Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Svona lítur fullorðin asparglytta út á laufblaði aspar, en þær valda miklum skaða á trjánum.
Svona lítur fullorðin asparglytta út á laufblaði aspar, en þær valda miklum skaða á trjánum.
Mynd / Aðsendar
Líf og starf 29. maí 2023

Skaði asparglytta myndaður með dróna

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Rannsóknarsvið Skógræktarinnar á Mógilsá verður með spennandi verkefni í sumar, sem byggir á drónamyndum.

Brynja Hrafnkelsdóttir, sérfræðingur hjá Skógræktinni á Mógilsá.

Markmið verkefnisins er að kanna hvort hægt sé að nota dróna til að meta þann skaða sem meindýr og aðrir skaðvaldar valda í íslenskum gróðurvistkerfum.

Sjónum verður sérstaklega beint að bjöllutegundinni asparglyttu sem hefur valdið skaða á trjágróðri á tveimur svæðum á Suðurlandi. „Við munum láta drónann fljúga yfir rannsóknarsvæðin og taka myndir með vissu millibili. Myndirnar skarast og verða settar saman í eina stóra upprétta loftmynd. Við munum svo greina þær skemmdir sem koma fram á myndunum, bæði sjónrænt og með ákveðnu forriti sem greinir skaða á gróðri. Þetta verður síðan allt borið saman við niðurstöður hefðbundinna mælinga sem verða líka framkvæmdar á sömu svæðum til þess að kanna hversu mikil nákvæmni kemur fram í drónamyndunum,“ segir Brynja Hrafnkelsdóttir, sérfræðingur á Mógilsá. Ef niðurstöður úr drónamyndatökunum verða álíka nákvæmar og hefðbundnar mælingar niðri á jörðinni mun þessi aðferð verða mjög gagnleg fyrir framtíðar úttektir. „Drónamyndataka er hraðvirkari og því hagkvæmari en venjulegar mælingar. Auk þess kemst dróninn á svæði þar sem annars erfitt er að komast að til að mæla gróður,“ segir Brynja.

Grímsnes og Skaftafell

Í sumar mun dróninn fara á tvö svæði sem hafa orðið illa úti af völdum asparglyttu, annað í Grímsnesi og hitt í Skaftafelli. Brynja segir verkefnið mjög spennandi. „Það er ótrúlega mikið nýtt og spennandi að gerast í mælingum með drónum og öðrum fjarkönnunarbúnaði. Það er því spennandi að byrja að notast við þessa tækni í rannsóknum á skógum og öðrum gróðri. Ef allt gengur upp erum við komin með hraðvirka og hagkvæma leið til að meta ástand á skógum landsins. Það verður líka mjög gagnlegt að bera þessar myndir saman við myndir sem verða teknar af sömu svæðum í framtíðinni,“ segir Brynja. Verkefnið er m.a. styrkt af Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar og RANNÍS.

Kristín Sveiney Baldursdóttir, sem nýlega lauk meistaraprófi í skógfræði. Draumur hennar er að komast í starf þarsemhúnfæraðsinnarannsóknum tengdum landgræðslu og skógrækt

Heillaðist strax af asparglyttu

Ásókn asparglyttu í mismunandi klóna alaskaaspar er yfirskrift meistararitgerðar sem Kristín Sveiney Baldursdóttir varði frá Landbúnaðarháskóla Íslands þann 19. maí síðastliðinn.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á náttúrunni og draumurinn var lengst af að verða bóndi. Hins vegar kviknaði skordýraáhuginn í BS náminu mínu þar sem ég skrifaði lokaverkefni mitt um birkihnúðmý,“ segir Kristín, en hún er búfræðingur með BS gráðu í landgræðslufræðum og nú með MS gráðu í skógfræði. Samhliða námi hefur hún unnið hjá Landbúnaðarháskólanum og Landgræðslunni.

Lítið rannsökuð bjalla

Kristín sá asparglyttu í fyrsta skipti árið 2010, eða fimm árum eftir að hún uppgötvaðist. „Ég heillaðist strax af þessari bjöllu, enda falleg og áhugaverð. Þegar kom að því að velja mér verkefni í meistaranáminu kom í raun ekkert annað til greina en að skoða asparglyttuna. Mér fannst mikilvægt að skoða asparglyttuna á Íslandi enda engar rannsóknir verið framkvæmdar hérlendis á henni. Við vitum að hún hefur verið að valda töluvert miklum skaða á bæði ösp og víði og þar sem alaskaösp er það tré sem við erum að horfa einna mest til varðandi kolefnisbindingu þá ákvað ég að skoða alaskaasparklóna í þessari rannsókn,“ segir Kristín.

Hún framkvæmdi áttilraunir, bæði í rannsóknarstofu og utanhúss, auk þess sem hún framkvæmdi úttektir á skemmdum í klónasöfnum í Hrosshaga í Biskupstungum og á Mógilsá í Kollafirði. „Ég fylgdist með lífsferli asparglyttunnar og sendi spurningalista á aðila tengda garð- og skógrækt víðs vegar um landið og fékk þaðan upplýsingar um útbreiðslu og skaðsemi hennar almennt. Ég fór einnig sjálf í ferð um landið og leitaði að asparglyttu til þess að útbúa útbreiðslukort,“ segir Kristín.

Engir náttúrulegir óvinir

Kristín segir asparglyttu valda miklum skoða og usla. „Í Skaftafelli hafa til að mynda geisað asparglyttufaraldrar undanfarin ár og eru allar líkur taldar á að dauða gulvíðis þar megi rekja til þeirra en gulvíðir er lykiltegund í mörgum vistkerfum hérlendis. Þar sem hér virðast ekki vera neinir náttúrulegir óvinir asparglyttu verður að teljast líklegt að hún nái að valda meiri skaða í framtíðinni. Einnig er líklegt að með aukinni hlýnun muni stofnstærð hennar aukast og útbreiðslusvæði hennar á Íslandi stækka,“ segir Kristín.

Matarolía og vatn

Kristín er innt eftir ráðum til að forðast bjölluna eða að drepa hana. „Garðeigendur geta skolað asparglyttuna af blöðum trjánna ofan í fötur og fargað henni. Sumir hafa brugðið á það ráð að spreyja á laufblöð blöndu af matarolíu og vatni og þá kafnar bjallan. Aðrir hafa lagt blöð undir trén og þannig náð að safna lirfunum sem láta sig falla til jarðar áður en þær púpa sig. Í skógrækt væri hægt að gróðursetja lítið næma klóna og helst klónablöndur og þannig auka um leið líffræðilegan fjölbreytileika sem vitað er að minnkar líkur á skaða af völdum skordýra.”

Skylt efni: Skógrækt | asparglytta

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...

Heimsmethafinn Arney
23. júní 2023

Heimsmethafinn Arney

Réttalistinn 2026
2. september 2026

Réttalistinn 2026

Flottasti strumpastrætóinn
12. október 2026

Flottasti strumpastrætóinn

Stjörnuspá vikunnar
8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Arndís Inga
23. september 2026

Arndís Inga

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f