Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Ylrækt
Ylrækt
Leiðari 16. ágúst 2024

Slök frammistaða

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir, ritstjóri

Í þessu tölublaði Bændablaðsins er fjallað um stóran rekstrarþátt ylræktarframleiðenda, koltvísýring, og þá markaðsráðandi stöðu sem eitt fyrirtæki í aðfangakeðjunni býr að.

Fyrir hefðbundið garðyrkjubú í ylrækt má varlega áætla að 12–15 prósent af föstum kostnaði fari í þennan þátt framleiðslunnar. Hann er þriðji stærsti kostnaðarliðurinn á eftir launum starfsmanna og raforku. Koltvísýringur er grundvallarþáttur þegar rækta á heilbirgða og afkastamikla plöntu. Framleiðslan stendur og fellur með því að koltvísýringur sé til staðar.

Aðeins eitt fyrirtæki, Linde Gas, útvegar bændum þessi aðföng. Markaðsráðandi staða þess hér á landi gerir það að verkum að garðyrkjuframleiðsla á Íslandi er háð því að fyrirtækið standi undir hlutverki sínu og skyldum. Linde Gas leigir út gastanka með þeim skilyrðum að koltvísýringurinn sé keyptur frá þeim. Þrátt fyrir að bændur lúti þessum kröfum, og gangist undir sífelldar verðhækkanir á bæði leigu og listaverði á koltvísýringi, hafa þeir samt þurft að þola viðvarandi takmarkanir og gloppótta afhendingu á vörunni. Þetta hefur haft bein áhrif á afköst og rekstur garðyrkjustöðva og þar með framboð grænmetis í verslunum.

Þessi einokun nær út fyrir framleiðslu matvæla hér á landi. Sjúkrahús landsins eru víst einnig háð fyrirtækinu um súrefni. Þannig hefur ríkið engan möguleika á að bjóða út innkaup á súrefni því Linde Gas á tankana og aðrir aðilar eiga því ansi erfitt um vik að komast inn á markaðinn.

Linde Gas er í markaðsráðandi stöðu hér á landi, samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá árinu 2013, en fyrirtæki í slíkri stöðu hafa efnahagslega styrkleika til að geta hindrað virka samkeppni á þeim markaði sem máli skiptir og getur það starfað án þess að taka tillit til viðskiptavina og neytenda samkvæmt samkeppnislögum.

Misnotkun á markaðsráðandi stöðu er bönnuð. Orðrétt segir í lögunum að misnotkun geti falist í því að: a) beint eða óbeint sé krafist ósanngjarns kaup- eða söluverðs eða aðrir ósanngjarnir viðskiptaskilmálar settir, b) settar séu takmarkanir á framleiðslu, markaði eða tækniþróun, neytendum til tjóns, c) viðskiptaaðilum sé mismunað með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og samkeppnisstaða þeirra þannig veikt, d) sett sé það skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendurnir taki á sig viðbótarskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt viðskiptavenju.

Linde Gas er í fullri eigu alþjóðlegrar risasamsteypu og hefur fyrirtækið verið rekið hér á landi með gasalegum hagnaði undanfarin ár. Lætur nærri að hagnaður sé um þrjátíu prósent af veltu og hafa arðgreiðslur til eigenda verið afar ríflegar, eða þrír milljarðar króna á síðustu fimm árum.

Fyrirtækið hefur yfir að ráða einu virku kolsýruauðlind landsins. Á Hæðarenda í Grímsnesi er hægt að vinna nær hreina kolsýru úr heitu vatni sem nóg er af. Slíkum auðlindum þarf að sinna af myndarskap og heilindum en einhver hörgull virðist vera á vilja eða getu fyrirtækisins til að halda vel utan um innviðina. Samkvæmt bóndanum á Hæðarenda gætu náttúrugæðin með góðu móti framleitt ríflega landsþörf af koltvísýringi. Fyrirtækið hefur hins vegar réttlætt aukinn innflutning, og tilheyrandi verðhækkanir sem þeim fylgja, með erfiðleikum við framleiðsluna í Hæðarenda.

Ekki gagnrýndu allir viðmælendur blaðsins verðskrá fyrirtækisins. En auðheyrt er að garðyrkjubændur eru langþreyttir á gloppóttri afhendingu vöru, sem þeir eru nú þegar búnir að samþykkja að greiða fyrir og þeirri staðreynd að hegðun eins fyrirtækis gagnvart þeim geti haft bein áhrif á framboð og gæði íslenskra garðyrkjuafurða.

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f