Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Í vinnslusal sláturhúss sem tekið var í notkun í Noregi í síðasta mánuði.
Í vinnslusal sláturhúss sem tekið var í notkun í Noregi í síðasta mánuði.
Mynd / Aðsendar
Fréttir 16. október 2025

Slátrun hafin á ný í Guðbrandsdalnum

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Í Otta í Guðbrandsdalnum var nýtt sláturhús og kjötvinnsla tekin í notkun í september. Sveitarfélög og bændur á svæðinu löðuðu til sín einkaaðila eftir að samvinnufélagið Nortura lokaði sínu sláturhúsi í Otta fyrir nokkrum árum.

Terje Wester er framkvæmdastjóri sláturhússins og kjötvinnslunnar, sem nefnist Dalir Kjøtt. „Við erum staðsett í miðju Noregs milli Oslóar og Þrándheims. Í héraðinu er öflug framleiðsla á nauta- og lambakjöti,“ segir Wester. Við brotthvarf Nortura árið 2019 hafi stórt svæði verið fjarri næsta sláturhúsi og mörg störf glatast. „Þegar það gerðist kom sveitarstjórinn fram í fjölmiðlum og sendi hvatningu til aðila í kjötiðnaðinum og sagði að tekið yrði afar vel á móti þeim,“ segir Wester.

Terje Wester, framkvæmdastjóri Dalir Kjøtt.
Bændur hluthafar í félaginu

„Við fórum að kanna fýsileika sláturhússins árið 2020 og frá upphafi nutum við mikils stuðnings.“ Heimsfaraldur, stríð og verðbólga hafi hins vegar valdið töfum og eitt fyrirtækjanna sem tók þátt í undirbúningsvinnunni dró sig út.

Fyrirtækið Jæder, sem er stór aðili í kjötvinnslu, hafi hins vegar fylgt verkefninu til enda og er nú 95 prósent eigandi að Dalir Kjøtt. Þá eru rúmlega 500 bændur og einstaklingar í nágrenninu sem eiga saman fimm prósent. „Fyrir Jæder skipti miklu máli að finna fyrir öflugum stuðningi úr héraðinu, bæði frá sveitarfélaginu og bændum, enda áhætta fyrir eitt fyrirtæki að leggjast í svo mikla fjárfestingu.“

Sveitarfélögin eiga fasteignirnar

Þar sem Nortura vildi ekki selja sláturhúsið sitt undir nýja starfsemi komu sveitarfélögin að því að kaupa nýja lóð sem sláturhúsið leigir. Þá hafi verið stofnað félag sem byggði og á fasteignirnar þar sem fjögur sveitarfélög deila 45 prósent eignarhluti á móti 55 prósent hlut Jæder. Rekstur sláturhússins er í höndum Dalir Kjøtt, sem leigir allar fasteignirnar af áðurnefndu félagi.

„Í þessum hluta Noregs hafa mörg iðnfyrirtæki hætt starfsemi á undanförnum þremur áratugum. Því skortir atvinnu, en landbúnaðurinn stendur vel. Þetta er sennilega stærsta fjárfesting í atvinnulífinu hérna í þrjátíu ár og því mikilvægt fyrir alla sem búa á svæðinu.“

Rekjanleiki og ólíkir gæðaflokkar

Aðspurður hvað skilji Dalir Kjøtt frá öðrum sláturhúsum í Noregi segir Wester að langflest þeirra séu byggð á áttunda og níunda áratugnum, fyrir utan eitt sem var tekið í notkun árið 2010. Á undanförnum áratugum hafi verið mikil tækniþróun í framleiðsluaðferðum sem gefi Dalir Kjøtt færi á að skila af sér hráefni af bestu mögulegu gæðum. Enn fremur gefi tæknin færi á meiri dýravelferð.

Wester segir Dalir Kjøtt miða við að ekki þurfi að flytja sláturgripi í meira en tvo klukkutíma, en flestir bændur sem nýti sér þjónustu sláturhússins búi í minna en klukkutíma fjarlægð. Áður hafi næstu sláturhús verið í þriggja til fimm tíma akstursfjarlægð. Dalir Kjøtt slátrar sauðfé og nautgripum og stefnir að því að ná fimm prósent markaðshlutdeild í framleiðslu slíkra afurða í Noregi. Vörurnar frá Dalir Kjøtt verða ferskt og óunnið kjöt.

Viðskiptavinir Dalir Kjøtt geta haft vissu um að kjötið á allt uppruna sinn á afmörkuðu svæði, þó svo að almennt sé ekki hægt að rekja það niður á einstaka bæi. Sláturhúsið vinnur jafnframt í samstarfi við smásöluaðila að því að bjóða kjöt af ólíkum gæðaflokkum. Wester hefur starfað í þessum bransa allan sinn starfsferil og hann segir að á undanförnum árum séu viðskiptavinirnir farnir að gera sterkari kröfu um að vita uppruna kjötsins og að dýravelferð sé sinnt. Það gefi Dalir Kjøtt ákveðið forskot á aðra framleiðendur sem ýmist hafa ekki aðstöðu eða áhuga á að bæta rekjanleika.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...