Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Opið verður fyrir gesti og gangandi á Hvanneyri á sumardaginn fyrsta.
Opið verður fyrir gesti og gangandi á Hvanneyri á sumardaginn fyrsta.
Mynd / Úr safni
Fréttir 21. apríl 2026

Skeifudagurinn og sumardagurinn fyrsti á Hvanneyri

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Skeifudagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur allt frá árinu 1957. Hestamannafélag nemenda við skólann, Grani, býður að þessu tilefni til uppskeruhátíðar búfræðinemenda sem stundað hafa hestamennskuáfanga við skólann í vetur. Dagskrá er hægt að nálgast á vefsíðu LBHÍ.  Forseti Íslands, frú Halla Tómastdóttir, mun flytja ávarp. Að lokinni sýningu og keppni um Gunnarsbikarinn og verður verðlaunaathöfn og kaffisala í Ásgarði á Hvanneyri þar sem nemendur selja kaffiveitingar og happadrættismiða í stóðhestahappadrætti. Í matsal Ásgarðs verða svo veittar viðurkenningar og Skeifuhafi krýndur fyrir árið 2026. Viðburðurinn er öllum opinn. 

Á sumardaginn fyrsta er jafnframt opið hús í Landbúnaðarháskólanum milli 16-18. Gestum er boðið að skoða aðstöðu skólans og nemendagarðana. Tekið er á móti fólki í aðalbyggingu LBHÍ, Ásgarði.

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...