalakka mig, en ég á naglalakk sem ég nota til að mála andlitin.“ 

Vill gera bílaplan

„Myndir af fuglahræðunum hafa birst í erlendum túristabæklingum og kemur fólk gagngert hingað til þess að sjá þær,“ segir Sigurlína. „Ferðamenn sem keyra fram hjá snarstoppa við veginn til þess að taka myndir, stökkva svo aftur inn í bíl og bruna í burtu. Ég er að berjast fyrir því núna að fá bílaplan og hef ég fengið styrk til þess.

Vegagerðin er hins vegar ekkert ginnkeypt fyrir því að sett verði útskot alveg við veginn og segja að ég eigi að gera bílaplan ofar á afleggjaranum. Málið er hins vegar að fólk er bara rétt að stoppa og ég efast um að það vilji keyra hálfa leið upp að bæ. Ég vonast til þess að Vegagerðin samþykki mín rök, en það er ekki svo mikill umferðarþungi hérna þannig að ég efast um að einfalt útskot breyti miklu. Núna eru ferðamenn að stoppa á sjálfum þjóðveginum sem er hættulegt,“ segir Sigurlína. 

„Þetta er póstkassinn okkar og póstburðarmaðurinn stingur bréfunum meðfram barninu,“ segir Sigurlína.

Skylt efni: Kópasker

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...