Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Spínatfyllt lambalæri eða hryggur og steiktar rauðrófur með geitaosti
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 17. desember 2021

Spínatfyllt lambalæri eða hryggur og steiktar rauðrófur með geitaosti

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson

Að rúlla lambinu upp með fyllingunni er sérlega hátíðleg leið til að elda lambalærið – eða hrygginn – og það þýðir að þið fáið frábært bragð í hverjum bita.  Til að fá besta bragðið skuluð þið fylla lambið daginn áður en þið steikið það. Skreytið lambakjötið með nokkrum af sömu kryddjurtunum úr fyllingunni, ef vill. Gott er að nota úrbeinað kjöt.

Spínatfyllt lambalæri eða hryggur
  • 1/3 bolli  ferskt eða frosið spínat
  • 3 meðalstór hvítlauksrif, afhýdd
  • 1 bréf  fersk steinseljublöð
  • 1/2 bréf  fersk myntulauf
  • 1 msk.  saxað ferskt rósmarín
  • 1 msk.  Dijon sinnep
  • salt og nýmalaður svartur pipar
  • 3 msk. extra virgin ólífuolía
  • 1 stk. beinlaust lambalæri eða úrbeinaður hryggur
  • 1 bolli kjúklingasoð
  • 1/4 bolli þurrt hvítvín

Forsjóðið spínatið og setjið strax í kalt vatn. Látið kólna í fimm mínútur. Kreistið allan vökva úr.

Blandið við fínt saxaðan hvítlauk, steinselju, myntu, rósmarín, sinnep, 3/4 tsk salt og 1/4 tsk svartur pipar. Bætið ólífuolíu út í og vinnið í þykkt deig. Leggið kjötið flatt og þurrkið með pappírshandklæði. Klippið umframfitu af.  Ef það eru hlutar sem eru miklu þykkari en aðrir, jafnið þá þykktina út með hnífi.  Bankið kjötið létt með kjöthamri, ef þarf, til að jafna það enn frekar og gera það nokkurn veginn ferhyrnt í lögun. Kryddið létt með salti og pipar.

Smyrjið kryddjurtamaukinu yfir lambið og notið fingurna til að vinna það inn í hvaða rifur sem er. Byrjið að rúlla lambinu þétt upp og passið að rúlla kjötinu svo sneiðar skerist þvert yfir. Bindið rúlluna þétt með eldhúsgarni, með eins tommu millibili, eða stingið með grillspjótum til að halda öllu saman. Til að fá þéttara form, bindið steikina eftir endilöngu með tvinna.  Ef eitthvað er eftir af kryddjurtum á vinnuborðinu, nuddið því utan á lambið. Pakkið lambinu vel inn í plastfilmu og kælið í að minnsta kosti 8 tíma og allt að sólarhring.

Látið lambið standa við stofuhita í um klukkustund áður en það er steikt. Á meðan er grind sett í miðju ofnsins og hann hitaður í 180 gráður.

Takið lambið og setjið á litla, eldfasta steikarpönnu og steikið þar til hitamælir sem stungið er í miðju kjötsins sýnir 58-63 gráður sem er bleikt en gerið ráð fyrir að hitinn geti hækkað um allt að 10 gráður. Eldunin ætti að taka 45 til 80 mínútur, en byrjið snemma að athuga hitann. Flytjið yfir á skurðbretti, tjaldið yfir með álfilmu og látið hvíla í 20 til 30 mínútur.

Á meðan, blandið kjúklingasoðinu og víninu saman á steikarpönnunni.  Látið malla við meðalhita, skafið upp alla pönnuskánina og hrærið oft þar til vökvinn hefur minnkað aðeins, í um það bil fjórar mínútur.

Skerið lambakjötið í þykkar sneiðar, klippið garnið í burtu og setjið á fat. Bætið safanum sem eftir er á skurðarbrettinu á steikarpönnuna.  Sigtið sósuna og kryddið eftir smekk með salti og pipar. Berið lambið fram með soðinu eða jólasósunni.

Steiktar rauðrófur með geitaosti og kryddjurtum

Sætar ristaðar rófur passa saman við bragðmikinn geitaost og kryddjurtir í þessu glæsilega salati. Prófið að nota ýmsar rófur – það gerir diskinn miklu fallegri og rétturinn mun líka bragðast betur.

  • 6 stk. rauðrófur (300 g)
  • 1 tsk. saxað ferskt timjan
  • 1 tsk. saxaður ferskur graslaukur
  • 2 msk. extra virgin ólífuolía
  • Salt og nýmalaður pipar
  • 100 g ferskur geitaostur, mulinn

Forhitið ofninn í 200 gráður.

Vefjið rófunum inn í álpappír – hverri fyrir sig – og steikið þar til þær eru mjúkar þegar gaffli er stungið í þær í um klukkustund.

Þegar þær hafa kólnað, afhýðið og setjið í skál.

Blandið saman timjan, graslauk og ólífuolíu í sérstakri skál. Dreypið ólífuolíu- og jurtablöndunni yfir rófurnar, kryddið með salti og pipar og toppið með muldum geitaostinum. Berið fram strax.

Súkkulaði í rjómasprautu

Þessi súkkulaðimús er léttari en loft, búin til með aðeins fjórum hráefnum og sett í rjómabrúsa.

Súkkulaði er oftast brætt í vatnsbaði, það er skál sem er sett yfir sjóðandi vatn þannig að gufan ein hitar botninn á pönnunni. Þessi mús er ekki gerð með þeim hætti, þar sem töluverðum vökva er bætt við súkkulaðið til að búa hana til.

  • 227 grömm 54% súkkulaði, smátt saxað
  • 113 grömm af kaffi, við stofuhita
  • 113 grömm af vatni
  • 43 grömm af sykri
  • Stafræn eldhúsvog
  • 1 lítra rjómaþeytari
  • 1 N2O (nituroxíð) hleðslutæki (gasáfylling)

Búið til ísbað með því að fylla stóra skál af ís og vatni.

Bætið nægu vatni í steikarpönnu þannig að um þrír sentímetrar nái upp á hliðina. Látið suðuna koma upp við meðalhita.

Blandið súkkulaðinu, kaffinu, vatni og sykri saman í miðlungsstóra málmskál og setjið yfir sjóðandi vatnið. Hrærið af og til þar til súkkulaðið er næstum alveg bráðið og sykurinn er uppleystur, í fjórar til fimm mínútur.  Takið af hellunni og setjið skálina í ísbaðið. Þeytið þar til blandan nær 30 gráðum og er eins og þungur rjómi, í tvær til þrjár mínútur. Hellið blöndunni í rjómaþeytarann.  Ekki fara yfir hámarksfyllingu.

Fyllið rjómaþeytarann með einu hleðslutæki. Hristið lóðrétt 16 til 20 sinnum. Setjið til hliðar í eina mínútu. Hvolfið og dreifið í litlar skálar eða martini-glös. Berið fram strax.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...