Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 12. mars 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur að hugmynd sem hefur lengi kraumað innra með honum er eitthvað sem hann verður bara að deila. Það ætti hann endilega að láta eftir sér, ekki síst í vinnunni þar sem hún mun vekja meiri athygli en hann gerir sér grein fyrir. Í hjartans málum er vinátta og hlýtt spjall sterkur grunnur að einhverju sem gæti vaxið. Happatölur 3, 13, 42.

Fiskarnir skynja innsæi sitt óvenju vel um þessar mundir og ættu að nýta sér það til hins ítrasta þegar kemur að því að lesa aðstæður bæði í vinnu og einkalífi. Það sem virðist lítið mál í fyrstu gæti reynst mikilvægt síðar. Í ástinni er nærvera og hlýja líklegust til að opna hjörtu – og þar má einnig nýta innsæið. Happatölur 5, 67, 88.

Hrúturinn finnur vel, og veit innra með sér að nú er ekki tíminn til að sitja lengi yfir sömu spurningunni. Hann hefur undanfarna daga velt ýmsu fyrir sér í vinnu og samböndum, en nú bendir margt til að skref fram á við skili meira en frekari vangaveltur. Hann verður að vera hreinskilinn, bæði við sig og sína nánustu. Líkaminn svo á hreyfingu og ferskt loft. Happatölur 1, 87, 18.

Nautið veit betur en flestir að stundum þarf einfaldlega að halda ró sinni meðan hlutirnir raðast. Næstu dagar minna það á að þolinmæði skilar óvæntum árangri. Nautið hefur staðið sig ágætlega við að setja sjálft sig í fyrsta sæti sl. viku – loksins, og skal halda þeirri stefnu. Happatölur 44, 12, 28.

Tvíburinn finnur að samtöl og tilviljanakennd spjöll geta leitt hann á nýjar brautir um þessar mundir. Það sem byrjar sem létt spjall gæti þróast í hugmynd sem vert er að fylgja eftir. Í hjartans málum er hreinskilni einfaldlega besta leiðin áfram og tvíburinn má vera viss um að hans kærasta fólk elskar hann alveg jafn mikið og djúpt. Happatölur 3, 1, 7.

Krabbinn skynjar betur en margir að smáatriðin segja oft stærri sögu. Með það í huga ætti hann að beina huganum að því hvað skiptir í raun máli í starfi eða samstarfi. Í ástinni skapast falleg stund ef hann leyfir sér að vera aðeins opnari en venjulega – eða í raun taka annan vinkil en vanalega. Sjá málin út frá fleiri hliðum. Happatölur 11, 54, 22. vikur.

Ljónið finnur að athyglin leitar til þess, jafnvel þegar það reynir að leyfa öðrum að skína. Þetta gæti þó ljónið nýtt öðrum til uppgangs, en einnig hlotið verðskuldað hrós fyrir. Þannig win-win því ljónið þarf hrós. Í ástarmálum verður léttleiki og smá húmor í fyrirrúmi næstu vikur. Happatölur 48, 22, 25.

Meyjan veit manna best að skipulag getur bjargað heilmiklu þegar dagarnir verða þéttir. Þessa dagana gæti hún þó uppgötvað að smá sveigjanleiki í vinnu skilar jafnvel betri árangri, en hún verður að gæta þess að láta aðalatriðin ekki fara fram hjá sér. Í hjartans málum nægir stundum lítið merki um umhyggju til að breyta miklu. Happatölur 44, 14,2.

Vogin finnur að jafnvægið sem hún sækist alltaf eftir er smám saman að færast nær. Ýmislegt mun ganga betur en hún hefur þorað að vona, ekki síst vegna þess að hún er – og á að vera dugleg við að þiggja aðstoðina sem hún annars veitir öðrum. Í ástinni er gott að segja hlutina eins og þeir eru, sérstaklega ef leysa þarf erfið mál. Happatölur 15, 66, 86.

Sporðdrekinn veit manna best að þessar vikurnar ætti hann að taka af skarið í málum hjartans. Hann hefur lengi fundið að einhver spenna liggur í loftinu. Ef hann treystir innsæinu og talar skýrt – gæti margt skýrst, ekki síst í ljósi þess hvernig tunglstaðan er á himni. Happatölur 22, 42, 11.

Bogmaðurinn finnur að hugurinn leitar víðar en venjulega og nýjar hugmyndir kvikna þar sem hann átti síst von á. Í vinnu gæti þessi forvitni reynst dýrmæt. Í ástarmálum skilar einlægni og smá ævintýraþrá sér betur en of mikil alvara. Happatölur 57, 5, 41.

Steingeitin veit að árangur kemur sjaldan án þolinmæði og þessa dagana sér hún merki þess að sú vinna sé að skila sér. Verkefni í vinnu gæti tekið skýrari stefnu. Í einkalífinu skiptir traust meira máli en dramatískar yfirlýsingar. Einhver er óviss um tilfinningar hennar og gott væri að koma þeim á hreint. Happatölur 12,24,1.

Skylt efni: stjörnuspá

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...