Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Skeifudagurinn haldinn eftir tveggja ára hlé
Mynd / Vibeke Thoresen
Líf og starf 2. maí 2022

Skeifudagurinn haldinn eftir tveggja ára hlé

Höfundur: Landbúnaðarháskóli Íslands

Það var gleðilegt að geta haldið Skeifudaginn með pompi og pragt eftir tveggja ára hlé. Það var einnig sértaklega ánægjulegt að geta haldið uppá þann áfanga að nú hefur skólinn tryggt sér glæsilega aðstöðu að Mið-Fossum sem nýtt hefur verið undir reiðmennsku og hestatengda kennslu.

Dagurinn hófst á fánareið og setningarávarpi Ragnheiðar I. Þórarinsdóttir rektors. Sigríður Bjarnadóttir brautarstjóri hestafræðibrautar hélt síðan ávarp og kynnti brautina og möguleika hennar til framtíðar. Í kjölfarið voru tvö sýningaratriði frá nemendum hestafræðinnar. Nemendur búfræðibrautar sýndu tamningartryppi sín þar sem Randi Holaker og Guðbjartur Þór Stefánsson reiðkennarar vetrarins kynntu þau og fóru yfir starf vetrarins.

Allir nemendur í reiðmennskuáföngum kepptu síðan í fjórgangi og voru síðan riðin úrslit annars vegar hjá nemendum hestafræðibrautar og hinsvegar búfræðinemenda sem kepptu um Gunnarsbikarinn.

Að lokinn dagskrá í var boðið til kaffis í hestamiðstöðinni og þar ávarpaði Helgi Eyleifur Þorvaldsson brautarstjóri búfræði samkomuna og veitti viðurkenningar ásamt því að tilkynna verðlaunahafa dagsins. Deginum lauk svo með útdrætti í stóðhestahappdrætti Grana.

Úrslit dagsins 

Morgunblaðsskeifuna 2022 hlaut Helgi Valdimar Sigurðsson en þetta er þriðja skeifan sem fer heim að Skollagróf þar sem bæði bróðir Helga og systir hlutu skeifuna 2019 og 2016. Helgi Bjarnason afhenti Skeifuna fyrir hönd Morgunblaðsins og er þetta í 65. skipti sem hún er veitt. Skeifuna hlýtur sá nemandi sem náð hefur bestum árangri á frumtamngingaprófi og í reiðmennsku III.

Í öðru sæti var Gissur Gunnarsson og því þriðja Vilborg Jónsdóttir. Í fjórða sæti Erla Björg Björnsdóttir og því fimmta Salbjörg Ragna Sævarsdóttir.

Eiðfaxabikar hlaut Linda Bjarnadóttir en hann er veittur fyrir bestu einkunn í áfanganum reiðmennska II. Eiðfaxabikarinn hefur verið veittur síðan 1978.

Reiðmennsku- og ásetuverðlaun Félags tamningamanna hafa verið veitt síðan 1971 og hlaut Sigríður Magnea Kjartansdóttir þau og veitti Silvía Sigurbjörnsdóttir formaður FT þau verðlaun.

Framfaraverðlaun Reynis hlaut Gissur Gunnarsson en þau eru veitt til minningar um Reyni Aðalsteinsson tamningameistara þeim nemanda sem sýnt hefur hvað mestan áhuga og ástundun og tekið sem mestum framförum í reiðmennsku.

Gunnarsbikarinn er síðan veittur þeim sem stendur hæðst í fjórgangskeppni búfræðinema og er veittur til minningar um Gunnar Bjarnason og hlaut hann Sigríður Magnea Kjartansdóttir. Í öðru sæti Linda Bjarnadóttir og því þriðja Helgi Valdimar Sigurðsson. Þá í því fjórða Erla Björg Björnsdóttir og fimmta Gissur Gunnarsson.

Nemendur af hestafræðibraut tóku einnig þátt í fjórgangskeppni og sigraði Ágústa Rut Haraldsdóttir hana. Í öðru sæti var María Magnúsdóttir, í því þriðja Hanna Valdís Kristinsdóttir og Harpa Sigríður Magnúsdóttir því fjórða og Rabea Skrippek því fimmta.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...