Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Kristján Óttar Eymundsson við mælingar á síðsumarsýningu á Hólum.
Kristján Óttar Eymundsson við mælingar á síðsumarsýningu á Hólum.
Á faglegum nótum 28. apríl 2023

Skráningar á kynbótasýningar vorsins

Höfundur: Halla Eygló Sveinsdóttir, ráðunautur í hrossarækt.

Opnað verður á skráningar á kynbótasýningar 4. maí. Skráning og greiðsla fer fram eins og síðustu ár í gegnum heimasíðu RML www.rml.is en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum.

Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar. Nánari leiðbeiningar varðandi skráningar er að finna á heimasíðu RML. Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umsjónarmaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netföngin halla@rml.is og hross@rml. is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umsjónarmenn hrossa til að skrá tímanlega.

RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við og sameina sýningar ef þess gerist þörf. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist, sem eru 30 hross.

Hér að ofan má sjá sýningar-áætlun vorsins og hvenær eru síðustu skráningadagar. Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar, sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Sýningargjöld og fleira

Verð fyrir fullnaðardóm er 39.350 kr. en fyrir sköpulagsdóm/hæfileikadóm 30.000 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð og greiðsla framkvæmd, birtist hrossið strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna.

Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt með tölvupósti fyrir kl. 16.00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku á netfangið hross@ rml.is.Endurgreitt er 22.500 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 17.200 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:
  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA- greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt.
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar og skráning liggi fyrir í WorldFeng.

Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa, og uppfylla ekki þessi skilyrði, verður vísað frá sýningu strax hjá mælingamanni án undantekninga. Sýningargjald er ekki endurgreitt í slíkum tilfellum.

Ef þess er nokkur kostur þá er fyrir alla aðila farsælast að skrá rétt hross á sýningu strax í upphafi því það einfaldar alla vinnu á sýningarstað. Munum því eftir að taka sýni og röntgenmyndir í tíma.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.

Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...

Gróðurhúsarækt enn öflug
Fréttir 31. ágúst 2026

Gróðurhúsarækt enn öflug

Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar snemma í vor var samþykkt tillaga um stof...