Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Stjörnuspá vikunnar
Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. mars 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn mun glíma við einhverja óværð eða óværu jafnvel á næstunni. Honum er ráðlagt að hlúa að sér eftir fremsta megni og hafa varann á. Öllu skal fara að með gát því ýmislegt getur farið miður ef hann hefur ekki augun hjá sér. Ekki taka neinar stórar ákvarðanir næstu daga. Happatölur 37, 3, 99.

Fiskurinn getur nú notið lífsins, öruggur með sig og ánægður. Mikil lukka er í kortunum og hjólin fara að snúast æ hraðar í átt að lausnum og lokum stórra verkefna – sama í hvaða formi þau eru. Fiskurinn má samt ekki gleyma fólkinu sínu þó hann sé miðpunktur lífsins um þessar mundir. Happatölur 65, 22, 1.

Hrúturinn hefði gott af því að leggja land undir fót hvort sem er innanlands eða utan og hlúa að sjálfum sér. Hann vill sitja og standa eftir því sem hann telur sína nánustu vilja, en því miður hefur hann ekki endilega rétt fyrir sér í þeim efnum. Ágiskanir eru aldrei af hinu góða. Happatölur 43, 4, 65.

Nautið þarf enn og aftur að reyna að rífa sig í gang þegar kemur að líkamsrækt og viðlíka aðhaldi. Nautið hefur þó staðið sig ágætlega þegar kemur að því að setja sjálft sig í fyrsta sæti, og skal halda því áfram. Það má hvílast og safna kröftum. Bara muna að standa stundum upp. Happatölur 8, 18, 91.

Tvíburinn á von á mikilli lukku um næstu mundir, mögulega í formi peninga eða veraldlegs auðs. Hann skal gæta vel að því að halda þeirri gleði helst fyrir sig sjálfan, a.m.k. eftir bestu getu því einhverjir ásælast feng hans. Máltækið, „Ekki eru allir viðhlæjendur vinir“, á hér vel við. Happatölur 16, 3, 78.

Krabbinn þarf að staldra við núna og líta í eigin barm. Er hann í alvöru á þeirri leið í lífinu sem hann kýs helst? Hvað myndi gerast ef hann kúventi heiminum eins og hann kannast við hann og hæfi ný ævintýr? Er einhverju að tapa? Er kannski allt að vinna? Happatölur 16, 44, 58.

Ljónið finnur hvernig það eflist með degi hverjum. Einhver lægð og vanlíðan hefur umlukið hann, en er nú óðum að hverfa á braut. Ljónið þarf umfram allt að hlúa að sjálfum sér en gleyma þó ekki sínum allra nánustu, þeim sem gera í raun lífið þess virði að lifa því. Happatölur 4, 89, 16.

Meyjan er óðum að stíga á fætur og taka þau skref sem henni þykir skynsamlegust með framtíðina í huga. Henni er bent á að taka sem flest skrefin um þessar mundir því stjörnurnar munu ýta undir og tvíefla allt sem ákveðið er og unnið er að á næstu dögum. Happatölur 1, 2, 14.

Vogin finnur hvernig hún er loksins að komast á þann stað í lífinu sem henni er ætlað. Eða það er að segja, þar sem hún veit að hún getur látið ljós sitt skína í allar áttir. Fyrir þær vogir sem efast er gott að trúa á vegferð sína hingað til, stöðu stjarnanna og hið innra sjálf. Þú ert á réttum stað! Happatölur 62, 13, 15.

Sporðdrekinn er eitthvað órólegur og hefur verið um nokkurt skeið. Það er lítið við því að gera nema að setjast niður í rólegheitunum, e.t.v. með heitan drykk, penna og blað og skrá hjá sér hvað er að valda ama. Einnig hvort það sé nokkuð svo mikið stórmál að ekki sé hægt að leysa það með svolitlum samræðum. Happatölur 88, 28, 90.

Bogmaðurinn ætti að taka einhver skref í átt að eigin hamingju, eða því sem hann álítur að gefi sjálfum sér gleði og ró. Oft eru þetta minni skref og auðveldari en virðist og bogmanninum allir vegir færir ef hann einungis trúir á að hlutirnir takist. Happatölur 26, 14, 7.

Steingeitin þarf að gæta að heilsunni, bæði andlegri og líkamlegri. Nú er mikil flensutíð í þjóðfélaginu eins og oft á þessum árstíma, en einnig vill andleg heilsa hrapa þegar orkan í kringum mann er ekki há. Steingeitinni er ráðlagt að skríða undir teppi með bók. Happatölur 66, 46, 23.

Skylt efni: stjörnuspá

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...

Gróðurhúsarækt enn öflug
Fréttir 31. ágúst 2026

Gróðurhúsarækt enn öflug

Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar snemma í vor var samþykkt tillaga um stof...

Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda
Fréttir 31. ágúst 2026

Aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna framkvæmda

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að heildarlosun gróðurhúsalofttegunda hafi ...

Yfir 700 þúsund seiði afhent í ágústmánuði
Fréttir 31. ágúst 2026

Yfir 700 þúsund seiði afhent í ágústmánuði

Í ágústmánuði, sem er nú senn á enda, hefur Thor landeldi í Þorlákshöfn afhent u...

Nýr starfshópur um ferjuáætlun
Fréttir 31. ágúst 2026

Nýr starfshópur um ferjuáætlun

Nýr starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar hefur hafið störf. Hópnum er ætlað...

Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026
Fréttir 31. ágúst 2026

Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2026

Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum fr...

Umfangsmiklar breytingar yrðu á  stuðningskerfi landbúnaðar við ESB-aðild
Fréttir 28. ágúst 2026

Umfangsmiklar breytingar yrðu á stuðningskerfi landbúnaðar við ESB-aðild

Ný áfangaskýrsla um endurskoðun stuðningskerfis íslensks landbúnaðar dregur upp ...

Veikindi í hestum á Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð
Fréttir 28. ágúst 2026

Veikindi í hestum á Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð

Veikindi komu upp í hrossum danska landsliðsins á nýafstöðnu Norðurlandamóti ísl...