Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 14. maí 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur fyrir óvæntri spennu og sköpunarkrafti í kringum sig þessa dagana. Framtíðarsýn hans skerpist til muna og ný tækifæri í fjármálum gætu skotið upp kollinum, en gæta þarf þó að, að varfærni er nauðsynleg áður en stór skref eru tekin. Í ástarmálum þarf vatnsberinn að sýna meiri næmni og huga vel að þörfum annarra, stórum jafnt sem smáum. Happatölur: 3, 37, 99

Fiskarnir eru í andlegu jafnvægi og geta horft bjartsýnir fram á veginn, enda er erfiðum kafla í lífinu senn að ljúka og nýtt upphaf bíður. Peningamál þróast hægt en örugglega í rétta átt, ástin blómstrar sem aldrei fyrr og fjölskyldu- og vinabönd styrkjast verulega, sérstaklega þegar fiskurinn deilir tilfinningum sínum af hreinskilni. Hann þarf þó að muna að nýta innsæið til að lesa rétt í aðstæður. Happatölur: 1, 22, 65

Hrúturinn kemur kraftmikill inn í þetta tímabil eftir mikilvæga sjálfsvinnu. Nú er ekki tíminn til að hika, skref fram á við skila meiru en stöðugar vangaveltur. Í samböndum, bæði við sjálfan sig, vini eða ástvini, þarf hann að vera alveg hreinskilinn, bæði við sjálfan sig og aðra, svo að enginn misskilningur eigi sér stað. Það er kannski kominn tími til. Happatölur: 5, 17, 88

Nautið hefur farið í gegnum töluverðar sveiflur undanfarið en nú er mikilvægt að anda djúpt og trúa á ferlið. Það þarf að vinna í sínu innra æðruleysi þegar óróleiki bankar upp á og ekki gefast upp þótt á móti blási, hvort sem er í vinnu eða einkalífi. Það eru mun fleiri sem standa með því en það telur. Opinn faðmur vina og vandamanna kemur á óvart. Happatölur: 1, 18, 24

Tvíburarnir finna mikla þörf fyrir félagsleg samskipti og nýjar hugmyndir streyma til þeirra. Þetta er frábær tími til að tengjast nýju fólki eða endurnýja gömul kynni, en að dreifa kröftum sínum þó ekki of víða. Einbeiting á eitt verkefni í einu mun skila mestum árangri. Í einkalífinu gæti óvænt uppákoma komið skemmtilega á óvart og hresst upp á tilveruna. Happatölur: 7, 14, 32

Krabbinn þarf að huga vel að heimili sínu og innri líðan þessa vikuna. Hann gæti fundið fyrir aukinni næmni fyrir umhverfi sínu, sem gerir það að verkum að ró og næði verða að vera í dagsskipulaginu. Krabbinn þarf ekki að vera hræddur við að setja mörk og segja nei, enda allar tengingar í samböndum aukast ef hann leyfir sér að vera berskjaldaður og sýna raunverulegar tilfinningar. Happatölur: 4, 19, 44

Ljónið þarf að horfa einbeittum augum á langtíma markmið sín. Erfið vinna undanfarinna vikna fer loksins að skila sýnilegum árangri og uppskeran eftir því. Ljónið má þó ekki gleyma að hlúa að eigin áhugamálum sem andleg hvíld frá daglegu amstri. Útivist eða önnur samvera með fjölskyldunni mun einnig veita nauðsynlega endurnæringu. Happatölur: 8, 27, 51

Meyjan þráir eitthvað nýtt og skemmtilegt í líf sitt. Lykilatriðið er að vera óhræddur og alveg maður sjálfur, segja sína skoðun á hlutunum og njóta þess að vera til. Bjartsýni og gleði meyjunnar er smitandi, svo ekki sé talað um hláturinn, en hún á í eðli sínu auðvelt með að draga að sér jákvætt og skemmtilegt fólk. Happatölur: 6, 21, 39

Vogin leitar eftir jafnvægi og sátt í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Samskipti við aðra ganga einstaklega vel um þessar mundir og hún átt auðvelt með að miðla málum þar sem ágreiningur ríkir. Í ástarmálum þarf vogin að muna svolítið að rækta rómantíkina og gleyma ekki litlu hlutunum sem gleðja þann sem henni þykir vænt um. Happatölur: 2, 11, 29

Sporðdrekinn finnur fyrir miklum innri styrk og einbeitni, meira en tilbúinn að takast á við erfið verkefni sem aðrir veigra sér við. Leyndarmál gætu litið dagsins ljós svo sporðdrekinn þarf að vera tilbúinn að horfast í augu við raunveruleikann og þekkja sína stöðu þar. Fjármálin eru á uppleið, eina sem sporðdrekinn þarf að gæta að er andlegt álag. Muna að sofa svolítið. Happatölur: 9, 13, 77

Bogmaðurinn er nú í sínu besta formi þegar kemur að skipulagi og nákvæmni. Hann mun ná góðum árangri ef einstakir hæfileikar hans til að greina flóknar aðstæður fá byr en skal gæta þess að vera ekki of gagnrýninn á sjálfan þig eða aðra; smá sveigjanleiki getur gert kraftaverk. Happatölur: 12, 45, 82

Steingeitin geislar af sjálfstrausti en nú er kjörinn tími til að klára mál sem hafa verið í biðstöðu. Passa þarf að einstrengingsháttur eða stífni skemmi ekki fyrir góðum samstarfsvilja, ekki endilega frá steingeitinni sjálfri en þeim sem hún á í samskiptum við. Í fjármálum er ráðlegt að hugsa til lengri tíma og hvernig þau mál snerta fjölskylduna. Kvöldstund með ástvinum mun gefa steingeitinni hlýju í hjartað. Happatölur: 18, 54, 22

Skylt efni: stjörnuspá

Greiðslustaðan afar erfið
Fréttir 25. september 2026

Greiðslustaðan afar erfið

Sala á vörum Ístex hefur verið góð seinni part sumars. Greiðslustaðan er þó enn ...

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu
Fréttir 25. september 2026

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu

Sláturfélag Suðurlands frestar verðhækkunum haustsins til þess að koma til móts ...

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði
Fréttir 25. september 2026

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði

Framlag stjórnvalda til innleiðingar loftslagsaðgerða í landbúnaði verður skert ...

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá
Fréttir 24. september 2026

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá

Atvinnuvegaráðuneytið hefur kynnt áform um heildarendurskoðun á lögum um velferð...

Heildaruppskera í slöku meðallagi
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppske...

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi
Fréttir 21. september 2026

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands nam 583 milljónum króna á fyrri árshel...

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f